Morgunblaðið - 07.03.2017, Side 1
Vegagerðin ætlar að kynna fyrstu
niðurstöður greiningar sem gerð var
á Grindavíkurvegi fyrir fulltrúum
Grindvíkinga á fundi með Hreini
Haraldssyni vegamálastjóra á
fimmtudag. Tvö banaslys hafa orðið
á Grindavíkurvegi það sem af er ári.
Grindvíkingar knýja á um endur-
bætur á veginum.
Hreinn sagði í samtali við Morgun-
blaðið að slysin á Grindavíkurvegi
væru hörmuleg. Hann benti á að
einnig hefðu nýlega orðið tvö alvar-
leg slys, þar af annað banaslys, á nær
sama stað við Brunnhóla, á Reykja-
nesbraut. Það þurfi einnig að skoða.
Hreinn sagði að Vegagerðin væri
að ganga frá samningum um gerð
mislægra gatnamóta á mótum
Reykjanesbrautar og Krýsuvíkur-
vegar. Fjárveiting til þeirrar fram-
kvæmdar er til reiðu á þessu ári.
„Við litum á það sem fyrsta áfang-
ann í að ljúka tvöföldun Reykjanes-
brautar í gegnum Hafnarfjörð,“
sagði Hreinn. Hann sagði að á tólf
ára samgönguáætlun, sem lögð hefur
verið fyrir Alþingi, væri gert ráð fyr-
ir að hafist yrði handa við tvöföldun
sjálfrar Reykjanesbrautar í gegnum
Hafnarfjörð og suður fyrir Straum
árið 2019. »18
Alvarleg slys á veg-
um á Reykjanesi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Reykjanes Slys á Reykjanesbraut
og Grindavíkurvegi.
Þ R I Ð J U D A G U R 7. M A R S 2 0 1 7
Stofnað 1913 56. tölublað 105. árgangur
STÚLKUM HÆTT-
ARA VIÐ KVÍÐA
EN STRÁKUM
ENGI-
SPRETTUR
BANNAÐAR
UNGIR OG
TILFINNINGA-
RÍKIR TENÓRAR
MATARHÁTÍÐIN FOOD & FUN 6 TÓNLEIKAR Í HAFNARBORG 30LÍÐAN UNGLINGSSTÚLKNA 12
„Það er
skiljanlegt að
frestun vega-
framkvæmda sé
gagnrýnd,“ segir
Jón Gunnarsson
samgöngu-
ráðherra. Alls
vantar 10 millj-
arða kr. svo hægt
sé að fara í vega-
framkvæmdir sem áformaðar voru
í ár. Þar má nefna veg um Teigs-
skóg vestra, Berufjörð og Dettifoss-
veg. Því er mótmælt í ályktunum
víða frá. „Áframhaldandi fjársvelti
til samgöngumála mun leiða til
hruns,“ segir í ályktun ferðaþjóna á
Húsavík um Dettifossveg.
Að undanförnu hefur Jón Gunn-
arsson kynnt þá hugmynd að vega-
bætur næst höfuðborginni verði
fjármagnaðar með vegtollum. Með
slíku megi flýta framkvæmdum við
vegi sem þá verði greiðfærari. Toll-
heimtunni verði stillt í hóf og inn-
heimtustöðvar staðsettar þannig að
best náist til ferðamanna. „Við
þurfum að vera opin fyrir nýjum
hugmyndum svo ganga megi í mál-
in sem fyrst,“ segir ráðherra. »14
Vegtollar geti flýtt
framkvæmdum
„Vitanlega er Evrópusambandið
ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað
þið væruð að fara út í. Og ef þið
eruð ekki reiðubúin til þess, haldið
ykkur þá fyrir utan sambandið.
Það er það besta sem þið getið
gert,“ segir Uffe Ellemann-
Jensen, fyrrverandi utanríkis-
ráðherra Danmerkur, spurður
hvort einungis sé hægt að komast
að því hvað felist í Evrópusam-
bandinu með því að sækja um inn-
göngu í sambandið og fá samning á
borðið líkt og oft hefur verið haldið
á lofti í umræðum um Evrópumál á
Íslandi.
Ellemann-Jensen, sem hefur
lengi verið áhugasamur um að
bæði Ísland og Noregur gengju í
Evrópusambandið, segir að það
liggi að öllu leyti fyrir hvað í boði
sé með inngöngu í sambandið.
Hann segist annars hafa fyrir
margt löngu gefist upp á að mynda
sér skoðun á Íslandi og Evrópu-
sambandinu. Betra sé að láta Ís-
lendinga um þau mál sjálfa. „Þess
utan á sambandið við svo mikla
erfiðleika að stríða eins og staðan
er í dag að við þurfum ekki fleiri
vandræðagemsa innan veggja
þess.“ » 11
Þurfum ekki vandræðagemsa
Morgunblaðið/ Kristinn Magnússon
Ákveðinn Uffe Ellamann-Jensen,
fv. utanríkisráðherra Danmerkur.
Uffe Ellemann-Jensen segir ESB ekki lokaðan pakka Framhaldsskólum er í sjálfsvaldsett hvort þeir nýta sér einkunnir
úr samræmdum prófum í 9. bekk
til þess að greina á milli væntan-
legra nýnema.
Samkvæmt upplýsingum sem
Menntamálastofnun hefur hyggj-
ast þeir skólar sem munu kalla
eftir gögnum um samræmdu próf-
in nýta þau til að velja á milli
nemenda sem hafa sömu eða sam-
bærilega einkunn úr lokaprófi
grunnskóla.
Samræmdu prófin hefjast í dag
og standa út vikuna. Nemendur 9.
og 10. bekkjar grunnskóla þreyta
í fyrsta sinn rafrænt samræmd
könnunarpróf í ensku, stærðfræði
og íslensku. »4
Sumir nýta prófin
við inntöku nema
Þrátt fyrir smá þíðu í gær eru enn miklir snjó-
hraukar við götur og á bílastæðum á höfuðborg-
arsvæðinu. Fyrirtæki hafa verið að rýma til á
bílastæðum með því að láta aka snjónum í burtu.
Þar eru fjörur og sjórinn fyrsta val enda sagt að
lengi taki sjórinn við. Tveir vörubílar óku snjó af
bílastæði fyrirtækis við Sundahöfn í gær og
sturtuðu fram af bryggjunni enda ekki langt að
fara í því tilviki.
Hreinsað til á bílastæðum fyrirtækja
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sagt er að lengi taki sjórinn við
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Guðrún Hafsteinsdóttir, forstjóri
Kjöríss og formaður Samtaka iðn-
aðarins, segist vera ánægð með þau
áform Bjarna Benediktssonar, for-
sætisráðherra, að láta fara fram
allsherjar úttekt á starfsemi lífeyr-
issjóðanna í landinu.
„Ég sem stjórnarformaður myndi
taka vel í þær hugmyndir forsætis-
ráðherra að sett verði gólf á erlend-
ar fjárfestingar lífeyrissjóða. Ég
hef bæði talað fyrir því sem stjórn-
arformaður Lífeyrissjóðs verslun-
armanna og eins sem formaður
Samtaka iðnaðarins. Það er orðið
mjög knýjandi að taka mjög afger-
andi skref í afléttingu hafta og hluti
af þeirri vinnu gæti verið að setja
gólf á fjárfestingar lífeyrissjóðanna
erlendis,“ sagði Guðrún.
Um þau orð forsætisráðherra í
Morgunblaðinu á laugardag að líf-
eyrissjóðirnir væru orðnir mjög
fyrirferðarmiklir í íslensku atvinnu-
lífi sagði Guðrún: „Það þarf ekki að
koma neinum á óvart að lífeyris-
sjóðirnir séu orðnir fyrirferðarmikl-
ir í íslensku atvinnulífi, því þeir
hafa verið með fjárfestingar sínar
inni í lokuðu hagkerfi. Það hlýtur
hver maður að sjá að fjárfesting-
arþörf sjóðanna er mjög mikil og
við höfum ekki getað farið út með
fjármagnið.“
Taka þarf afgerandi skref
Formaður stjórnar Lífeyrissjóðs verslunarmanna segir lífeyrissjóðina hafa ver-
ið lokaða inni í fjármálakerfi hafta Fagnar áformum um úttekt á lífeyrissjóðum
Gólf á fjárfestingar
» Guðrún Hafsteinsdóttir,
stjórnarformaður Lífeyrissjóðs
verslunarmanna er hlynnt því
að gólf verði sett á fjárfest-
ingar lífeyrissjóða erlendis.
» Hún segir að smáskammta-
lækningar hafi ekki dugað.
MFagnar áformum »4
Jón Gunnarsson