Morgunblaðið - 08.03.2017, Page 12

Morgunblaðið - 08.03.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 – fyrir salernið! og dilkurinn sérstakur því hvert ein- asta lamb þar var svartflekkótt. Ekki þurfti þar börn til því ábúendurnir voru eftirlaunafólk. Skapa eftirvæntingu á vorin Sæþór Gunnsteinsson, bóndi í Presthvammi í Aðaldal og formaður Félags sauðfjárbænda í Suður-Þing., segist hafa mjög mikinn áhuga á mis- lita fénu. Í hjörð hans eru mjög mörg litaafbrigði og segir hann að þegar sett er á til lífs á haustin sé alltaf byrj- að á ákveðnum hóp af litfallegum gimbrum sem markaðar hafi verið með lífmarki um vorið því þær hafi verið svo fallegar þegar þær fæddust. Sæþór segir að áhuginn á kind- unum og litunum sé í genunum, því afi hans Gunnar Maríusson á Húsa- vík var mikil áhugamaður um kindur og ekki síst um liti og litaafbrigði. Hann bjó á Bakka á Tjörnesi um tíma og þar hafði hann margt fé í fjörubeit sem varð mjög frjósamt og fjórlembi varð ekki óalgengt. Margt fólk sem er komið út af Gunnari Maríussyni er með mikinn áhuga á skepnum og hvað mest á sauðfé. Sæþór segir að það sé erfitt að útskýra það hvernig þessi áhugi haldist svona sterkur, en þetta séu margar tilfinningar sem Atli Vigfússon laxam@simnet.is Ásumum bæjum var lengitalað um barnafé, því börn-in voru spennt fyrir því aðeignast kindur sem voru með sérstökum litum og ekki síst til þess að þekkja þær úr í hópnum. Áhugi á dökka og flekkótta fénu er samt alls ekki bundinn við börn, því margir eru þeir fjárbændur sem halda litaáhuganum allan sinn bú- skap. Um tíma dalaði áhugi á litunum í íslenska sauðfénu vegna þess að verðið á dökku ullinni fór niður úr öllu valdi og því töldu margir bændur sig ekki bundna af því að vera með mis- litt fé. Mjög mörg dæmi eru um hjarðir sem voru alhvítar og á sumum bæjum fæddust öll lömbin hvít og þóttu það tíðindi ef það kom eitt dökkt eða mislitt á einhvern hátt. Sums staðar breyttist þetta ef börn fæddust á bæjunum og var þá farið í það að vera með liti, en samt í smáum stíl. Stundum fjölgaði mislita fénu smám saman og í seinni tíð hafa verið mjög góðar kynbætur á mislita fénu sem hefur orðið til þess að dökka og flekkótta fénu hefur fjölgað. Um tíma var mórauð ull verðmæt og þá mynduðust mórauðar hjarðir og enn í dag eru margir bændur mjög gefnir fyrir mórautt. Svartflekkóttar hjarðir hafa einnig verið til og á bænum Lækjarhvammi í Aðaldal, þar sem fjárbúskapur er nú aflagður, var hver einasta kind um árabil svartflekkótt. Sá hópur setti svip á Hraunsrétt Margir eru þeir lit- irnir á fallegu fé Litaafbrigðin í íslenska sauðfénu eiga sér vart hliðstæðu og margir eru þeir sem hafa áhuga á litaflórunni til þess að rækta hana áfram og fá enn fleiri liti. Kindurnar geta verið svartar, svartbotnóttar, svartflekkóttar, svartgolsóttar, svarthálsóttar, svartkrögubíldóttar og svartleistóttar, svo eitthvað sé talið. Þær geta verið móbíldótt- ar, móbotnóttar, mógolsóttar, móhosóttar, móhöttóttar, móarnhöfðóttar, mókrúnótt- ar, móleistóttar og mósokkóttar. Sama er að segja um gráu litina því þar geta birst hin ýmsu afbrigði og til eru margar grábíldur, grágolsur, grábotnur og gráflekkur. Í fjárhúsinu Sæþór Gunnsteinsson, bóndi í Presthvammi í Aðaldal, með for- ystusauðinn sinn sem heitir Bárður og er í miklu uppáhaldi hjá honum. Hissa Þessar þrjár fallegu kindur voru undrandi yfir ljósmyndaranum. Litir Fjárlitir eru fjöl- breyttir á bænum Lyng- brekku í Þingeyjarsveit. Talið er að um 10% kvenna í heim- inum glími við sjúkdóminn legslímu- flakk (endómetríósu). Legslímuflakk er krónískur, sársaukafullur sjúk- dómur sem orsakast af því að frumur úr innra lagi legsins finnast á öðrum stöðum í kviðarholinu. Undir venju- legur kringumstæðum fara þessar frumur út úr líkamanum við blæð- ingar. Frumurnar sem finnast utan legsins setjast undir yfirborðsþekju á líffærunum og mynda þar legslímu- flakk sem síðan veldur bólgum og blöðrumyndun. Legslímuflakk finnst m.a. á eggjastokkum, eggjaleiðurum, blöðru, ristli, á böndum sem halda leginu á sínum stað (legböndum) og víðar. Allar konur sem eru með legslímu- flakk vita hversu bagalegt það getur verið. Í dag verður málþing á Landspítal- anum undir yfirskriftinni: Staða kvenna með endómetríósu innan heilbrigðiskerfisins: Lífsgæði og meðferðarúrræði. Fyrirlesarar eru úr ólíkum áttum heilbrigðiskerfisins auk skjólstæðinga og aðstandenda og er ætlunin að varpa ljósi á stöðu kvenna sem glíma við þennan flókna og erf- iða sjúkdóm. Pallborðsumræður verða í kjölfar fyrirlestra og opið fyrir spurningar. Málþingið hefst klukkan 16.15 og verður í hringsal Landspít- alans við Hringbraut (inngangur barnaspítalans). Allir eru velkomnir, heilbrigðisstarfsfólk, konur með endómetríósu og fjölskyldur þeirra. Málþing á Landspítalanum Getty Images/Thinkstock Legslímuflakk Verkir sem fylgja sjúkdómnum geta verið mjög slæmir. Staða kvenna sem glíma við legslímuflakk Ylströndin í Nauthólsvík í Reykjavík er dásamlegur staður á þessum árs- tíma. Þangað kemur harðasta sjó- sundsfólkið og fær sér sundsprett og flatmagar svo í stóra heita pottinum á eftir og spjallar við félagana. Og stundum er boðið upp á svokallaða gongslökun fyrir baðgesti, og þannig verður það einmitt í kvöld, miðviku- dag, kl. 19:30 - 19:50, en þá ætlar Arnbjörg Kristín jógakennari að leika á gongið fyrir gesti Ylstrandarinnar. Fólk ætti hiklaust að mæta og hvíla líkama, huga og sál við hafið. Ylströndin í Nauthólsvík í kvöld Nú er lag að njóta dásemdar- innar sem fylgir gongslökun Notalegt Hér má sjá fólk í heita pottinum á ströndinni við undirleik gongs. Morgunblaðið/Styrmir Kári Jógakennari Arnbjörg Kristín.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.