Morgunblaðið - 27.05.2017, Síða 25

Morgunblaðið - 27.05.2017, Síða 25
UMRÆÐAN 25 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 • AMT eru hágæða pönnur úr 9 mm þykku áli • Allar pönnur mega fara inn í ofn við allt að 240° hita • 3 ára ábyrgð á verpingu • Ný byltingakennd viðloðunarfrí húð sem er sterkari en Teflon og án eiturefna • Nothæf fyrir allar eldavélar • Má setja í uppþvottavél • Kokkalands- liðið notar AMT potta og pönnur Úlfar Finnbjörnsson notar AMT potta og pönnur Allir velkomnir Progastro | Ögurhvarfi 2, Kópavogi Sími 540 3550 | progastro.is Opið alla virka daga kl. 9–18. Allt fyrir eldhúsið Þýskar hágæða pönnur frá AMT Ný sending WORLD’S BESTPAN „ “ THE * “Theworld‘s best pan” according to VKD, largest German Chefs Association * LAUGAVEGI 24 - 101 REYKJAVÍK SÍMI: 552 0800 SKIPAGÖTU 7 - 600 AKUREYRI SÍMI: 462 4646 GENUINE SINCE 1937 Nú eru meir en 20 ár liðinsíðan taflmennska á net-inu hófst fyrir alvöru ogvinsælasti þjónninn í þá daga var Internet chess club, ICC. Menn tóku oft góðar rispur á þess- um vettvangi en fyrir 15 árum eða svo hætti greinarhöfundur að tefla þarna svo heitið gæti og lágu til þess ástæður sem ekki er þörf á að rekja hér. Ágætur tölvumaður og vefhönnuður, Ingvar Þ. Jóhann- esson, kom mér aftur á sporið og setti upp aðgang á Chess.com. Þessi vefur slær flestu við sem gerist á netinu; þarna má finna ágætar æf- ingar fyrir börn, byrjendur og lengra komna, alls kyns vídeó og sagnfræðilegar upprifjanir. Áskrif- endur eru kringum 18 milljón tals- ins og á degi hverjum eru tefldar yf- ir tvær milljónir skáka. Þeir sem hafa rangt við eiga ekki sjö dagana sæla á Chess.com; „vélarnar“ hafa það hlutverk að þefa þá uppi sem nota hugbúnað til að bæta árangur sinn. Og meiri háttvísi er ríkjandi; menn semja yfirleitt jafntefli í dauð- um jafnteflisstöðum en því var ekki alltaf að heilsa á ICC. Vinsælustu tímamörkin eru 3 0 og „bullett“, 1 0, þ.e. mínúta á alla skák án viðbót- artíma, er að sögn þeirra sem þekkja, stórkostleg rússíbanareið. Þar er Hikaru Nakamura kóng- urinn en hann hefur skrifað bók um efnið sem vel gæti heitið: klækja- brögð götustráks á skáksviðinu. Chess.com virðist laða til sín alla bestu skákmenn heims og heldur reglulega hraðskákmót. Eitt þeirra nefnist „Titled tuesday“ eða Titil- hafar á þriðjudegi. Tímamörkin er 3 2 sem þýðir að tvær sekúndur bæt- ast við eftir hvern leik. Þessi tíma- mörk eru notuð á heimsmeist- aramótunum í hraðskák. Þau krefjast gífulegrar einbeitni, minnsta truflun í nærumhvefinu getur kostað, síminn hringir, eða: „ … ertu til í að fara út með ruslið“ – nei elskan, ég er að tefla við heimsmeistarann“. En þegar öllu er á botninn hvolft dásamar maður enn og aftur þenn- an frábæra samruna tölvutækni og skáklistar. Fyrr í þessum mánuði, nánar tiltekið rétt eftir kl. 8 þriðju- dagkvöldið 2. maí, hafði ég byrjað vel á „Titled tuesday“ og beið spak- ur eftir næsta mótherja: Helgi Ólafsson – Magnús Carlsen Drottningarbragð 1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. Rc3 a6 5. cxd5 exd5 6. Bf4 Bd6 7. Bg3 Bf5 8. e3 O-O 9. Hc1 He8 10. Be2 c6 11. O-O Bxg3 12. hxg3 Rbd7 13. b4 De7 14. a3 b5 15. Rd2 a5 16. g4 axb4 17. axb4 Bg6 18. g5 Re4 Áður en lengra er haldið vill greinarhöfundur taka það strax fram að afsakanir fyrir tapi eru hér ekki teknar gildar, ástæðan fyrir tapi er yfirleitt vitlaus ákvörðun einhvern tíma í skákinni. „Vélarnar“ gera ekki mikinn greinarmun á með hvorum riddaranum tekið er á e4. Mistökin koma síðar. En nánari at- hugun á stöðunni leiðir í ljós að eftir 19. Rdxe4 dxe4 20. d5! á svartur við ramman reip að draga. 19. Rcxe4 dxe4 20. Hxc6 Dxg5 21. Hc7 Bf5 22. Db3? Afleikur. Hvíta staðan er aðeins betri eftir 22. g3. Í framhaldinu gef- ur Magnús engin færi. 22. … Bh3 23. g3 h5 24. Hfc1 h4 25. Kh2 Be6 26. Dc2 hxg3+ 27. fxg3 Rf6 28. Rf1 Ha2 29. Dd1 Dh5+! - og hvítur gafst upp. Eftir tveggja klukkustunda mótshald vann Magnús Carlsen með yfirburðum, hlaut 9 ½ vinning af tíu mögulegum. Nakamura varð í 2.-3. sæti með 8 vinninga. Grein- arhöfundur hlaut 5 ½ vinning, jafn- marga og hinn íslenski þátttakand- inn „Eldur 16“ – Jóhann Hjartarson. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Morgunblaðið/SÍ Íslandsmeistari í annað sinn Rósa Guðbjartsdóttir, formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar, afhenti hinum nýbakaða Íslandsmeistara Guðmundi Kjart- anssyni hinn glæsilega verðlaunagrip gefinn af VISA við verðlaunaafhend- ingu um síðustu helgi. Var myndin tekin við það tækifæri. Titilhafar á þriðjudegi Tilgangur Sprengi- sandslínu er að bæta raforkukerfi landsins, auka flutningsgetu þess, öryggi raf- orkuafhendingar og gæði raforku. Í kerfisáætlunum Landsnets er lítið fjallað um stofnkostn- að einstakra fram- kvæmda. Þó er í skýrslu Landsnets frá febrúar 2015 „Lagning jarðstrengja á hærri spennum í raforkuflutningskerfinu“ nefnt að kostnaður við 220 kV loft- línu yfir Sprengisand sé áætlaður 4086 MISK eða 36,5 MUSD miðað við gengi 112 ISK/USD. Forsendur Sprengisandslínu um 6% reiknivexti, 30 ára líftíma, árleg- an rekstrar- og viðhaldskostnað sem nemur 2,5% af stofnkostnaði og orkugetu 170 GWh/ári leiða til kostnaðarverðs raforku upp á 21 USD/MWh. Þá á eftir að taka tillit til og meta aðra jákvæða þætti fyrir flutnings- kerfið, en einnig neikvæð umhverfis- áhrif. Það kann að hljóma undarlega að flutningslína fái orkugetu, en með orkugetu Sprengisandslínu er átt við þá aukningu í markaði sem lands- kerfið gæti annað með tilkomu lín- unnar. Nefndur líftími er notaður við arð- semismat en með sæmilegu viðhaldi gæti raunverulegur líftími hæglega orðið tvöfalt lengri. Til samanburðar er kostnaðarverð raforku frá vatnsafls- og jarð- varmavirkjunum 40 USD/MWh. Sem orkuaukandi að- gerð í raforkukerfinu er Sprengisandslína þess vegna mjög hag- kvæm framkvæmd. Í ljósi þess ættu orkufyrirtækin og sam- tök náttúruverndar að sjá sóma sinn í því að taka höndum saman um að Sprengisands- lína verði að raunveru- leika og þá haganlega komið fyrir í landslagi þannig að vel fari. Sjálfsagt væri að leggja heils árs akveg meðfram línunni til að opna víðerni hálendisins fyrir ferðafólki. Sprengisandslína Eftir Skúla Jóhannsson Skúli Jóhannsson Höfundur er verkfræðingur. skuli@veldi.is » Orkufyrirtækin og samtök náttúru- verndar ættu að taka höndum saman um að Sprengisandslína verði að raunveruleika. Fasteignir Móttaka aðsendra greina Morgunblaðið er vettvangur lif- andi umræðu í landinu og birtir aðsendar greinar alla útgáfudaga. Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Kerfið er auðvelt í notk- un og tryggir öryggi í samskiptum milli starfsfólks Morgunblaðsins og höfunda. Morgunblaðið birtir ekki greinar sem einnig eru send- ar á aðra miðla. Að senda grein Kerfið er aðgengilegt undir Morgunblaðslógóinu efst í hægra horni forsíðu mbl.is. Þegar smellt er á lógóið birtist felligluggi þar sem liðurinn „Senda inn grein“ er valinn. Í fyrsta skipti sem inn- sendikerfið er notað þarf notand- inn að nýskrá sig inn í kerfið. Ít- arlegar leiðbeiningar fylgja hverju þrepi í skráningarferlinu. Eftir að viðkomandi hefur skráð sig sem notanda í kerfið er nóg að slá inn kennitölu notanda og lykilorð til að opna svæðið. Hægt er að senda greinar allan sólarhringinn. Atvinna

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.