Morgunblaðið - 27.05.2017, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017
NÝTT! TINTED LIP BALM
- VARASALVI MEÐ LIT.
Varasalvi sem mýkir varirnar, náttúrulegur litur og gefur glans. Inniheldur lífrænar
jurtaolíur og shea butter. Natrue vottað. Lesið meira um lífrænar vörur á weleda.is
Útsölustaðir Weleda: Heilsuverslanir og apótek um allt land.
Vertu vinur okkar á facebook www.facebook.com/weledaiceland
Ýmsir hafa furðað sig á að fjár-málaráðherra skyldi á dög-
unum viðra sig í viðtali í bol
merktum erlendri vandræðamynt
til að ræða gjaldmiðlamál.
Katrín Jak-obsdóttir lýsti
þeirri skoðun sinni
að ráðherrann væri
væntanlega ekki í
evrubolnum þar
sem hann ætti ekki
annað hreint til að
bregða yfir sig.
Ráðherra væri að
senda ákveðin
skilaboð.
Ekki þarf aðefast um að
þetta er rétt hjá
Katrínu, Benedikt
hlýtur að hafa verið að senda
skilaboð með bolnum.
En hvað ætli samstarfsmönnumhans finnist um þessi skila-
boð? Ætli þeir séu sáttir við þessa
framgöngu fjármálaráðherrans
og ætli þessi háttur verði hafður á
framvegis hjá ríkisstjórninni þeg-
ar koma þarf á framfæri sjón-
armiðum sem njóta hvorki stuðn-
ings innan né utan ríkisstjórnar?
Mega landsmenn vænta þess aðráðherrar skrýðist hér eftir
hinum ýmsu búningum til að koma
sérvisku sinni á framfæri?
Og af því að sumir horfa stund-um til fordæma erlendis og
telja allt best sem erlent er, ekki
síst þeir sem sjálfir eru gengnir í
ESB og evruna, hvernig halda
þeir menn að erlendum fjár-
málaráðherrum yrði tekið sem
klæddu sig í myntir annarra
ríkja?
Dettur einhverjum í hug aðslíkir sætu lengi eftir það?
Benedikt
Jóhannesson.
Er allt í lagi?
STAKSTEINAR
Katrín
Jakobsdóttir.
Veður víða um heim 26.5., kl. 18.00
Reykjavík 13 skýjað
Bolungarvík 8 léttskýjað
Akureyri 8 rigning
Nuuk 1 skýjað
Þórshöfn 13 léttskýjað
Ósló 21 heiðskírt
Kaupmannahöfn 21 heiðskírt
Stokkhólmur 19 heiðskírt
Helsinki 17 heiðskírt
Lúxemborg 25 heiðskírt
Brussel 27 heiðskírt
Dublin 23 skýjað
Glasgow 25 heiðskírt
London 24 heiðskírt
París 27 heiðskírt
Amsterdam 25 heiðskírt
Hamborg 23 léttskýjað
Berlín 23 heiðskírt
Vín 23 heiðskírt
Moskva 17 léttskýjað
Algarve 26 heiðskírt
Madríd 32 léttskýjað
Barcelona 21 léttskýjað
Mallorca 26 heiðskírt
Róm 23 léttskýjað
Aþena 21 skýjað
Winnipeg 17 léttskýjað
Montreal 12 rigning
New York 20 þoka
Chicago 16 þoka
Orlando 24 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
27. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:35 23:16
ÍSAFJÖRÐUR 3:01 23:59
SIGLUFJÖRÐUR 2:43 23:44
DJÚPIVOGUR 2:56 22:54
Norsk-íslenska síldin er í ár fyrr á
ferð í fæðugöngu vestur á bóginn
heldur en undanfarinn tæpan aldar-
fjórðung. Sérfræðingar varast að
draga of miklar ályktanir af því þótt
síldin finnist einhverjum vikum fyrr
heldur en verið hefur. Það er nánast
eingöngu eldri síld sem vart hefur
orðið við í íslenskri lögsögu, en aust-
ar í hafinu, undan ströndum Noregs,
hafa rannsóknarskip fundið yngri
síld. Er það einkum árgangur frá
2013 en vísbendingar frá fyrri leið-
öngrum hafa bent til að hann kunni
að vera stór og eru talsverðar vonir
bundnar við hann.
Í vikunni lauk tæplega þriggja
vikna leiðangri Árna Friðrikssonar
sem hafði það meginmarkmið að
meta magn og útbreiðslu norsk-ís-
lenskrar síldar og kolmunna austur
og norðaustur af landinu. Þessi ár-
legi leiðangur var nú farinn í 23. árið
í röð og taka þátt í honum auk Ís-
lendinga rannsóknarskip frá Noregi,
Færeyjum, Danmörku og Rússlandi.
Einkum 12 og 13 ára gömul síld
Bráðabirgðaniðurstöður liggja
fyrir úr íslenska hlutanum og sýna
þær mun meiri útbreiðslu og magn á
norsk-íslenskri síld innan landhelg-
innar austur af landinu en verið hef-
ur undanfarin vor. Eftir hrygningu
við Noreg heldur síldin til vesturs í
fæðuleit og í maí er síldin ýmist ný-
komin í lögsögu Íslands eða enn að
ganga frá hrygningarsvæðunum.
Í íslenska hluta leiðangursins
fannst nær eingöngu eldri hluti
stofnsins, einkum 12 og 13 ára gömul
síld, sem hefur verið uppistaðan í
veiði síðustu ár. Síldin hrygnir að
stórum hluta við Møre í Noregi í
mars. Ungsíld frá uppeldissvæðum í
Barentshafi og norsku fjörðunum fer
einnig í fæðugöngur en er þá norðar
og austar en sú eldri. aij@mbl.is
Síldin óvenjusnemma á ferðinni
Nánast eingöngu eldri síld Vonir eru bundnar við árganginn frá 2013
Auk rannsókna á norsk-íslensku
síldinni var magn kolmunna austur
og norðaustur af landinu metið í
leiðangri Árna Friðrikssonar. Þá
voru gerðar umfangsmiklar mæl-
ingar til að kanna ástand hafsins og
vistkerfisins, m.a. með rannsóknum
á magni átustofna.
Á Íslands-Færeyjahryggnum
varð vart við kolmunna, svo og í
hlýsjónum suðaustur af Jan Mayen.
Þéttleikinn var að öllu jöfnu lítill.
Kolmunninn var blandaður að
stærð en var öllu smærri norðar.
Nær ekkert varð vart við makríl í
leiðangrinum, en á undanförnum
árum hafa einungis fáeinir fiskar
fengist í einstaka togum milli Ís-
lands og Færeyja. Þessar niður-
stöður gefa því ekki tilefni til að
álykta um makrílgengd inn á ís-
lensk hafsvæði í sumar.
Leiðangursstjóri var Guðmundur J.
Óskarsson og skipstjóri Ingvi Frið-
riksson.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vísindi Árni Friðriksson á útleið.
Nær ekkert
af makríl