Morgunblaðið - 08.03.2017, Side 27

Morgunblaðið - 08.03.2017, Side 27
myndagerð yrði gott ævistarf, þá að- allega út af því hversu mikið hark það væri og erfitt að lifa á því. Ég fór í HÍ í heimspeki og var þar í eitt ár en árið 2000 fékk ég hugmynd að myndinni Varði fer á vertíð og eyddi sumrinu í hana. Sú mynd kveikti aft- ur í mér kvikmyndaáhugann.“ Grímur fór síðan í kvikmyndaskól- ann FAMU – Film Academy of Per- forming Arts í Prag og útskrifaðist þaðan árið 2004. Útskriftarmyndin hans var stuttmyndin Slavek the Shit, en hún vakti athygli á alþjóða- vettvangi, var valin til sýningar á Cannes og hefur víða hlotið verð- laun. „Sú mynd var líka stökkpallur fyrir mig og þá ákvað ég endanlega að leggja kvikmyndagerð fyrir mig.“ Næsta stuttmynd Gríms, sem er ein þekktasta íslenska stuttmynd sem gerð hefur verið er Bræðrabylta, sem fjallar um tvo samkynhneigða glímukappa. Hún hefur hlotið 25 al- þjóðleg verðlaun, m.a. sem besta stuttmyndin á Interfilm 2008. Fyrsta mynd Gríms í fullri lengd var síðan Sumarlandið frá 2010 og þar á eftir komu heimildarmyndirnar Hreint hjarta og Hvellur sem fjallaði um Laxárdeiluna við Mývatn. Önnur leikna mynd Gríms í fullri lengd var Hrútar sem var frumsýnd 2015. Hún hefur unnið til fjölda al- þjóðlegra verðlauna, meðal annars Un Certain Regard-verðlaunin í Cannes, sem eru þau næstæðstu þar, var tilnefnd sem besta myndin á Evrópsku kvikmyndaverðlaununum 2015 og sópaði til sín verðlaununum á Eddunni sama ár, m.a. sem besta myndin. „Ég var eitt og hálft ár að ferðast um heiminn með myndina Hrúta og hef verið að fá alls konar tilboð, er kominn með umboðsmann í Los Angeles og London, og er að skrifa handrit að mynd sem gerist í Banda- ríkjunum og mun leikstýra henni en breskir framleiðendur eru að mynd- inni. Það sem er samt næst á dagskrá er leikin íslensk kvikmynd sem heit- ir Héraðið og er pólitískur þriller í anda Óðals feðranna. Ég stefni á að taka hana upp á næsta ári. Ég er einnig að klippa heimildarmyndina Litla Moskva sem fjallar um Norð- fjarðarkommúnismann.“ Grímur ætlar að halda afmælis- veislu á laugardaginn. „Það er fyrsta veislan mér til heiðurs síðan ég fermdist. Ég er ekki mikið fyrir veislur og þurfti að þvinga mig til þess að halda hana. Þetta verður líka innflutningspartí því ég festi kaup á íbúð síðasta sumar í fyrsta sinn. Svo virðist því sem það hafi borgað sig að gera kvikmyndagerð að ævistarfi, núna 20 árum síðar.“ Fjölskylda Kærasta Gríms er Margrét Seema Takyar, f. 24.8. 1979, ljós- myndari og kvikmyndatökumaður. Foreldrar hennar eru Dinesh Kum- ar Takyar, f. 1950, og Sigríður Jóns- dóttir, f. 1954, en þau eru bæði efna- fræðingar. Systkini Gríms eru Finnur Há- konarson hljóðtæknimaður, f. 21.7. 1975, og Harpa Dís Hákonardóttir, rithöfundur og myndlistarnemi, f. 8.4. 1993. Foreldrar Gríms: Hákon Sigur- grímsson frá Holti, f. 15.8. 1937, framkvæmdastjóri Stéttarsambands bænda og síðar skrifstofustjóri í landbúnaðarráðuneytinu, og k.h. Unnur Stefánsdóttir frá Vorsabæ, f. 18.1. 1951, d. 8.8. 2011, leikskóla- stjóri og landsliðsmaður í íþróttum. Úr frændgarði Gríms Hákonarsonar Grímur Hákonarson Jóhanna Katrín Sigursturludóttir húsfr. á Íshóli og Jarlsstöðum, systurdóttir Jóns Sigurðssonar alþm. á Gautlöndum, föður ráð- herranna Kristjáns og Péturs Unnur Jónsdóttir húsfreyja í Holti Sigurgrímur Jónsson oddviti í Holti í Stokkseyrarhreppi Hákon Sigurgrímsson framkvstj. Stéttarsambands bænda og síðar skrifststj. í Landbúnaðarráðuneytinu Ingibjörg Grímsdóttir húsfreyja Jón Jónsson oddviti og sjóm. í Oddagörðum í Stokkseyrarhr., frá Jórvík í Álftaveri Guðrún Guðmundsdóttir húsfreyja í Túni Jóhann Þorkelsson dómkirkjuprestur Guðrún Jónsdóttir húsfr. á Sandhaugum Guðrún Eiríksdóttir form. Íslendingafélagsins í Kaupmannahöfn Vernharður Jóhannsson læknir á Sjálandi Guðmundur Jóhannsson cand.phil., tungumálakennari í Rvík Svavar Sigmundsson prófessor emeritus og fyrrv. forstöðum. Örnefnastofnunar Ragnheiður Jónsdóttir húsfreyja í Túni Guðmundur Bjarnason b. í Túni í Hraungerðishreppi Guðfinna Guðmundsdóttir húsfreyja í Vorsabæ Stefán Jasonarson hreppstj. í Vorsabæ í Flóa, form. Búnaðars.Suðurlands og fréttaritari RÚV Unnur Stefánsdóttir leikskólastj. og landsliðsm. í frjálsum íþróttum Helga Ívarsdóttir húsfreyja í Vorsabæ Jason Steinþórsson hreppstjóri í Vorsabæ Jón Þorkelsson b. og leiðsögum. á Íshóli og Jarlsstöðum í Bárðardal, gekk fyrstur manna á Öskju ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017 95 ára Valgerður Valgeirsdóttir 85 ára Guðmundur Óskarsson 80 ára Ásgeir Þ. Ásgeirsson Hanna Sigríður Antoníusdóttir Jóna Þ. Ólafsdóttir Kristín Sigurðardóttir Margrét Ríkarðsdóttir Ólöf Árbjört Tryggvadóttir 75 ára Ásta Vigdís Gústafsdóttir Ingvi Kristins Antonsson Jón Ingi Guðmundsson Marselía Gísladóttir 70 ára Anna Höskuldsdóttir Anton Óskarsson Dóra Jónasdóttir Gunnar H. Pálsson Halla G. Hjálmarsdóttir Kolbrún Kristín Gunnarsdóttir Leifur Jónsson Regin Eysturoy Grímsson Stefán Bergsson Teitur Jónsson 60 ára Egill Héðinn Bragason Elínborg Ellertsdóttir Erna Haraldsdóttir Geirþrúður Sólveig Hrafnsdóttir Guðmundur Vignir Hauksson Leszek Józef Sikorski Ólafur Már Guðmundsson Ragnar Rúnar Sverrisson 50 ára Ásborg Guðmundsdóttir Dagný Káradóttir Dorota Mucus Elín Einarsdóttir Elliði Ómar Hreinsson Gísli Örn Bjarkarson Hrafn Logason Kristín Ásta Jónsdóttir Kristján Valgeir Jóhannsson Mohamed Jónas El Asri Þóra Þrastardóttir 40 ára Adam Jacek Paradowski Baldur Örn Árnason Berglind Daðadóttir Biju George Birna María Antonsdóttir Ernestas Kirvelis Grímur Hákonarson Guðmundur Halldórsson Helena Jóhannsdóttir Ingvi Pétur Snorrason Magnea I. Hafsteinsdóttir Marteinn Helgason Michel Binet Doddis Ósk Unnarsdóttir Rakel Valsdóttir Sigurður Vignir Sigurðsson Wojciech Kulak 30 ára Björg Hákonardóttir Elías Örn Friðfinnsson Ellen Ösp Víglundsdóttir Eva Kristín Kristbjörnsdóttir Jaroslaw Jerzy Kot Klara Jóhanna Hlynsdóttir Kristýna Dousová Snorri Matthíasson Til hamingju með daginn 30 ára Klara ólst upp í Hafnarfirði, býr þar og er stuðningsfulltrúi við Hval- eyrarskóla í Hafnarfirði. Maki: Hákon Freyr Freys- son, f. 1986, bruggari hjá Foss Distillery. Börn: Írena Dögg, f. 2012, og Hlynur Pétur, f. 2014. Foreldrar: Hlynur S. Vig- fússon, f. 1959, leigubíl- stjóri og kjötiðnaðar- meistari, og Sigga Bech Ásgeirsdóttir, f. 1963, gæðastjóri. Klara Jóhanna Hlynsdóttir 30 ára Elías er Keflvík- ingur og er matreiðslu- maður hjá Soho Catering veisluþjónustu. Maki: Hildur Hlíf Hilm- arsdóttir, f. 1984, stuðn- ingsfulltrúi í Holtaskóla. Börn: Steinunn Lilja, f. 2015. Foreldrar: Friðfinnur Ein- arsson, f. 1961, vélaverk- fræðingur, og Lilja Péturs- dóttir, f. 1963, matráður í Leifsstöð. Þau eru bús. í Keflavík. Elías Örn Friðfinnsson 40 ára Rakel er Keflvík- ingur og er iðjuþjálfi á Æf- ingastöðinni hjá Styrkt- arfélagi lamaðra og fatlaðra. Börn: Birta Dröfn, f. 1996, og Eyþór, f. 2003. Foreldrar: Valur Krist- insson, f. 1960, vinnur í tollinum á Keflavíkur- flugvelli, bús. í Njarðvík og Hólmfríður Skarphéð- insdóttir, f. 1960, vinnur í öryggisleitinni á Keflavík- urflugv., bús. í Sandgerði. Rakel Valsdóttir Ólafía Sigurjónsdóttir hefur varið dokt- orsritgerð sína í sálfræði við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið Athygli- skekkjur í kvíðaröskunum: Þróun nýrra aðferða til að mæla og þjálfa hamlandi athygliferli (Attention bias in anxiety disorders: Developing new methods to measure and modify dysfunctional at- tentional processes). Umsjónarkenn- arar og leiðbeinendur voru dr. Árni Kristjánsson, prófessor við sálfræði- deild Háskóla Íslands, og Andri S. Björnsson, prófessor við sömu deild. Skekkjur í athygliferlum geta átt þátt í því að kvíðaraskanir þróist og viðhaldist. Athygliskekkjuþjálfun fer fram með hjálp tölvu og miðar að því að bæta úrvinnslu kvíðinna á kvíða- vekjandi áreitum til að draga úr kvíða. Niðurstöður rannsókna á árangri at- hygliskekkjuþjálfunar í að leiðrétta at- hygliskekkju og draga úr kvíða hafa verið blendnar sem má ef til vill rekja til þess að verkefnin sem notuð eru séu ekki nægilega næm fyrir þeim ferlum sem þau eiga að mæla og þjálfa. Í ritgerðinni eru niðurstöður þriggja rannsókna kynntar. Í rannsókn 1 voru metin áhrif umbunar og hefðbundinnar athygliskekkjuþjálfunar (sem byggist á könnunarverkefninu) á athygliskekkju og félagsfælniein- kenni þátttakenda sem voru á sama tíma í hópmeðferð við félagsfælni. Í rannsókn 2 var næmi tveggja al- gengra verkefna sem notuð eru til að mæla og þjálfa athygliskekkju (könnunarverkefni og vísbendiverkefni) borið saman við tvö verkefni sem eru mikið notuð í rann- sóknum innan hugfræði (sjónleit- arverkefni og athygliblikkverkefni) í hópi háskólanema. Í rannsókn 3 var næmi verkefnanna fjögurra mælt og bornir saman hópar fólks, sem greint var með félagsfælni, og hópur heil- brigðra. Niðurstöður rannsóknanna þriggja benda til að athygliskekkja feli í sér mörg samverkandi ferli og að verkefnin sem oftast hafa verið notuð til að mæla og þjálfa athygliskekkju skorti næmi. Umbun reyndist mjög áhrifarík til að hafa áhrif á athygliskekkju og athygli- blikkverkefnið reyndist vera mjög næmt á úrvinnslu á ógn og gaf nýja innsýn í athygliskekkju kvíðinna ein- staklinga. Ólafía Sigurjónsdóttir Ólafía Sigurjónsdóttir lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja árið 2002, BS-prófi í sálfræði frá HÍ árið 2009 og Cand.psych prófi í klínískri sálfræði árið 2011 frá sama skóla. Ólafía hefur starfað sem klínískur sálfræðingur við Kvíðameðferðarstöðina frá árinu 2011. Sambýlismaður Ólafíu er Alejandro José Arias Baissón og eiga þau dótturina Lóu Arias. Doktor Veit á vandaða lausn Verið velkomin í verslun okkar Opið virka daga kl. 8:30–17:00 Síðumúli 16 I 108 Reykjavík I Sími 580 3900 I fastus.is fastus.is SUNDLAUGALYFTUR FYRIR HREYFIHAMLAÐA Nánari upplýsingar gefur Erna Dís heilbrigðisverkfræðingur hjá Fastus. Netfang: erna@fastus.is Heilbrigðissvið Fastus býður upp á ýmsar gerðir af sundlaugalyftum fyrir hreyfihamlaða.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.