Morgunblaðið - 27.05.2017, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 27.05.2017, Qupperneq 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á um sem vilja birta upplýsingar um mælikvarða þeirra varðandi sam- félagsábyrgð. Birting á ESG-upplýs- ingum verður ekki skylda fyrir skráð fyrirtæki, en Nasdaq Nordic hefur útbúið leiðbeiningarnar til að aðstoða skráð félög sem hafa einsett sér að birta slíkar upplýsingar. Þær eru því valfrjálsar og óskuldbindandi og er ekki ætlað að keppa við, leysa af hólmi eða bæta neinu við þá ramma um birtingar sem þegar eru við lýði, eins og segir í upplýsingum frá kaup- höllinni. Spurður nánar um ástæðu þess að leiðbeiningarnar eru gefnar út segir Harvey að Nasdaq hafi áttað sig á því að fyrirtækið gæti átt þátt í að bæta þennan þátt í rekstri félaganna. „Það eru svo mörg viðmið og mæli- kvarðar í gangi að það getur verið erfitt að finna rétta upphafspunktinn í þessum málum, og fjárfestar gætu átt erfitt með að bera fyrirtækin saman þegar kemur að þessum atrið- um.“ Harvey hvetur öll skráð fyrirtæki til að huga að sjálfbærni. „Það að fylgjast með og birta sjálfbærnigögn, gæti orðið eðlilegur hluti af tilkynn- ingum frá fyrirtækjum. Hagsmuna- aðilar eru einnig farnir að kalla meira eftir svona gögnum og við viljum að- stoða fyrirtækin við að fóta sig í þess- um nýja veruleika.“ Hvernig geta nýju leiðbeiningarn- ar hjálpað fyrirtækjunum? „Sumt í leiðbeiningunum eru mælikvarðar sem eru ekki skil- greindir sem fjárhagslegir, en þeir munu hafa fjárhagslegar afleiðingar. Margar rannsóknir hafa sýnt fram á sterka fylgni á milli fyrirtækja sem huga að sjálfbærni og lægri fjár- magnskostnaði, minna flökti á hluta- bréfaverði og betra virðismati yfir lengri tíma. Aðrir hlutir eins og lægri starfsmannavelta, vörumerkjastyrk- ur og orðspor, tengjast þessu einnig sterkt. Þannig að það er margt á þessu að græða,“ segir Harvey. Betri heimur Harvey er sannfærður um að leið- beiningarnar geti bætt markaðina og Jörðina alla. „Ég tel að gegnsæi, aðgengi og sjálfbærni í flæði fjárfestinga geti gert kraftaverk. Hagkerfi og mark- aðir geta haft áhrif til góðs og stuðlað að réttlátari, sjálfbærari og heild- rænni heimi. Okkur er ekki einungis umhugað um okkar iðnað og skjól- stæðinga, heldur alla Jörðina.“ Kauphallir í kjöraðstöðu til að leiðbeina um samfélagsábyrgð Morgunblaðið/Þórður Upplýsingar Nokkur íslensk félög eru framarlega í sjálfbærniupplýsingagjöf.  Fylgni milli sjálfbærni og fjármagnskostnaðar  Leiðbeiningar óskuldbindandi Samtakamáttur » Nasdaq var einn stofnaðila að samtökum sjálfbærra kaup- halla hjá Sameinuðu þjóðunum árið 2012. » Sjö kauphallir samstæð- unnar á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum slógust í hópinn í nóvember 2016. 27. maí 2017 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 99.63 100.11 99.87 Sterlingspund 129.26 129.88 129.57 Kanadadalur 73.98 74.42 74.2 Dönsk króna 15.045 15.133 15.089 Norsk króna 11.937 12.007 11.972 Sænsk króna 11.481 11.549 11.515 Svissn. franki 102.53 103.11 102.82 Japanskt jen 0.8948 0.9 0.8974 SDR 137.77 138.59 138.18 Evra 112.01 112.63 112.32 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 138.4872 Hrávöruverð Gull 1265.0 ($/únsa) Ál 1953.0 ($/tonn) LME Hráolía 54.15 ($/fatið) Brent ● Fyrirtækið Ker- ecis hlaut Vaxt- arsprotann 2017, en velta félagsins jókst um 100% milli ára. Við- urkenningin er veitt til að vekja at- hygli á góðum ár- angri sprotafyr- irtækja í örum vexti, samkvæmt tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins. Kerecis er lækningavörufyrirtæki sem notar roð til að græða sár og styrkja líkamsvefi. Kerecis hlaut Vaxtar- sprotann 2017 Afhending fór fram í Kaffi Flóru. STUTT hugverkasviði Samtaka iðnaðar- ins. Í ráðinu eru Ragnheiður H. Magnúsdóttir hjá Marel, Kristinn Árni Lár Hróbjartsson hjá Ko- libri, Pétur Már Halldórsson hjá Nox Medical, Svana Helen Björns- dóttir hjá Stika, Frosti Ólafsson hjá ORF líftækni, María Braga- dóttir hjá Alvogen, Jóhann Þór Jónsson hjá Advania, Valgerður Hrund Skúladóttir hjá Sensa, Íris Ólafsdóttir hjá Kúla 3D, Erlendur Steinn Guðnason hjá Vizido, Hilm- ar Veigar Pétursson og Stefanía G. Halldórsdóttir hjá CCP og Kristinn Þórðarson og Helga Mar- grét Reykdal hjá framleiðslufyr- irtækinu Truenorth. Nýtt Hugverkaráð Samtaka iðn- aðarins hefur verið skipað, en rúmlega ár er frá því ráðið var sett á laggirnar. Í tilkynningu frá Samtökum iðnaðarins segir að hlutverk ráðs- ins sé að styrkja þau málefni sem eru sameiginleg fyrirtækjum sem starfa á alþjóðamörkuðum og byggja afurðir sínar og þjónustu á tækni og hugverki. „Markmið ráðsins er að efla samkeppn- ishæfni hugverka- og tæknifyr- irtækja á Íslandi með því að vera leiðandi afl í hagsmuna- og stefnumálum þeirra,“ segir í fréttinni. Í ráðinu sitja fulltrúar sjö starfsgreinahópa sem tilheyra Nýtt hugverka- ráð SI skipað  Eflir samkeppnishæfni fyrirtækja Hugverk Fulltrúar starfsgreinahópanna sem mynda Hugverkaráð SI. Atvinna Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Mygla ogmeindýr í mannvirkjum Nýsköpunarmiðstöð Íslands kynnir fræðslufund á sviði Rannsóknastofu byggingariðnaðarins Nýsköpunarmiðstöð Íslands í samvinnu við Mycoteam í Noregi heldur fræðslufund ummyglu og meindýr í mannvirkjum. Mánudaginn 29. maí nk. frá kl 15:00 til 16:00 Prófessor Ólafur H. Wallevik forstöðumaður Rb á Nýsköpunar- miðstöð Íslands opnar fundinn en fyrirlesarinn er dr. Johan Mattsson líffræðingur og yfirmaður rannsókna hjá Mycoteam. Erindi hans er um myglu í mannvirkjum, en jafnframt mun hann fjalla um baráttu við ýmis meindýr í mannvirkjum, svo sem veggjatítlur. Mycoteam hefur yfir 30 ára reynslu á rannsóknum á myglu- sveppi, loftgæðum innandyra, rakavandamálum og ýmsum meindýrum sem valda m.a. skemmdum á trévirki bygginga. Fræðslufundurinn verður haldinn í húsakynnum Nýsköpunar- miðstöðvar Íslands að Árleyni 8. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Fyrirlesturinn verður á ensku. Skráning í tölvupósti á shruthi@nmi.is Viðburðurinn er hluti af nýju fræðsluátaki Rannsóknastofu byggingariðnaðarins (Rb) á Nýsköpunarmiðstöð Íslands fyrir almenning og fagaðila í byggingariðnaði. BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is „Kauphallir eru í kjöraðstöðu, sem aðili mitt á milli fyrirtækja, fjárfesta og löggjafans, til að setja fram leið- beiningar um samfélagslega ábyrgð skráðra fyrirtækja,“ segir Evan Har- vey í samtali við Morgunblaðið, en Harvey fer með málefni sam- félagslegrar ábyrgðar fyrir- tækja hjá Nas- daq. Hann mun halda erindi um málið á morgun- verðarfundi Nas- daq á þriðjudaginn næsta á Hilton Nordica undir yfirskriftinni Nýjar ESG leiðbeiningar Nasdaq Nordic – fyrir heilbrigðara atvinnulíf og jörð, en skammstöfunin ESG stend- ur fyrir Environmental, Social og Governance, eða umhverfismál, sam- félagsmál og stjórnarhætti. Nýjar leiðbeiningar ekki skylda Nýverið gáfu kauphallir Nasdaq á Norðurlöndunum og í Eystrasalts- ríkjunum, út valfrjálsar leiðbeining- ar til stuðnings skráðum fyrirtækj- Evan Harvey

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.