Morgunblaðið - 08.03.2017, Page 10

Morgunblaðið - 08.03.2017, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Hvalaskoðunarfyrirtækið Ambassa- dor ehf. á Akureyri hyggst færa út kvíarnar á næstunni og hefja einnig rekstur í Reykjavík. Fyrirtækið hefur tekið bryggju á leigu við Vesturbugt í Gömlu höfn- inni í Reykjavík. Frá sömu bryggju verður hvalaskoðunarskipið Sailor einnig gert út. Útgerð skipa og báta til hvalaskoð- unar og annars konar ferða hefur vaxið hröðum skrefum frá Reykja- víkurhöfn á undanförnum árum. Er þessi atvinnuvegur orðinn mjög blómlegur. Samkvæmt upplýsingum Gísla Jó- hanns Hallssonar, yfirhafnsögu- manns Faxaflóahafna, voru 9 ferða- þjónustufyrirtæki með viðlegupláss í Suður- og Vesturbugt í fyrra, 7 í Suð- urbugt og 2 í Vesturbugt. Suðurbugt er nú fullnýtt Alls voru 17 bátar gerðir út frá Suðurbugt (fyrir framan grænu ver- búðirnar) og 2 í Vesturbugt. Í ár fjölgar a.m.k. um tvö fyrirtæki í Vesturbugt en Suðurbugt er fullnýtt og engin breyting verður þar að sögn Gísla. Einnig er vitað um a.m.k. eitt fyrirtæki sem ætlar á markaðinn en að svo stöddu er það ekki komið með bryggju enda bryggjupláss orðið takmarkað í Gömlu höfninni, segir Gísli. Árið 2015 var áætlað að um 200.000 farþegar hefðu farið um Suð- urbugt. Í fyrra var aukningin milli 20-30% þannig að ætla má að fjöldinn það ár hafi verið 240.000-260.000. Fjöldinn sem fór um Vesturbugt var miklu minni enda færri skip þar. Erlendum ferðamönnum standa til boða margvíslegar ferðir. Hvala- skoðun er allt árið og norðurljósa- ferðir á veturna. Á sumrin bætast við fuglaskoðunarferðir, dorg, skemmti- ferðir og margt fleira. Magnús Guðjónsson, skipstjóri og framkvæmdastjóri Ambassador ehf., segir að skip fyrirtækisins, Ambassa- dor, sé væntanlegt til Reykjavíkur í mars. Til að byrja með verður boðið upp á hvalaskoðunar- og norður- ljósaferðir en þegar kemur fram á sumarið verði boðið upp á fjölbreytt- ari ferðir. Ambassador kom til lands- ins árið 2013. Hann er 74 brúttótonn og tekur 100 farþega. „Við byrjum svona og sjáum svo til,“ segir Magn- ús. Ambassador ehf. á þrjú önnur skip. Stærsta skipið heitir Arctic Circle og kom til landsins í árslok 2015. Það er tvíbytna, 225 brúttó- tonn, og tekur 150 farþega. Það er mjög hraðskreitt, gengur 27 til 28 sjómílur á klukkustund. Þá á fyrir- tækið tvo flatbotna báta, svokallaða RIB-báta, sem taka 12 manns hvor. Þessir þrír bátar verða gerðir út frá Akureyri í sumar. Hvalaskoðunarfyrirtækið Elding, sem hefur höfuðstöðvar í Reykjavík, opnaði útibú á Akureyri í fyrra. Það hefur gert út skipið Eldingu frá Akureyri. Morgunblaðið/Árni Sæberg Líf og fjör Tveir bátar leggja úr Reykjavíkurhöfn. Sá minni í hvalaskoðun, sá stærri í lundaskoðun. Gamla höfnin laðar að sér ferðamenn  Ambassador á Akureyri haslar sér völl í Reykjavík Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Á Heiðmerkursvæðinu á ekki að vera nein starfsemi eða umferð önn- ur en sú sem samrýmist vatns- vernd,“ segir Árný Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftir- lits Reykjavíkur. Með því svarar hún Helga Gíslasyni, framkvæmda- stjóra Skógræktarfélags Reykjavík- ur, sem í Morgunblaðinu í gær sagði ástæðulaust með tilliti til vatns- verndar að takmarka umferð um Heiðmörk. I kjölfar þess að jeppi valt á skóg- ræktarsvæðinu á dögunum kom heilbrigðiseftirlitið með þau tilmæli til ökumanna að vera þar ekki að óþörfu, nú þegar væri þæfingsfærð. Frá 2010 hafa starfsmenn Heil- brigðiseftirlits Reykjavíkur bent á að aðgangsstýra þurfi umferð um vatnsverndarsvæðið í Heiðmörk. Einnig að því megi loka þegar að- stæður krefjist slíks. „Það hefur enginn talað um að loka svæðinu eins og ýjað er að heldur að fólk nýti sér svæðið til útivistar. Bílaumferð sé svo stýrt með t.d. bílastæðum með mengunarvarnarbúnaði.“ Allar framkvæmdir í Heiðmörk þurfa leyfi heilbrigðiseftirlits að undangengnu áhættumati, enda er þetta grannsvæði vatnsverndar. Og það var einmitt á slíkum reit sem jeppabíllinn valt. Telur Árný það vera lán að mengun barst út í Elliða- vatn en ekki í grunnvatnið. Ábyrgðarlaus ummæli „Skógræktarfélag Reykjavíkur sér ekki um vatnsvernd eða hefur umsjón með mengunarhættu á vatnsverndarsvæði. Ummæli fram- kvæmdastjóra félagsins um ofmat á hættu við vatnsbólin eru ábyrgðar- laus. Við þurfum líka að hafa hug- fast að neysluvatn hér á höfuðborg- arsvæðinu hefur sérstöðu, það þarfnast engrar meðhöndlunar og er af hæsta gæðaflokki. Við berum öll ábyrgð á að vernda þá auðlind til langrar framtíðar,“ segir Árný. Vernda auðlind til framtíðar  Umferð í Heiðmörkina verði stýrt Vegna stóraukins fjölda er- lendra ferðamanna, sem leggja leið sína um gömlu höfnina ár- lega, þykir aðkallandi að bæta húsakost á svæðinu. Nú um stundir notast ferðaþjónustu- fyrirtækin mestmegnis við skúrabyggingar af ýmsum stærðum og gerðum. Á síðasta fundi stjórnar Faxa- flóahafna var samþykkt að fela Gísla Gíslasyni hafnarstjóra að láta vinna drög að deiliskipulagi að svæðinu sem byggjast á fyrirliggjandi hugmyndum Yrkis arkitekta, sem nýlega voru kynntar í stjórninni. Samhliða því verði lögð drög að hönnun húsa, annars vegar við Ægisgarð vegna þjónustu við hafsækna ferðaþjónustu og hins vegar fjölnota þjónustuhús á Miðbakka. Er sá undirbúning- ur hafinn, að sögn Gísla. Hann reiknar samt ekki með að bein- ar framkvæmdir hefjist fyrr en á árinu 2018. Það mun taka ein- hvern tíma að ganga frá skipu- lagsmálum og hönnun þeirra húsa, sem til stendur að byggja á svæðinu. Húsakostur verði bættur DEILISKIPULAG UNDIRBÚIÐ Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Grand Hótel Reykjavík 13.-14. mars Strandbúnaður á Íslandi: Staða, framtíðarsýn og skipulag www.strandbunadur.is Skráning fer fram á www.strandbunadur.is Ræktun bláskeljar Mánudaginn 13. mars - Afhending gagna 12:00 Þriðjudagurinn 14. mars Málstofa - sameiginleg - Gullteigur Þörungarækt og nýting þörunga Málstofa A1 - Gullteigur Framtíð bleikjueldis á Íslandi Málstofa B1 - Hvammur Málstofa A2 - Gullteigur A Málstofa B2 - Gullteigur B Íslenskur strandbúnaðar og alþjóðlegt samhengi Menntun í strandbúnaði Málstofa - sameiginleg - Gullteigur Framtíð laxeldis og um- hverfismál Vaxtarsprotar strandbúnaðar Málstofa A3 - Gullteigur A Málstofa B3 - Gullteigur B

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.