Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.03.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017 SKOÐAÐU ÚRVALIÐ Á VEFSÍÐUNNI OKKAR www.skornirthinir.is ÖRUGG SKREF ÚT Í LÍFIÐ í fyrstu skónum frá Biomecanics Biomecanics-skórnir auðvelda börnum að taka fyrstu skrefin. Aukinn stuðningur frá hliðunum bætir jafnvægi og eykur stöðugleika. Börnin komast auðveldar áfram og af meira öryggi þökk sé sveigjanlegum sóla og sérstyrktri tá. Stærðir: 18–24 Verð: 7.995 Margir litir Verð kr. 5.900 Str. S-XXL 3 litir Bæjarlind 6, sími 554 7030 Við erum á facebook Vorlegt :-) VIÐTAL Hjörtur J. Guðmundsson hjortur@mbl.is „Ég hef fyrir löngu gefist upp á því að mynda mér skoðanir á Íslandi og Evrópusambandinu. Það er betra að láta Íslendinga um það. Ég tel að Íslendingar hafi ekki haldið nógu skynsamlega á málum í þeim efnum eins og þeir gera venjulega en það er ykkar vandamál. Þannig að ég læt ykkur um það. Þess utan á sam- bandið við svo mikla erfiðleika að stríða eins og staðan er í dag að við þurfum ekki fleiri vandræðagemsa innan veggja þess.“ Þetta segir Uffe Ellemann- Jensen, fyrrverandi utanríkis- ráðherra Danmerkur, og hlær við í lokin en hann hefur lengi verið áhugasamur um að bæði Ísland og Noregur gengju í Evrópusam- bandið. Bendir hann á í þeim efnum að hans eigin landar, Danir, hafi líka valdið samrunaþróuninni innan sambandsins vandræðum. Kostnaðarsamt fyrir Breta Talið berst að Bretum sem einnig hafa verið sakaðir um að vera vand- ræðagemsar innan Evrópusam- bandsins en eru nú á útleið úr því. Ellemann-Jensen segist þeirrar skoðunar að útgangan úr samband- inu eigi eftir að valda Bretum mikl- um erfiðleikum og verða þeim miklu kostnaðarsamari en ráðamenn þeirra vilji meina. „Fyrir Evrópusambandið og vest- ræn ríki er útganga Bretlands erfið vegna tímasetningarinnar. Þegar fyrir hendi eru gríðarlegir erfið- leikar vegna Rússlands og þessi nýi forseti hefur tekið við völdum í Bandaríkjunum. Þetta eru tímar sem kalla á evrópska samvinnu, að varnir álfunnar séu styrktar og svo framvegis. Þetta er ekki besta tíma- setningin til þess að takast á við slíkt vandamál. Þetta er klúður og mér finnst satt að segja stundum svolítið erfitt að halda í bjartsýn- ina,“ segir hann. Spurður hvort önnur ríki sem eru innan Evrópusambandsins í dag eigi eftir að segja skilið við sam- bandið segist Ellemann-Jensen ekki telja að fleiri ríki muni beinlínis yf- irgefa það þó erfitt sé til að mynda að segja til um hvernig forsetakosn- ingarnar í Frakklandi í apríl kunni að fara. Sama sé að segja um þing- kosningarnar í Hollandi síðar í þessum mánuði. Vísar hann þar til mögulegs árangurs Marine Le Pen, leiðtoga frönsku Þjóðfylkingar- innar, og Geerts Wilders, leiðtoga hollenska Frelsisflokksins. Lausnin er meiri samvinna „Síðan erum við með ríki eins og Ungverjaland og Pólland sem eru einfaldlega ekki að standa við þær skuldbindingar sem þau gáfu við inngönguna í Evrópusambandið. Þannig að sambandið á við mikla erfiðleika að stríða. Vandamálið er að við höfum orðið vitni að uppgangi þjóðernisíhaldsmanna sem eru af allt öðrum toga en sú frjálslynda íhaldsstefna sem ég aðhyllist. En þjóðernisíhaldsstefna finnst meðal annars í boðskap Donalds Trump um að setja Bandaríkin í fyrsta sæti,“ segir hann. Slæmur tími fyrir útgöngu Breta  Uffe Ellemann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Dana, segir að Evrópusambandið eigi við mikla erfiðleika að stríða og þurfi ekki fleiri vandræðagemsa eins og Íslendinga innan sinna veggja Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Litríkur Uffe Ellamann-Jensen, fyrrverandi utanríkisráðherra Dana, hefur áhyggjur af uppgangi þjóðernisíhaldsmanna í Evrópu og Bandaríkjunum. Tal Ellemann-Jensen berst að um- ræðunni um Evrópusambandið á Íslandi þar sem stundum hefur verið talað um að sækja þurfi um inngöngu í sambandið og fá samning á borðið til þess að sjá hvað sé í boði. Hvað sé í pakk- anum eins og það hefur gjarnan verið orðað. Spurður hvort raun- veruleikinn sé með þeim hætti segir Ellemann-Jensen að svo sé alls ekki. „Þið vitið fullkomlega hvað er í pakkanum. En stundum þurfa stjórnmálamenn að gefa eitthvað eftir til þess að fá það sem er í kassanum og þá tapa þeir vitinu. Eða kjarkinum.“ Þá hefjist ómaklegar ásakanir í garð Evrópusambandsins. „Vitanlega er Evrópusambandið ekki lokaður pakki. Þið vitið hvað þið væruð að fara út í. Og ef þið eruð ekki reiðubúin til þess, hald- ið ykkur þá fyrir utan sambandið. Það er það besta sem þið getið gert,“ segir hann. ESB ekki lokaður pakki SEGIR ÍSLENDINGA VITA HVAÐ FELIST Í AÐILD Rekstrarkostnaður á hvern nem- anda í grunnskólum landsins var að meðaltali 1.651 þúsund árið 2015, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Kostnaðurinn hefur hækkað um rúm 6% frá þeim tíma þannig að Hagstofan áætlar að rekstrarkostnaður á hvern nemanda í grunnskólum sem reknir eru af sveitar- félögum sé nú 1.755 þúsund krónur. Hagstofunni ber að reikna út meðalkostnað á hvern nemanda í öllum grunnskólum landsins sem reknir eru af sveitarfélögum. Er það gert til að undirbyggja ákvörðun um framlög úr sveit- arsjóði til sjálfstætt starfandi grunnskóla sem reknir eru í sumum sveitarfélögum. Útreikningur Hafstofunnar grundvallast á ársreikningum sveitarfélaga, að teknu tilliti til verðlagsbreytinga til þess dags sem útreikningur er gerður. Nið- urstöðurnar eru birtar fimmta dag hvers mánaðar á tímabilinu frá október fram til ágúst. Nemandi kostar 1.755 þúsund kr.  Kostnaður grunn- skóla reiknaður út Skilaboðin séu þau að hægt sé að taka á flóttamannavandanum og öðrum vandamálum með því að reisa múra og stöðva frjáls við- skipti. Það séu heimskulegar hug- myndir. Lausnin í þeim efnum sé þvert á móti meiri samvinna á milli ríkja. Spurður hvernig hann telji æskilegt að Evrópusambandið þró- ist til framtíðar segir Ellemann- Jensen að vænlegast sé að sam- runaþróunin eigi sér stað á mismun- andi hraða og að tekið verði tillit til hvers ríkis. Staðan hafi í raun lengi verið með þeim hætti. Geta ekki tínt rúsínurnar „En á sama tíma verður að standa fast á því að ríki geta ekki bara tínt rúsínurnar úr kökunni. Þannig virkar það ekki. Það eru ekki í boði endalaus jól fyrir suma en aðra ekki. Ríki verða að taka þátt eða segja skilið við Evrópu- sambandið. Og það er það sem Bretar eiga eftir að komast harka- lega að raun um. Þeir eiga eftir að komast að því að þeir geta ekki bæði átt kökuna og borðað hana og það á sínum eigin forsendum,“ segir Ullemann-Jensen enn- fremur.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.