Morgunblaðið - 07.03.2017, Side 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. MARS 2017
Átök milli þeirra sem viljavernda ósnortin víðerninog hinna sem kjósa aðbeisla náttúruna í eigin
þágu er lykilþema í brúðusýning-
unni Tröll úr smiðju Handbendis
brúðuleikhúss sem Englendingurinn
Greta Clough stofnaði og hefur rekið
á Hvammstanga sl. hálfa annað árið.
Í samtali við Morgunblaðið um
helgina sagði Greta að Tröll, sem
mun vera fjórða sýning Handbendis,
væri endurtúlkun á nokkrum vin-
sælustu tröllasögum Íslendinga sögð
út frá sjónarhorni ungrar stúlku úr
mannheimum, en í hópi trölla fer
mest fyrir trölli sem nefnt er Trunt-
um runtum. Nær enginn texti er í
tæplega klukkustundarlangri sýn-
ingunni sem Sigurður Líndal Þórs-
son leikstýrir og því hvílir fram-
vindan öll á sjónrænni útfærslu.
Brúðu- og leikmyndahönnunin
sem er í höndum Gretu er vel út-
færð. Leikmyndin samanstendur af
kössum og flekum í ólíkum stærðum
sem snúa má á ýmsa kanta. Sumar
hliðar líkjast mosavöxnu hrauni þar
sem hin ýmsu tröll leynast líkt og í
felulitum, en vel er til fundið að nota
ljós fyrir augu þannig að ekki fari á
milli mála hvenær tröllin eru sofandi
og hvenær vakandi. Aðrar hliðar
leikmyndarinnar luma á rauðmál-
uðum burstabæjum og í einum kletti
mátti finna heila kirkju. Aftast á
sviðinu sáust snjóhvítir fjallatindar
úr ljósu efni sem einnig var notað til
að skapa skuggamyndir þegar á
þurfti að halda. Lykilpersónur voru í
tveimur stærðum sem gaf möguleika
á að leika sér með fjarlægðir og
smæð persónanna í stórbrotinni
náttúrunni.
Greta og Aldís Davíðsdóttir
stýrðu brúðunum af miklu öryggi og
nákvæmni. Sérstaklega var gaman
að fylgjast með fuglum himins svífa
tignarlega um í meðförum þeirra.
Hljóðmynd og tónlist Pauls Mosely
lék stórt hlutverk í sýningunni, en
var á köflum óþarflega hátt spiluð og
yfirgnæfði ýmis áhrifshljóð sem
brúðustjórnendur bjuggu til. Fallegt
var einsöngslagið um Truntum runt-
um í flutningi Hrafnhildar K.
Jóhannsdóttur sem leikið var af
bandi eins og öll hljóðmyndin.
Sem fyrr segir snúast átök sýn-
ingarinnar um yfirráð yfir nátt-
úrunni. Tröllin, sem sjónrænt tengj-
ast náttúrunni sterkum böndum þar
sem þau geta orðið eitt með henni,
kjósa að hún fái að haldast ósnortin.
Litlar manngerðar verur, allar
klæddar í rauðfjólubláar skikkjur,
ryðjast reglulega inn á sviðið og um-
breyta umhverfinu með ýmsum
byggingum og ekki síst kirkju sem
raskar ró tröllanna, því þau þola
ekki hljóminn í kirkjuklukkunum.
Þegar litlu verurnar draga sig í hlé
koma tröllin á vettvang og ryðja
húsum úr vegi og reyna að end-
urheimta náttúruna eins og hún var.
Þessi hringrás er endurtekin
nokkrum sinnum í sýningunni án
þess að leiða til neinnar niðurstöðu.
Sýningin hefði óneitanlega grætt á
markvissari sögu og á köflum skýr-
ari innbyrðis afstöðu persónanna.
Þetta átti helst við í samskiptum
stúlkunnar ungu við rauðfjólublá-
klæddu verunum, en óljóst var hvort
verurnar væru manneskjur eða
huldufólk. Einsleitur en á sama tíma
litríkur klæðnaður úr fínu efni og
kirkjan í hamrinum benti til þess að
um álfafólk væri að ræða, en sam-
skipti stúlkunnar við verurnar benti
til þess að hún væri ein af þeim þrátt
fyrir að vera klædd í mun grófara og
litlausara efni. Samskipti stúlkunnar
við tröllið Truntum runtum voru á
hinn bóginn afar skýr og fallega út-
færð, allt frá hræðslu og feimni við
fyrstu kynni til gleði og gáska eftir
því sem vinasambandið styrktist.
Á heildina litið var stemningin í
sýningunni falleg, en á köflum óþarf-
lega vandasamt að lesa í hin ýmsu
tákn og óljósa framvindu. Í fyrr-
nefndu viðtali við Gretu segir hún
þónokkur átök að finna í verkinu,
milli trölla og manna en að lokum
læri allir að búa saman í sátt og sam-
lyndi, enda snúist þetta um að „sýna
gagnkvæma virðingu“. Sú virðing
var skýr í samskiptum stúlkunnar
við Truntum runtum, en ekki reynd-
ist auðvelt að sjá hvernig tröllin og
mannfólkið náðu sáttum.
Vandasamt „Á heildina litið var stemningin í sýningunni falleg, en á köflum óþarflega vandasamt að lesa í hin ýmsu
tákn og óljósa framvindu,“ segir í rýni um brúðusýninguna Tröll sem sýnd var í Tjarnarbíói um helgina.
Í sátt og samlyndi
Tjarnarbíó
Tröll bbbnn
Eftir Gretu Clough. Leikstjórn: Sigurður
Líndal Þórisson. Brúðu- og leikmynda-
hönnun: Greta Clough. Tónlist og hljóð-
mynd: Paul Mosely. Lýsing: Aðalsteinn
Stefánsson. Skuggamyndir: Kathleen
Scott. Brúðuleikarar: Greta Clough og
Aldís Davíðsdóttir. Handbendi brúðu-
leikhús frumsýndi í Samkomuhúsinu á
Akureyri 11. febrúar 2017 og sýndi í
framhaldinu á Norður- og Vesturlandi.
Sýnt í Tjarnarbíói 5. mars 2017.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Hin tvískipta leiksýning Harry Potter and the
Cursed Child hlaut metfjölda tilnefninga til Oli-
vier-verðlaunanna, helstu leiklistarverðlauna
Breta. Er sýningin tilnefnd til alls ellefu verð-
launa, þar á meðal er Jamie Parker tilnefndur
fyrir besta leik í aðalhlutverki, en hann leikur
Potter, og Noma Dumezweni fyrir aukahlutverk
en hún leikur Hermoine. Þá hlaut söngleikurinn
Groundhog Day átta tilnefningar og tónskáldið
Andrew Lloyd Webber var tilnefnt fyrir þrjár
sýningar sem eru á fjölunum á Bretlandi.
Leikritið um Potter með 11 tilnefningar
Úr Harry Potter and the
Cursed Child.
Guðný Rós Þór-
hallsdóttir fór
með sigur af
hólmi í stutt-
myndakeppninni
Sprettfiskur,
hlaut verðlaunin
fyrir stuttmynd
sína C-vítamín.
Fjöldi stutt-
mynda barst há-
tíðinni en að
endingu voru sex stuttmyndir
valdar til þátttöku í keppninni.
Verðlaunin voru afhent í loka-
hófi Stockfish-kvikmyndahátíð-
arinnar í fyrrakvöld og voru það
Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir og
Rakel Garðarsdóttir sem til-
kynntu um sigurvegara Sprett-
fisksins, en þær sátu í dómnefnd
ásamt Baldvini Z. Guðný hlaut í
verðlaun einnar milljónar króna
tækjaúttekt hjá
Kukli.
Kvöldi fyrr
voru svo veitt
verðlaun Ör-
varpsins, Örv-
arpinn, á Stock-
fish og hlaut
þau örmyndin
HAMUR eftir
Völu Ómars-
dóttur. Verð-
laun voru veitt af Spennandi
heildverslun og Reykjavík Foto.
Vala segir myndina hluta af
stærra verkefni sem hún og Hall-
fríður Þóra Tryggvadóttir séu að
þróa undir nafninu GERVI Pro-
ductions. Þær vinni með kyngervi
og málefni transfólks og séu núna
að framleiða lengri stuttmynd í
samvinnu við Uglu Stefaníu Krist-
jönudóttur Jónsdóttur.
Guðný Rós hlaut Sprettfiskinn og
Vala hlaut Örvarpann á Stockfish
Guðný Rós
Þórhallsdóttir
Vala
Ómarsdóttir
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
5%
SÝND KL. 8
SÝND KL. 6 SÝND KL. 8, 10.30
SÝND KL. 10.30
SÝND KL. 5.15, 8, 10.45
SÝND KL. 5.40
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 13. mars.
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
Fermingarblað Morgunblaðsins
kemur út föstudaginn 17. mars
Fermingarblaðið er eitt af
vinsælustu sérblöðum
Morgunblaðsins.
Fjallað verður um allt
sem tengist fermingunni.