Morgunblaðið - 08.03.2017, Síða 31
Menning
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 8. MARS 2017
Farsinn Úti að aka eftir RayCooney í leikstjórn Magn-úsar Geirs Þórðarsonar,sem frumsýndur var í
Borgarleikhúsinu um liðna helgi, er
sjálfstætt framhald á farsanum Með
vífið í lúkunum sem frumsýndur var í
London 1983. Þar sagði af leigubíl-
stjóranum og tvíkvænismanninum
Jóni Jónssyni sem fékk leigjanda
sinn og frænda, Steingrím Guð-
mundsson, til að ljúga fyrir sig svo
ekki kæmist upp um afbrot hans.
Úti að aka, sem frumsýnt var í
London 2001, gerist 18 árum síðar.
Jón (Hilmir Snær Guðnason) er enn
kvæntur bæði Helgu (Ilmur Krist-
jánsdóttir) sem býr á heimili þeirra í
Mosfellsbænum og Guðrúnu (Hall-
dóra Geirharðsdóttir) sem býr á
heimili þeirra í Hafnarfirði, en hvor-
ug konan veit af hinni. Með Helgu á
hann Gunnar (Hilmar Guðjónsson)
sem er orðinn 16 ára en með Guð-
rúnu á hann hina 15 ára gömlu Sig-
ríði (Elma Stefanía Ágústsdóttir).
Þegar verkið hefst hafa Gunnar og
Sigríður kynnst gegnum samfélags-
miðla á netinu og ákveðið að hittast á
stefnumóti. Um leið og Jón kemst að
því ákveður hann að reyna hvað hann
getur að koma í veg fyrir að börnin
hans tvö hittist, þar sem slíkt gæti á
endanum leitt til sifjaspells, og eyðir
tveimur klukkustundum í rauntíma á
leiksviðinu í lygar og reddingar þar
til kemur að ögurstundu. Í lið með
sér fær hann leigjanda sinn, Stein-
grím (Halldór Gylfason), sem má
eiginlega ekki vera að því að hjálpa
frænda sínum þar sem hann er á leið
til Kanaríeyja með öldruðum og elli-
ærum föður sínum (Bergur Þór Ing-
ólfsson).
Samkvæmt forskrift höfundar
sameinar leikmynd Snorra Freys
Hilmarssonar bæði heimili Jóns í eitt
þar sem heimilisfólkið notar jöfnum
höndum fernar dyr framarlega á
sviðinu og mætist iðulega á sviðinu
án þess að sjá hvað annað, en gengur
um sitt hvorar útidyrnar. Heimilin
tvö spegla hvort annað í dempuðum
litum og formum, en óneitanlega
kviknaði sú spurning hvernig leigu-
bílstjóri hefði efni á að halda tvö jafn
glæsileg heimili því leikritið gefur
engar upplýsingar um möguleg störf
eiginkvennanna tveggja að öðru leyti
en því að Helga vinni við slökunar-
ráðgjöf í frístundum. Í bakgrunni
sést blátóna götukort af höfuð-
borgarsvæðinu sem minnir áhorf-
endur á þær vegalengdir sem per-
sónur verksins þurfa að fara milli
heimila.
Þýðing Gísla Rúnars Jónssonar er
þjál en heimfærslan gengur ekki
fyllilega upp. Óhugsandi er að Ís-
lendingur geti komist upp með tví-
kvæni í landi þar sem allir eru skráð-
ir í Þjóðskrá við fæðingu og geta
aðeins haft eitt opinbert heimilis-
fang. Til að gera aðstæður Jóns trú-
verðugar hefði verið vænlegra að
Helga og Guðrún væru ekki eigin-
konur hans heldur sambýliskonur til
nærri tveggja áratuga.
Cooney, sem fagnar 85 ára afmæli
sínu í vor, hefur skrifað um tuttugu
leikrit á ríflega 45 árum og hafa
nokkur þeirra ratað á svið hérlendis,
þeirra á meðal Með vífið í lúkunum,
Beint í æð og Nei, ráðherra! Góðir
farsar geta verið hin besta skemmt-
un og hvíla nær undantekningarlaust
á kostulegum misskilningi, slatta af
lygum, góðum hraða og fjölda inn- og
útgönguleiða til að framvinduhjólið
gangi smurt. Þeir farsar Cooney sem
rýnir hefur séð eiga það sameiginlegt
að aðalpersónan er karlmaður á
besta aldri sem er með tvær konur í
takinu. Til að ekki komist upp um at-
hæfið grípur hann til lyga og þegar
lygavefurinn fer að flækjast óþyrmi-
lega fyrir honum fær hann karlkyns
vin sinn til að hjálpa sér að halda
blekkingunni gangandi. Þó að staðan
sé um tíma tvísýn þarf aðalhetjan á
endanum samt ekki að taka afleið-
ingum gjörða sinna. Þrátt fyrir að
Úti að aka sé með yngri försum höf-
undar verður að segjast eins og er að
húmorinn er afskaplega gamaldags
og þreyttur. Líkt og í fyrri verkum
eru hommabrandarar fyrirferðar-
miklir (en þeir skrifast ekki allir á
höfundinn, eins og sjá má á loka-
myndinni fyrir hlé) auk þess sem
hæðst er að innflytjendum frá Asíu
og konur margsinnis sagðar geðveik-
ar þegar þær réttilega mótmæla því
að vera læstar inni. Steininn tekur
hins vegar úr þegar barnavændi er
ítrekað gert að aðhlátursefni.
Ljúgandi vinirnir tveir fá eðli
málsins samkvæmt úr mestu að
moða en eiginkonunum er nær ein-
vörðungu ætlað það hlutverk að vera
bláeygar og forviða gagnvart því sem
gengur á. Höfundur er spar á upplýs-
ingar um persónur sínar og því verða
þær lítið annað en fulltrúar kyns síns
og aldurs. Sem dæmi hafa áhorf-
endur ekki hugmynd um hvað Guð-
rún gerir við tíma sinn annað en að
útbúa nesti handa eiginmanninum og
jagast í atvinnulausum leigjand-
anum. Cooney hefði einnig þurft að
huga betur að notkun sinni á nútíma-
tækni til þess að láta unglingana ekki
líta út eins og kjána, því til að láta
plottið ganga upp þurfa unglingarnir
jafnfljótt og þeir hafa kynnst á netinu
að gleyma því að hægt er að nota far-
símann og ýmis samskiptaforrit til að
ná tali af öðrum.
Líkt og í farsanum Beint í æð, sem
frumsýndur var í Borgarleikhúsinu
haustið 2014, byrjar Úti að aka á
fullu spítti og helgast það ekki síst af
leiktextanum sjálfum. Gallinn við að
skrúfa orkustigið í botn frá fyrstu
setningu er að lítið sem ekkert svig-
rúm gefst til að skapa stígandi eftir
því sem lygavefurinn þéttist og ör-
væntingin eykst. Leikhópurinn allur
sýndi að hann ræður tæknilega al-
gjörlega við þann hraða sem leik-
skáldið og leikstjórinn leggja upp
með og sviðsumferðin gengur smurt,
en hraðinn í textameðferðinni kom
reglulega niður á framsögninni og
öskurleikstíll sumra leikara varð
óskaplega þreytandi til lengdar.
Einn ljósasti punktur sýningar-
innar er hversu vel gáskafulli líkam-
legi gamanleikurinn, svonefnt „slap-
stick“, er útfærður. Hilmir Snær
Guðnason sýnir mikla fimi þegar
hann stekkur og kastar sér yfir hús-
gögn í örvæntingarfullri tilraun til að
fela sig. Og Bergur Þór Ingólfsson
stelur hreinlega senunni þegar hann
loksins birtist eftir hlé í hlutverki
hins aldraða Guðmundar og sýnir
ótrúlega fimi hvort sem hann dettur
niður stiga eða er hlaupinn um koll.
Aðdáendur Cooney munu vafalítið
skemmta sér á Úti að aka, enda val-
inn maður í hverju rúmi. Hins vegar
er svolítið dapurlegt að jafngóðir
leikarar og listrænir stjórnendur og
hér er um að ræða fái ekki úr meiri
og bitastæðari efnivið að moða.
Ljósmynd/Grímur Bjarnason
Lygar „Aðdáendur Cooney munu vafalítið skemmta sér á Úti að aka, enda valinn maður í hverju rúmi. Hins vegar er
svolítið dapurlegt að jafngóðir leikarar […] fái ekki úr meiri og bitastæðari efnivið að moða,“ segir í rýni.
Á fullri ferð
Borgarleikhúsið
Úti að aka bbmnn
Eftir Ray Cooney. Íslenskun og heim-
færsla: Gísli Rúnar Jónsson. Leikstjórn:
Magnús Geir Þórðarson. Leikmynd og
búningar: Snorri Freyr Hilmarsson. Lýs-
ing: Björn Bergsteinn Guðmundsson.
Tónlist: Amabadama. Hljóð: Ólafur Örn
Thoroddsen. Leikgervi: Margrét Bene-
diktsdóttir. Leikarar: Hilmir Snær
Guðnason, Halldóra Geirharðsdóttir,
Ilmur Kristjánsdóttir, Hilmar Guð-
jónsson, Elma Stefanía Ágústsdóttir,
Halldór Gylfason og Bergur Þór Ingólfs-
son. Frumsýning á Stóra sviði Borgar-
leikhússins laugardaginn 4. mars 2017.
SILJA BJÖRK
HULDUDÓTTIR
LEIKLIST
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Úti að aka (Stóra svið)
Fim 9/3 kl. 20:00 3. sýn Mið 22/3 kl. 20:00 8. sýn Lau 1/4 kl. 20:00 aukas.
Fös 10/3 kl. 20:00 aukas. Fös 24/3 kl. 20:00 aukas. Mið 5/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 11/3 kl. 20:00 4. sýn Lau 25/3 kl. 20:00 9. sýn Fim 6/4 kl. 20:00 aukas.
Sun 12/3 kl. 20:00 5. sýn Sun 26/3 kl. 20:00 10. sýn. Fös 7/4 kl. 20:00 aukas.
Fös 17/3 kl. 20:00 6. sýn Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 20/4 kl. 20:00 aukas.
Lau 18/3 kl. 20:00 aukas. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 19/3 kl. 20:00 7. sýn Fös 31/3 kl. 20:00 aukas.
Sprenghlægilegur farsi eins og þeir gerast bestir.
Elly (Nýja sviðið)
Mán 13/3 kl. 20:00 Fors. Fim 30/3 kl. 20:00 aukas. Fös 28/4 kl. 20:00 16.sýn
Þri 14/3 kl. 20:00 Fors. Fös 31/3 kl. 20:00 7. sýn Lau 29/4 kl. 20:00 17.sýn
Mið 15/3 kl. 13:00 Fors. Lau 1/4 kl. 20:00 8. sýn Sun 30/4 kl. 20:00 18.sýn
Fim 16/3 kl. 13:00 Fors. Þri 4/4 kl. 20:00 9. sýn Fös 5/5 kl. 20:00 aukas.
Fös 17/3 kl. 20:00 Fors. Mið 5/4 kl. 20:00 10. sýn Lau 6/5 kl. 20:00 19.sýn
Lau 18/3 kl. 20:00 Frums. Fim 6/4 kl. 20:00 11. sýn Sun 7/5 kl. 20:00 20.sýn
Sun 19/3 kl. 20:00 2. sýn Fös 7/4 kl. 20:00 aukas. Mið 10/5 kl. 20:00 21. sýn
Þri 21/3 kl. 20:00 3. sýn Lau 8/4 kl. 20:00 12. sýn Fim 11/5 kl. 20:00 22.sýn
Mið 22/3 kl. 20:00 aukas. Þri 11/4 kl. 20:00 aukas. Fös 12/5 kl. 20:00 23.sýn
Fös 24/3 kl. 20:00 4. sýn Fös 21/4 kl. 20:00 13. sýn Mið 17/5 kl. 20:00 aukas.
Lau 25/3 kl. 20:00 5 sýn Lau 22/4 kl. 20:00 14. sýn Fim 18/5 kl. 20:00 30. sýn
Sun 26/3 kl. 20:00 6. sýn Sun 23/4 kl. 20:00 15 sýn Fös 19/5 kl. 20:00 aukas.
Þri 28/3 kl. 20:00 aukas. Fim 27/4 kl. 20:00 aukas. Lau 20/5 kl. 20:00 32. sýn
Samstarfsverkefni við Vesturport
MAMMA MIA! (Stóra sviðið)
Lau 8/4 kl. 20:00 Fös 28/4 kl. 20:00 Lau 20/5 kl. 20:00 152 s.
Þri 11/4 kl. 20:00 Lau 6/5 kl. 20:00 Fim 25/5 kl. 20:00 167 s.
Mið 19/4 kl. 20:00 Fös 12/5 kl. 20:00 Fös 26/5 kl. 20:00 176 s.
Lau 22/4 kl. 20:00 Fös 19/5 kl. 20:00 112 s. Lau 27/5 kl. 20:00 157 s.
Glimmerbomban heldur áfram!
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 12/3 kl. 13:00 aukas. Lau 1/4 kl. 13:00 aukas. Sun 30/4 kl. 13:00 97 s.
Sun 19/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 86 s. Sun 7/5 kl. 13:00 85 s.
Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Sun 23/4 kl. 13:00 102 s. Sun 14/5 kl. 13:00 123 s.
Nýr fjölskyldusöngleikur byggður á verðlaunasögu Andra Snæs Magnasonar
Vísindasýning Villa (Litla svið )
Sun 12/3 kl. 13:00 11. sýn Sun 26/3 kl. 13:00 aukas. Lau 8/4 kl. 13:00 aukas.
Sun 19/3 kl. 13:00
Táknmáls.
Lau 1/4 kl. 13:00 aukas.
Ferðalag fyrir börn um töfraheim vísindanna.
Illska (Litla sviðið)
Fös 10/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 20:00
Lau 11/3 kl. 20:00 Lau 1/4 kl. 20:00
Samstarfsverkefni við Óskabörn ógæfunnar - Aðeins þessar sýningar
Fórn (Allt húsið)
Fim 16/3 kl. 19:00 Frums. Mið 29/3 kl. 19:00 3. sýn Sun 9/4 kl. 19:00 5 sýn
Fim 23/3 kl. 19:00 2. sýn Sun 2/4 kl. 19:00 4. sýn
Sköpunarkrafturinn ræður ríkjum um allt leikhúsið
Kynfræðsla Pörupilta (Litla sviðið)
Þri 21/3 kl. 10:00 Mið 22/3 kl. 11:30 Fim 23/3 kl. 13:00
Þri 21/3 kl. 11:30 Mið 22/3 kl. 13:00 Fös 24/3 kl. 10:00
Þri 21/3 kl. 13:00 Fim 23/3 kl. 10:00 Fös 24/3 kl. 11:30
Mið 22/3 kl. 10:00 Fim 23/3 kl. 11:30
Uppistand Pörupilta um það sem allir eru að spá í.
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 12/3 kl. 13:00 Sun 26/3 kl. 13:00 Sun 2/4 kl. 13:00
Sun 12/3 kl. 16:00 Sun 26/3 kl. 16:00 Sun 2/4 kl. 16:00
Sun 19/3 kl. 13:00 Lau 1/4 kl. 13:00 Sun 9/4 kl. 13:00
Sun 19/3 kl. 16:00 Lau 1/4 kl. 16:00
Nýtt íslenskt barnaleikrit eftir Góa!
Húsið (Stóra sviðið)
Fim 9/3 kl. 19:30 Aðalæfing Lau 18/3 kl. 19:30 3.sýn Fim 30/3 kl. 19:30 6.sýn
Fös 10/3 kl. 19:30 Frums Fös 24/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 31/3 kl. 19:30 7.sýn
Fim 16/3 kl. 19:30 2.sýn Lau 25/3 kl. 19:30 5.sýn
Frumuppfærsla á áður ósýndu verki eins helsta leikskálds Íslendinga.
Tímaþjófurinn (Kassinn)
Fös 24/3 kl. 19:30 Frums Þri 4/4 kl. 19:30 6.sýn Fös 21/4 kl. 19:30 11.sýn
Lau 25/3 kl. 19:30 2.sýn Fim 6/4 kl. 19:30 7.sýn Lau 22/4 kl. 19:30
Mið 29/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 7/4 kl. 19:30 8.sýn Fim 27/4 kl. 19:30
Fim 30/3 kl. 19:30 4.sýn Sun 9/4 kl. 19:30 9.sýn
Fös 31/3 kl. 19:30 5.sýn Mið 19/4 kl. 19:30 10.sýn
Einstakt verk um ástina ■ um óslökkvandi þrá, höfnun og missi
Maður sem heitir Ove (Kassinn)
Lau 11/3 kl. 19:30 Lau 25/3 kl. 20:00
Varmahlíð
Lau 18/3 kl. 20:00
Egilsstaðir
Lau 1/4 kl. 19:30
Siggi Sigurjóns og Bjarni Haukur sameina krafta sína í bráðfyndnum einleik!
Djöflaeyjan (Stóra sviðið)
Lau 11/3 kl. 19:30 aukasýn
Allra síðasta sýning!
Óþelló (Stóra sviðið)
Fös 17/3 kl. 19:30
Sýningum lýkur í mars!
Mið-Ísland að eilífu (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 9/3 kl. 20:00 Fim 16/3 kl. 20:00 Fim 23/3 kl. 20:30
Fös 10/3 kl. 20:00 Fös 17/3 kl. 20:30 Fös 24/3 kl. 20:30
Fös 10/3 kl. 22:30 Fös 17/3 kl. 23:00 Fös 24/3 kl. 23:00
Lau 11/3 kl. 20:00 Lau 18/3 kl. 20:00
Lau 11/3 kl. 22:30 Lau 18/3 kl. 22:30
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 8/3 kl. 20:00 Mið 22/3 kl. 20:00
Mið 15/3 kl. 20:00 Mið 29/3 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
Gísli á Uppsölum (Kúlan)
Lau 13/5 kl. 17:00 Sun 14/5 kl. 17:00
Einstakt leikverk um einstakan mann í uppfærslu Kómedíuleikhússins.