Morgunblaðið - 07.03.2017, Qupperneq 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú þarft að beita hugkvæmni þinni
til þess að hlutirnir fari að ganga á nýjan
leik. Segðu af eða á í tæka tíð.
20. apríl - 20. maí
Naut Vilji er það eina sem þarf og þú verður
að stilla þig inn á að vilja hlutina áður en þú
freistar þess að framkvæma þá. Láttu ekki
einkalíf og atvinnu ganga á hlut hvors ann-
ars.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það er kominn tími til að bregða á
leik og þú ert til í slaginn. Framlag þitt hefur
ekki farið framhjá öðrum. Vertu þakklátur
þeim sem hjálpuðu þér og leiðbeindu í
æsku.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Mundu það að ef þú ert nógu ákveð-
inn tekst þér allt sem þú vilt að þér takist.
Gakktu í að gera gömlu málin upp svo þú
getir verið heill maður; bæði heima fyrir og í
vinnu.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þér sækist einkar létt að klára eitt
verkefni og hefjast handa við annað. Bestu
hugmyndirnar koma auðvitað klukkan þrjú á
nóttunni.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú nýtir þér bolmagn einhvers til
þess að hjálpa þeim sem minna mega sín.
Með öðrum orðum, leiktu þér.
23. sept. - 22. okt.
Vog Maður veit að einhver er raunverulegur
vinur manns, ef ekki þarf að skýra hvert ein-
asta smáatriði en samt skilur maður allt. Ef
hún bankar upp á snýrð þú henni upp í
skemmtilegt ævintýri.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Er tilfinningalíf þitt þjakað af
skuggum og þoku? Einfaldar gjörðir geta
komið á jafnvægi. Ertu að reyna að firra þig
ábyrgð? Eða er einhver að reyna að forðast
þig? Vertu með á nótunum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú hefur gott tækifæri til þess
að skoða samskipti þín við aðra. Haltu þig á
jörðinni. Ekki ofgera þér á félagslega sviðinu.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Sambönd eru vinna sem þarf þú
ekki að vera íþyngjandi. Byrjaðu á því að
taka eftir sætu hlutunum sem ástvinur gerir.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú ert ekki mikið fyrir einveru í
dag og vilt alls ekki missa sambandið við
aðra. Mundu að þeir voru til staðar fyrir þig
þegar þú þurftir á þeim að halda.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Það er mikilvægt að þú haldir áfram
að koma skipulagi á eigur þínar. Líttu bara
um öxl og sjáðu hverju þú hefur fengið áork-
að.
Bara rugl. Limrur eru rugl,“ seg-ir Hólmfríður Bjartmarsdóttir
á Boðnarmiði:
Ari var oftast á sjó
það var auðvitað hætta og þó.
Ari í landi
var aldrei í standi.
Hann datt loks á kránni og dó.
Og áfram heldur hún:
Mikill bósi er Benni
sem býr með Fríðu á Enni
Á netinu fann
hann fallegan mann
nú búa þeir báðir með henni.
Nú kom Dagfinnur með í spilið:
Menn segja að Dagfinnur drekki
og í drykkjunni hrjái hann ekki
á bæjarins bar
því bardaman þar
sé draumur, sem dreymir hann ekki.
Og enn kveður hún:
Óhróðri vertinn var ausinn
ótal fékk spörkin í dausinn.
það er nú það
að þannig er að
hann er víst kominn á hausinn.
Guðrún Bjarnadóttir kannast við
Dagfinn líka:
Dagfinnur vertinn vann,
því verkið alveg hann kann.
Þá dreymdi dömu,
(hver djöfs) þá sömu,
svo dýralæknir drap mann.
„Flugvél eða þyrla?“ spyr Davíð
Hjálmar Haraldsson á Leirnum og
er alltaf praktískur:
„Í flugvél er fyllirí skyssa“
kvað Felix „en það er mín vissa
að fátt sé að ugga
því opna má glugga
á þyrlu ef þarf ég að pissa.“
„Það eru ekki allir dagar sunnu-
dagar,“ segir Ólafur Stefánsson:
Hann örvænti’ að afloknum slætti,
því aldrei hann Katrínu mætti.
Og af engjunum þeim
fór hann einsamall heim,
og allt var í undandrætti.
Kristján Karlsson orti:
„Ja, andartak ef ég hef tíma,“
sagði íslenskumaður í Lima.
Það falaði hann stúlka
sem lá breidd upp’á búlka
eða bekk, ef þú kannt ekki að ríma.
Í lokin eftir Jóhann S. Hannesson:
Sértu fríður, er gróflega gaman
að gera sig ljótan í framan
með fettum og brettum
og glennum og grettum.
Ég geri það tímunum saman.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af Dagfinni, Benna og
íslenskumanni í Lima
Í klípu
„EF VIÐ GETUM UNNIÐ OKKUR
UPP ÚR $#!@-NUM, GETUM VIÐ
SPARAÐ SMÁ PENING“
GARÐA-
BÚÐIN
KINDA-
SPÖRÐ
KÚA-
DELLA
HROSSA
TAÐ
KAUPIÐ EINN FÁIÐ
ANNAN Á HÁLFVIRÐI
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„MÁ ÉG HRINGJA EITT SÍMTAL
ÁÐUR EN ÉG SKULDBIND MIG?“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... þegar þú ert
stjarnan mín.
NEI! FARÐU Í LÍK-
KISTUNA ÞÍNA,
UNGI MAÐUR!
ÞIÐ GETIÐ EKKI
NEYTT MIG!
DRAKÚLA SEM
TÁNINGUR
MENN, VIÐ HÖLDUM
TIL ORRUSTU…
GETURÐU
VERIÐ
NÁKVÆMARI?
…MEÐ 50%
LÍKUM!
50% SÉNS Á AÐ VIÐ
VINNUM EÐA 50% SÉNS
Á AÐ VIÐ TÖPUM?
Víkverji snæddi hádegisverð áveitingastað úti í bæ í gær með
sérlega vönduðum mönnum. Það
væri svo sem ekki í frásögur fær-
andi nema fyrir þær sakir að honum
tókst í flumbrugangi sínum að
mölva glas. Beygði sig og teygði inn
í hillu til að sækja vatnsglas en
gerði sér ekki grein fyrir því að tvö
glös héngu saman og áður en Vík-
verji náði að depla auga lá annað
þeirra í þúsund molum á gólfinu.
x x x
Var málið allt hið vandræðaleg-asta enda margt um manninn á
veitingastaðnum.
x x x
En þegar neyðin er stærst erhjálpin næst, segir einhvers
staðar, og það átti svo sannarlega
við í þessu tilviki. Víkverji haft varla
haft svigrúm til að átta sig á því
hvert hann átti að snúa sér eftir
hjálp þegar starfsmaður veitinga-
staðarins stóð skyndilega við hlið
hans með fægiskóflu og sóp.
x x x
Víkverji trúði ekki sínum eiginaugum. „Hafðu ekki áhyggjur
af þessu, lagsi,“ sagði starfsmað-
urinn, þegar Víkverji byrjaði í ræf-
ildómi sínum að biðjast velvirðingu
á gjörðum sínum. „Þú ert alls ekki
sá fyrsti sem lendir í þessu.“
x x x
Það sást glögglega á æðru- ogfumlausum viðbrögðum starfs-
mannsins; hann var sultuslakur yfir
þessu hræðilega óhappi og Víkverja
leið strax umtalsvert betur.
x x x
Úr því að óhöpp af þessu tagi erusvo algeng á veitingastaðnum
að sérstakur starfsmaður er beinlín-
is til taks til að hreinsa upp glerið
má velta fyrir sér hvort glasaskipan
ætti mögulega, ef til vill og kannski
að vera með öðrum hætti? Bara
pæling! Á móti kemur að þá væri
líklega einu starfinu færra í sam-
félaginu.
x x x
Svo því sé til haga haldið var mat-urinn alveg hreint prýðilegur.
Og vatnið líka. vikverji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni verk þín og þá bera áform
þín árangur.
(Orðskv. 16:3)