Morgunblaðið - 07.03.2017, Síða 8

Morgunblaðið - 07.03.2017, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 Samsæriskenningar um að Rússarhafi beitt áhrifum sínum til að hafa áhrif á niðurstöðu forsetakosn- inganna í Bandaríkjunum eiga greiða leið í bandaríska fjölmiðla um þessar mundir. Masha Gessen hefur skrifað talsvert um Rússland og er lítill aðdáandi Vla- dimírs Pútíns. Hún er ekki heldur í stuðningsmannaliði Trumps, ef út í það er farið. Henni blöskrar hins vegar samsæristalið og rekur ástæðurnar í grein í tímaritinu The New York Re- view of Books.    Þar segir hún aðfjöldi blaða- manna og álitsgjafa sé sannfærður um samsæri Rússa. Sannfæring þeirra auðveldi þeim að tengja hitt og þetta við samsærið og tengingunum fjölgi jafnt og þétt. Gessen segir að hriplekar leyniþjón- ustur sjái fyrir efni í samsærisfrétt og bætir við að það sé áhyggjuefni: „Nánast ekkert af upplýsingunum er hægt að fá staðfest með sjálfstæðum hætti. Samhengið, röðin og tíma- setning lekanna er ákveðin af fólki, sem almenningur þekkir ekki, held- ur er ætlast til að nafnlausum frétt- um sé trúað; ekki höfum við heldur fengið neinar beinharðar sannanir um leynimakk með embætt- ismönnum Trumps.“    Gessen segir að athyglisverðustuupplýsingarnar sé oft að finna grafnar djúpt í fréttum. Í frétt einni í New York Times kom fram að ýmis samskipti hefðu verið milli liðs- manna Trumps og Rússa, sem eru nánir Pútín eða í stjórn hans, en ekk- ert hafi komið fram, sem gefi neitt skuggalegt í skyn: „Fyrrverandi stjórnarerindrekar og sérfræðingar um Rússland segja að það hefði ver- ið fáránlegt og gegn hagsmunum Bandaríkjanna hjá liðsmönnum Trumps að forðast fundi með Rúss- um meðan á kosningabaráttunni stóð eða eftir hana.“ Það var og! Donald Trump Rússasamsærið STAKSTEINAR Vladimír Pútín Veður víða um heim 6.3., kl. 18.00 Reykjavík 5 skýjað Bolungarvík 4 skýjað Akureyri 3 rigning Nuuk -10 skýjað Þórshöfn 8 skýjað Ósló -2 léttskýjað Kaupmannahöfn 1 snjókoma Stokkhólmur 0 léttskýjað Helsinki -1 heiðskírt Lúxemborg 5 léttskýjað Brussel 7 skúrir Dublin 5 súld Glasgow 9 léttskýjað London 9 skúrir París 5 rigning Amsterdam 8 léttskýjað Hamborg 5 rigning Berlín 7 skýjað Vín 11 heiðskírt Moskva -1 snjókoma Algarve 17 léttskýjað Madríd 18 léttskýjað Barcelona 22 léttskýjað Mallorca 22 léttskýjað Róm 14 léttskýjað Aþena 17 léttskýjað Winnipeg 4 þoka Montreal -5 skýjað New York -2 léttskýjað Chicago 12 alskýjað Orlando 22 alskýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 7. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:13 19:05 ÍSAFJÖRÐUR 8:22 19:07 SIGLUFJÖRÐUR 8:05 18:49 DJÚPIVOGUR 7:44 18:34 EXPLORE WITHOUT LIMITS ® ARCTIC TRUCKS ÍSLAND EHF. KLETTHÁLSI 3 110 REYKJAVÍK SÍMI: 540 4900 NETFANG: info@arctictrucks.is www.arctictrucks.com VÖNDUÐ JEPPADEKK FYRIR ÍSLENSKAR AÐSTÆÐUR VÖNDUÐ OG HLJÓÐLÁT DEKK UNDIR FLESTAR GERÐIR JEPPA OG JEPPLINGA. STÆRÐIR FRÁ 29-44 TOMMU. ÖLL ALMENN DEKKJAÞJÓNUSTA TÍMABÓKANIR Í SÍMA 540 4900 Tíu umsækjendur eru um embætti prests við Fella- og Hólakirkju í Efra Breiðholti, Reykjavíkur- prófastsdæmi eystra. Umsóknar- frestur rann út 1. mars. Umsækjendurnir eru í stafrófs- röð: Anna Þóra Paulsdóttir guðfræð- ingur, séra Ása Laufey Sæmunds- dóttir, séra Bára Friðriksdóttir, séra Elínborg Gísladóttir, séra Fritz Már Berndsen Jörgensen, Inga Harð- ardóttir guðfræðingur, séra Jón Óm- ar Gunnarsson, Randver Þorvaldur Randversson guðfræðingur, Sigríð- ur Hrönn Sigurðardóttir guðfræð- ingur og séra Sunna Dóra Möller. Þarfagreining prestakallsins lá til grundvallar auglýsingunni, segir í frétt á heimasíðu biskups. Kjörnefnd prestakallsins kýs á milli umsækj- enda bindandi kosningu. Biskup Ís- lands skipar í embættið frá 1. apríl til fimm ára í ljósi niðurstöðu kjör- nefndar. Fella- og Hólasóknir sameinuðust í nóvember. Báðar voru í Efra- Breiðholti og höfðu til afnota sömu kirkjuna, Fella- og Hólakirkju. Sóknarbörn eru tæplega 10 þúsund. Sóknarprestur er Guðmundur Karl Ágústsson. sisi@mbl.is Tíu vilja þjóna í Breiðholti  Skipað verður í embættið 1. apríl Kristján H. Johannessen khj@mbl.is Alls sóttu 127 manns um sumarstarf á fréttastofu Ríkisútvarpsins (RÚV) sem auglýst var fyrir nokkru, en frest- ur til þess að sækja um rann út mánu- daginn 27. febrúar síðastliðinn. „Við ráðum ár hvert í sumar- afleysingar á fréttastofu, en það liggur ekki alveg nákvæmlega fyrir hversu margir þeir verða í ár,“ segir Þóra Margrét Pálsdóttir, mannauðsstjóri RÚV, í samtali við Morgunblaðið og bætir við að síðustu sumur hafi að meðaltali 6 til 8 verið ráðnir í afleys- ingar sem fréttamenn. Ferlinu lýkur í mars Þegar RÚV auglýsti eftir fólki til sumarstarfa á fréttastofu árið 2013 voru umsækjendur um 400 talsins. Segir Þóra Margrét hæfniskröfur hafa verið ítarlegri í ár. „Við gerum alltaf ákveðnar kröfur um hæfni þegar við auglýsum eftir starfsfólki,“ segir Þóra Margrét, en þess var meðal annars krafist að umsækjendur séu með há- skólapróf er nýtist í starfi, hafi gott vald á íslensku og reynslu af blaða- og fréttamennsku. Aðspurð segir Þóra Margrét stefnt að því að ljúka ferlinu á næstu vikum. „Það verða haldin fréttamannapróf og síðan viðtöl, en stefnt er að því að klára ráðningar í þessum mánuði,“ segir hún. Yfir 100 vilja vinna á fréttastofu RÚV  Ríkisútvarpið auglýsti eftir fólki í sumarvinnu  Haldin verða próf og viðtöl tekin Morgunblaðið/Eggert RÚV Starfsemin er við Efstaleiti.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.