Morgunblaðið - 08.03.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017
Brasilía glímir nú við verstu efna-
hagskreppu í sögu landsins. Hag-
kerfi landsins dróst saman um 0,9%
á síðasta fjórðungi ársins 2016 og
var það áttundi ársfjórðungurinn í
röð þar sem samdráttur mældist.
Brasilíska hagkerfið, sem er það
stærsta í Suður-Ameríku, dróst
saman um 3,8% árið 2015 og um
3,6% á síðasta ári.
Mikill uppgangur var í Brasilíu á
tímabilinu frá 2003 til 2010 þegar
Luiz Inácio Lula da Silva var forseti
landsins. Þá naut landið hækkandi
hrávöruverðs og stóraukinnar eftir-
spurnar Kínverja eftir brasilískum
útflutningsvörum. Á sama tíma
stóðu stjórnvöld fyrir félagslegum
umbótum sem miðuðu að því að
draga úr mikilli fátækt í landinu.
En síðan hefur sigið á ógæfuhlið-
ina vegna hneykslismála sem tengd-
ust æðstu stjórnendum ríkisins og
lækkandi verðs á olíu, málmum,
sojabaunum og öðrum útflutnings-
vörum Brasilíu.
Nýlega mældist atvinnuleysi í
landinu 12,6% sem svarar til þess að
13 milljónir manna séu án atvinnu.
Henrique Meirelles, fjármálaráð-
herra Brasilíu, fullyrti hinsvegar í
gær að bráðum kæmi betri tíð og
vísbendingar væru um að hagkerfi
landsins væri byrjað að vaxa á ný.
AFP
Hátíð Mikið var um dýrðir á árlegri kjötkveðjuhátíð í Rio de Janeiro um
helgina en nýjar hagtölur gefa Brasilíumönnum lítið tilefni til að gleðjast.
Kreppa í Brasilíu
Kristján H. Johannessen
khj@mbl.is
Stjórnarherinn í Írak sækir enn af
mikilli hörku inn í borgina Mosúl,
síðasta stóra vígi Ríkis íslams þar í
landi, en fréttaveita AFP greinir frá
því að hermenn hafi nú náð valdi á
helstu stjórnsýslubyggingum þar
auk þess sem þeir hafa hrakið víga-
menn út úr minjasafni borgarinnar.
Orrustuþotur Bandaríkjahers
hafa veitt íröskum sveitum aðstoð í
formi loftárása allt frá því að þeir
hófu sókn sína inn í vesturhluta Mo-
súl 19. febrúar síðastliðinn. Að sögn
AFP þurftu hersveitir að hægja á
sókn sinni í nokkra daga sökum
bágra veðurskilyrða, en á sunnudag
hófst hún aftur af fullum þunga.
Eitt merkasta safn landsins
Í tilkynningu sem stjórnarher
Íraks sendi frá sér í gær kemur með-
al annars fram að búið sé að endur-
heimta mikilvæga brú úr klóm víga-
manna, en hún veitir hersveitum
færi á að endursameina austur- og
vesturhluta borgarinnar.
Minjasafnið í Mosúl er eitt merki-
legasta safn landsins, næst á eftir því
safni sem finna má í Bagdad. Rataði
það í heimspressuna 26. febrúar
2015 þegar Ríki íslams sendi frá sér
myndband sem sýnir hvernig liðs-
menn samtakanna beittu sleggjum
til að mölbrjóta ómetanlegar styttur
og voru sumar þeirra meðal annars
frá tímum Rómaveldis. Minnst 90
menningarmunir eru sagðir hafa
eyðilagst í ódæðinu.
Þá hefur hersveitum einnig tekist
að leggja undir sig seðlabankabygg-
ingu, höfuðstöðvar lögreglunnar,
raforkumannvirki og vatnsdreifing-
arstöðvar svo fátt eitt sé nefnt.
Þrengt að Ríki íslams í Írak
AFP
Stórsókn Ljósmyndari AFP náði mynd af því þegar bandarískar orrustu-
þotur vörpuðu sprengjum á vesturhluta Mosúl síðastliðinn mánudag.
Íraski stjórnar-
herinn sækir nú
grimmt inn í Mosúl
Kalífadæmi
» Íraska borgin Mosúl og sýr-
lenska borgin Raqqa eru síð-
ustu höfuðvígi Ríkis íslams.
» Landsvæði samtakanna, hið
svonefnda kalífadæmi, hefur
minnkað umtalsvert frá árinu
2014 þegar formlega var lýst
yfir stofnun þess.
» Um 750.000 manns búa enn
í vesturhluta Mosúl.
Þegar ljósmyndari fréttaveitu AFP
átti leið fram hjá þessum indverska
verkamanni í borginni Ahmedabad
var hann önnum kafinn við að
þurrka jurtir sem síðar eru nýttar til
að kalla fram skæra og fagra liti.
Næstkomandi mánudag, 13. mars,
hefst vorhátíðin Holi sem oftast er
nefnd hátíð litanna eða hátíð ást-
arinnar. Á henni er komu vorsins
fagnað og er hátíðin haldin eftir
fyrsta fulla tunglið í marsmánuði.
Hátíðin tengist hindúatrú og er
haldin í Suður-Asíu, en í seinni tíð
hefur hún breiðst út til Evrópu.
Holi-hátíðin þykir mikið sjónar-
spil enda ekki furða þar sem litir og
gleði eru þá allsráðandi. AFP
Hátíð lita
og ástar á
næsta leiti
Fimm karlmenn
sem allir eru
grunaðir um
tengsl við víga-
samtökin Ríki ísl-
ams verða leiddir
fyrir dómara í
Jórdaníu á næst-
unni. Mennirnir
voru handteknir
í fyrra grunaðir
um að hafa
skipulagt sjálfsvígsárás sem átti sér
stað í Rukban, skammt frá landa-
mærunum að Sýrlandi, 21. júní sl.
Fréttastofa AFP greinir frá því
að mennirnir séu allir með ríkis-
fang í Sádi-Arabíu en litlar upplýs-
ingar hafa verið gefnar um þá að
öðru leyti.
Alls létust sjö hermenn þegar
sjálfsvígssprengjumaður sprengdi
sig í loft upp við varðstöð þeirra í
Rukban. Í yfirlýsingu Ríki íslams
skömmu síðar viðurkenndu sam-
tökin ábyrgð á ódæðinu.
JÓRDANÍA
Munu rétta yfir
fimm vígamönnum
Hermaður stendur
vörð í Rukban.
Ungverska þing-
ið hefur nú sam-
þykkt að senda
alla þá sem sækja
um hæli þar í
landi sjálfkrafa í
varðhald og
verða þeir hýstir
í gámabúðum
sem búið er að
koma upp í suð-
urhluta landsins.
Frumvarpið var samþykkt með
miklum meirihluta atkvæða þrátt
fyrir að mannréttindasamtök hafi
lýst yfir áhyggjum sínum.
Viktor Orban, forsætisráðherra
Ungverjalands, segir aðgerðirnar
nauðsynlegar og vísar hann meðal
annars í aukna hryðjuverkahættu í
Evrópu í kjölfar aukins straums
flóttamanna þangað undanfarið.
Þá verður, að sögn fréttaveitu
AFP, hælisleitendum jafnframt
meinað að ferðast innan Ungverja-
lands og yfirgefa það á meðan um-
sókn þeirra um hæli er til skoðunar
innan stjórnsýslunnar.
UNGVERJALAND
Hælisleitendur í
varðhald við komu
Viktor
Orban