Morgunblaðið - 27.05.2017, Síða 31

Morgunblaðið - 27.05.2017, Síða 31
við systkinin ævinlega þakklát. Um árabil rak Pálmar flutn- ingafyrirtæki sem þjónaði upp- sveitum Árnessýslu, hætti hann þeim rekstri fyrir nokkru og hugði nú gott til að geta snúið sér alfarið að garðyrkjunni með konu sinni, en Ragnhildur hefur rekið SR-grænmeti á Flúðum í mörg ár. Pálmar vildi hvers manns vanda leysa, mörg ungmennin sem starfað hafa hjá þeim hjón- um áttu hans trúnað og þáðu hans ráð, þau sjá nú á bak vel- gjörðarmanni sínum. Við hugsum til Svövu sem missir nú annan son sinn langt um aldur fram. Megi góður Guð styðja og styrkja systur okkar og fjöl- skylduna alla. Það er allra að missa, en fyrir mestu er að hafa átt. Fyrst og fremst fyllist hugur okkar þakk- læti fyrir að hafa átt hann að samfylgdarmanni öll þessi ár, allar gleðistundirnar sem við átt- um saman og samveru í blíðu sem stríðu, þau kynni verða ávallt rík í hugum okkar. Við öll sem þekktum hann munum ætíð minnast hins lífsglaða manns og góða drengs. Steinunn, Sigríður, Þorfinnur, Guðríður og Bjarney. Mildir, fræknir menn best lifa, sjaldan sút ala. Þessi heilræði standa í upp- hafi 48. vísu Hávamála. Vísu- brotið segir að sönn lífsgleði sé fólgin í örlæti, hreysti og áhyggjuleysi. Þegar við systkinin hugsum til baka um Pálmar Þorgeirsson, hennar Ragnhildar móðursystur, þá er það þakklæti sem skín í gegnum allar góðar minningar. Þakklæti fyrir það að hafa feng- ið að kynnast Pálmari. Hann var höfðingi heim að sækja, greið- vikinn og örlátur á sjálfan sig. Miðdepill athyglinnar, afar vin- sæll, betri sagnamaður vand- fundinn. Mannamót, útilegur, af- mæli, fermingar, ættarmót Alltaf var hann hrókur alls fagn- aðar. Mætti fyrstur, var síðastur heim og var alltaf langflottastur. Þær eru óteljandi sögurnar sem Pálmar sagði af sér og sín- um og við grétum öll af hlátri yf- ir. Eftirfarandi saga er e.t.v. ekki viðeigandi, en samt fær hún að flakka sem eitt lítið brot. Þannig var það að faðir okkar fékk það hlutverk að vera sér- legur ráðgjafi Pálmars og Ragn- hildar í raflögnum í nýja húsinu á Vesturbrúninni. Eitt kvöld hringdi síminn í Kóngsbakkan- um og í upphafi færði Pálmar þær gleðifréttir að þau Ragn- hildur væru nýbúin að kaupa sér forláta vatnsrúm. Samtalið tók óvænta stefnu þegar Pálmar spurði pabba hvað væri til ráða því hann væri í stökustu vand- ræðum með Ragnhildi. Hún væri í svo miklu stuði í nýja vatnsrúminu! Pabbi maldaði í móinn og fannst það varla við- eigandi að hann ráðlegði honum með það. Pálmar svaraði að bragði, með sínum einstaka tal- anda: Já, sko það virðist vera einhver útleiðsla í vatnshitaran- um á nýja rúminu og Ragnhildur fær í sig rafstuð, ég finn ekki fyrir neinu. Við syrgjum góðan vin. Hugur okkar er hjá Ragnhildi frænku, Láru Bryndísi, Rúnari, Svavari Geir og öllum aðstandendum. Hafðu þökk fyrir samfylgdina, Pálmar Þorgeirsson. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum.) Aðalheiður, Sæmundur og Atli Helgabörn. Á björtum og fögrum maí- morgni barst mér sú harma- fregn að Pálmar Þorgeirsson hefði orðið bráðkvaddur. Ósjálf- rátt fóru í gegnum huga minn minningar um einstök kynni af frábærum félaga og vini. Kynni okkar hófust fyrir tæpum 40 ár- um þegar ég fór að heimsækja frænku hans á næsta bæ. Fljótt gerðist ég áskynja um mann- kosti Pálmars, jákvætt hugarfar og bjartsýni. Ungur fann hann sína góðu konu, Ragnhildi, og settu þau saman bú og varð þriggja barna auðið sem bera foreldrum sínum fagurt vitni. Það gerðist ósjálfrátt að ég lað- aðist að þessum stóra og sterka manni sem gerði hverja stund betri. Áhugamál hans lágu á víðu sviði enda var hann virkur í sam- félagi sínu og á hann hlustað. Hestamennska var okkur báðum hugleikin enda var hann liðtæk- ur hestamaður og fékkst við tamningar með Þorgeiri föður sínum á unglingsárum. Nokkrar ferðir fórum við Pálmar saman á landsmót hestamanna og í þeim ferðum naut Pálmar sín vel. Það var ekki ónýtt að fara með Pálm- ari, hann þekkti menn úr öllum fjórðungum landsins. Að skiptast á skoðunum við Pálmar voru sælustundir þar sem hann naut sín. Hann hafði sterkar skoðanir en gætti þess að hlusta og virða skoðanir viðmælenda. Nýverið sat ég veislu þar sem ég hafði Pálmar sem sessunaut. Að þetta væru okkar síðustu sam- fundir rann mér ekki í grun. Pálmars verður sárt saknað í samfélagi sínu. Hans einstöku mannkosta, bjartsýni og trúar. Það var ekki til vandamál sem óx honum í augum. Það síðasta sem fór okkur í millum var að nú væri orðið mál að hittast og taka spjall. Sá fundur verður að bíða um sinn. Minning Pálmars mun lifa sem frábærs persónuleika sem bætti allt sem hann kom nærri. Kæra Ragnhildur, börn og barnabörn, megi minning um góðan eiginmann og föður lifa. Sverrir Ágústsson. Nú máttu hægt um heiminn líða, svo hverju brjósti verði rótt, og svæfa allt við barminn blíða, þú bjarta heiða júlínótt. Hver vinur annan örmum vefur og unga blómið krónu fær. Þá dansar allt, sem hjarta hefur, er hörpu sína vorið slær. (Þorsteinn Erlingsson) Elsku frændi, þá hafa leiðir skilið. Mann setur hljóðan eftir algjörlega ótímabært fráfall góðs frænda. Hvers vegna? Við Pálmar áttum samleið alla mína ævi og enn meiri eftir því sem árin liðu og ég komst til vits og ára. Við áttum ýmsa samleið bæði í starfi og leik. Allir sem þekktu Pálmar vita að þar fór sterkur karakter, sem hafði gaman af því að vera innan um fólk og taka þátt í gleði þess og hafði gaman af því að þjónusta fólk og uppfylla þarfir þess og væntingar. Hann rak flutninga- þjónustu í uppsveitum Árnes- sýslu í áratugi, eða allt frá árinu 1980, þegar hann stofnaði fyr- irtækið Flúðaleið. Það má með sanni segja að rétt sé það sem kom fram í umfjöllun í Morg- unblaðinu, árið 1980, þegar fjallað var um 20 ára afmæli Flúðaleiðar, en þar sagði: „Það er mikils virði hverju byggðarlagi að hafa örugga flutningaþjónustu þar sem traustir menn annast flutninga til og frá viðkomandi sveitarfé- lagi. Þessir dugmiklu bílstjórar, sem eru eins konar konungar veganna, leggja sig fram um að koma vörum á áfangastað, í hvernig veðrum og færð sem er, til eða frá sínum kaupstað, kaup- túni eða sveit.“ Svona var Pálmar frændi minn. Efir að ég tók við starfi svæðisstjóra Eimskips á Suður- landi, m.a. að áeggjan Pálmars, urðu samskipti okkar enn meiri og oft á tíðum mörg símtöl á viku. Við veittum hvor öðrum góð ráð og ræddum margt varð- andi það sem við vorum að sýsla hverju sinni. En margt áttum við órætt, sem átti að ræða við betra tækifæri, tækifæri sem nú er runnið okkur úr greipum, að sinni. Elsku Ragnhildur, Lára Bryndís, Rúnar, Svavar og fjöl- skyldur, megi góður Guð veita ykkur styrk í sorg ykkar. Helgi Sigurður Haraldsson. Elsta minning mín um kæran frænda og besta vin er frá bað- stofunni í Dalbæ þegar Pálmar kom í heimsókn til ömmu sinnar og afa, heiðurshjónanna Mar- grétar og Páls, þar sem ég var í sveit. Hann var elsta barnabarn- ið og ég systursonur Páls. Við Pálmar áttum þarna náðuga daga, afi sagði okkur sögu eftir matinn, lagði svo Tímann yfir andlitið og sofnaði. Þarna hófst vinátta okkar sem engan skugga bar á til hinstu stundar. Pálmar var ungur orðinn fullgildur vinnumaður heima á Hrafnkels- stöðum. Við hittumst hinsvegar oft í sundlauginni á Flúðum á kvöldin en þar var aðalsam- komustaður krakkanna í sveit- inni. Ef Pálmar var á undan mér í laugina, gat ég gengið að hon- um vísum í hópi aðdáenda af veikara kyninu. Stundum var hann vart sjáanlegur vegna stelpugers kringum hann í laug- inni. Mörgum þótti nóg um kvenhyllina og hefðu sjálfsagt gjarnan viljað að henni væri jafnar skipt. Pálmar dvaldi oft hjá okkur á Laufásveginum og ég fór stoltur í bæinn með þessu glæsimenni, enda var hann „langflottastur“. Hann fór ungur á vetrarvertíð á Mb. Ásþór frá Reykjavík og ég fylgdi honum oft til skips. Í landlegum skrapp hann stundum í Glaumbæ. Þeg- ar hann kom heim á Laufásveg síðla nætur, með svið og sam- lokur frá BSÍ fyrir okkur báða, upplýsti hann um gang kvölds- ins. Okkur á Laufásveginum þótti gott að hafa Pálmar í hús- inu og mamma sá vart sólina fyrir frænda sínum. Það hvarfl- aði aldrei að henni að hann, eða ég, ætti nokkurn þátt í dular- fullu matarhvarfi úr frystikist- unni í kjallaranum eða öðrum einkennilegum atvikum sem ekki áttu alveg augljósar orsakir. Þegar sjómennsku lauk fór hann æ oftar austur um helgar. Heimahagarnir toguðu eða öllu heldur Ragnhildur, heimasæta á Spóastöðum, sem komin var í líf Pálmars til að vera, báðum til gæfu. Ragnhildur fór í skóla í bænum og þau hófu búskap á Laufásveginum. Síðar byggðu þau sér reisulegt hús á Flúðum og Pálmar keypti flutningafyr- irtæki og rak í 36 ár. Honum lík- aði starfið, enda fannst honum maður manns gaman. Hann hafði einstaka þjónustulund og góða skipulagshæfileika og hefði með réttu átt að uppskera eins og til var sáð. En síðustu árin var einfaldlega ekki rétt gefið í þeim leik. Ragnhildur gerðist með árunum umsvifamikill garð- yrkjubóndi og eldhugi á þeim vettvangi. Á síðasta ári þótti full- reynt með flutningastarfsemina. Það var erfið ákvörðun. Pálmar söðlaði um og sneri sér alfarið að garðyrkjunni með Ragnhildi af endurnýjuðum krafti. Þar stóðu þau þétt saman sem fyrr og það var mikill hugur í honum að gera enn betur og hann hlakkaði til komandi sumars. Við Pálmar gátum alltaf talað saman – talað oft og lengi. Ekkert umræðuefni var svo ómerkilegt eða erfitt að okkur tækist ekki að leysa mál- in. Pálmar var stór í sniðum á alla lund, bóngóður og tryggða- tröll gagnvart mér og mínum og fjölskyldu minni lagði hann oft lið. Fyrir það er ég þakklátur en fyrst og fremst er ég á þessari stundu þakklátur fyrir að hafa átt vináttu hans. Veri Pálmar Þorgeirsson, vinur minn og frændi, kært kvaddur. Guðmundur Osvaldsson. Meira: mbl.is/minningar Við hittumst síðast við útför Mása á Geysi. Þá var ekki að sjá á þér fararsnið, þrátt fyrir þá stóru ferð sem þú áttir þá fyrir höndum, strax daginn eftir. Því er mér og öðrum svo brugðið. Pálmar hefur svo sem marga ferðina farið fyrr án þess að kveðja, bara alltaf komið aftur til baka. Ég kynnist þessum öðlingi upp úr 7́9 og höfum við átt marga gleðistundina síðan. Pálmar var einn af þeim sem alla sína tíð skreyttu sveitina, með sjálfum sér, „langflottustum“, með þjónustu sinni við sveitung- ana, orðfæri sínu og athöfnum. Þarna fór maður, mikill á velli og fagur sýnum, gjarnan hrókur alls fagnaðar, hvort heldur á heimili sínu eða Laufskálarétt- um, reyndar hvar sem hann fór. Sannkölluð skrautfjöður sér- hvers hóps. Það verða snautleg- ar réttir Uppsveitanna eftir þetta. Meðan ég bjó á Flúðum áttum við Pálmar, ásamt völdum hópi, ófáar sleðaferðirnar í Klakkinn í Kerlingarfjöllum um helgar, hvar við sprautuðum brekkurnar á daginn og nutum svo skrínukosts að kveldi. Ógleymanlegar stundir og ekki síst vegna þess að Pálmar var með í för, og alla tíð langlang- flottastur, eins og hann orðaði það sjálfur. Þarna fór ekki bara skemmtilegur, heldur og örugg- ur og þægilegur ferðafélagi. Í dag má ég þakka honum fyrir að vera sjálfur á lífi. Ég kenndi brjóstsviða en hafði hugsað mér að sinna því síðar. Þá berst mér andlát Pálmars, sem réði því að ég leitaði læknis fyrr en ella, og mátti ekki seinni vera. Ekki efa ég að honum verði tekið höndum tveim í hæstu hæðum, þar hlýtur að vera þörf fyrir svona menn, ekki síður en hér. Við söknum þín öll, og minn- umst. Vildum öll njóta samfylgd- ar þinnar lengur, það var bara ekki í boði. Elsku Ragnhildur og niðjar ykkar. Votta einlæglega samúð mína. Maggnús Víkingur Grímsson. Elsku Pálmar, mikið var sárt að fá þær fregnir að þú værir farinn frá okkur, allt of snemma. Þó svo að ég geri nú ekki ráð fyrir því að þú farir að halda áfram að safna Mogganum og lesa gamlar minningargreinar, á þeim stað sem þú ert nú, sendi ég þér samt hér smá kveðju og vona að hún endi hjá þér. Ég man það eins og það hafi bara verið í síðasta mánuði sem þú hringdir í mig og spurðir hvort mig vantaði ekki vinnu, en síðan eru víst liðin 10 ár. Það leið ekki langur tími þar til ég og fjöl- skylda mín vorum orðin hluti af þinni, því þið Ragnhildur voruð bæði með opinn faðminn og ávallt tilbúin að bjóða alla vel- komna. Ég þakka fyrir góðan vinskap, gott samstarf og allar sögurnar sem sagðar voru á milli borða á skrifstofunni. Þessa alls mun ég sakna. Ég vona að þú nýtir nú bjart- ar sumarnætur til reiðtúra á góðum gæðingum með vodka- pela, diet kók og rækjusamloku í hnakktöskunni. Elsku Ragnhildur, Lára, Rún- ar, Svavar, Alli, Hrafnhildur, Brynhildur, Svava og fjölskyld- ur, ég votta ykkur innilega sam- úð mína. Skrifstofustúlkan þín, Halldóra. Pálmar Þorgeirsson er fallinn frá langt um aldur fram. Þótt ég efist ekki um að hann sé kominn á góðan stað er svolítið erfitt fyrir þá sem þekktu Pálmar að sjá hann fyrir sér sem vængj- aðan engil. Fyrstu kynni mín af Pálmari voru á réttadaginn, skömmu eft- ir að hann fékk bílprófið, en þá ók hann nokkuð greitt inn á hlaðið á Grafarbakka og endaði Moskvich-bifreiðin á hliðinni upp við blómsturgarð. Pálmar stökk ómeiddur og óbeygður út, sem var í takt við það æðruleysi og jafnaðargeð sem einkenndi hann alla tíð. Bifreiðinni var velt á réttan kjöl og ferðinni haldið áfram. Þótt þessi ökuferð hefði getað endað betur var það einmitt akstur og vörubifreiðaútgerð sem Pálmar gerði að ævistarfi sínu. Hann tók ungur við græn- metisflutningum úr Hruna- mannahreppi af Guðmundi í Ak- urgerði. Þeir flutningar höfðu verið í föstum skorðum um ára- bil. Tvær ferðir til Reykjavíkur í viku. Byrjað að lesta grænmeti hjá Flúðabændum en endað á Grafarbakka og Reykjabakka. Ef uppskeran var góð kom það fyrir að skilja þurfti eftir græn- meti á síðustu bæjunum og geyma, jafnvel yfir helgi, þótt eftirspurn væri eftir grænmet- inu fyrir sunnan. Með Pálmari breyttist þetta. Ef þörf krafði fór hann tvær ferðir á dag og svo margar á viku sem þurfti til að koma öllu grænmetinu strax á markað. Pálmar fór ekki í manngreinarálit og lét sig engu varða hver áfangastaður græn- metisins væri. Þannig flutti hann grænmeti fyrir svokallaða framhjásölumenn, en það voru þeir kallaðir sem áttu viðskipti við aðra en Sölufélag garðyrkju- manna eða Grænmetisverslun landbúnaðarins. Pálmar fylgdi ávallt sannfæringu sinni og kom hreint og beint fram við alla, jafnvel þótt það gæti kostað hann viðskipti. Mig grunar að hin umfangs- mikla flutningastarfsemi Pálm- ars um áratugaskeið hafi oftar verið byggð á tilfinningu og ástríðu fyrir að þjóna viðskipta- vinunum en nákvæmum útreikn- ingum á framlegð í anda Excel- kynslóðarinnar. Minnisstæð er myndin sem birtist í fjölmiðli af Pálmari glaðbeittum, skömmu eftir bankahrunið, fyrir framan tvær nýjar flutningabifreiðar sem hann var að fá afhentar frá umboðinu. Bjartsýnin var hreint ódrepandi á hverju sem gekk. Þær Ragnhildur, kona Pálm- ars, og móðir mín hófu samstarf um garðyrkju á Grafarbakka upp úr 1990, sem Ragnhildur og fjölskylda hennar tóku síðan al- farið við. Þetta samstarf þróaðist síðan upp í trausta vináttu. Um- hyggjusemi fjölskyldunnar við móður mína var ómetanleg og þar var Pálmar betri en enginn. Pálmar var glaður á góðri stundu. Lætur þannig nærri að hann hafi verið þjóðsagnaper- sóna í Skagafirði vegna árlegra heimsókna í Laufskálarétt í Hjaltadal þar sem hann lét með- al annars til sín taka á uppboð- um. Hrossið Mórall var afrakst- ur einnar slíkrar ferðar en þá sögu kunna aðrir betur að segja. Pálmar Þorgeirsson setti sterkan svip á samfélagið í Hreppunum og víðar. Hans verður sárt saknað. Við fjöl- skyldan sendum Ragnhildi og öðrum aðstandendum Pálmars hlýjar samúðarkveðjur. Sigurður Tómas Magnússon. MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017 Frímann & hálfdán Útfararþjónusta Frímann 897 2468 Hálfdán 898 5765 Ólöf 898 3075 Sími: 565 9775 www.uth.is uth@uth.is Cadillac 2017 Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HALLGERÐUR PÁLSDÓTTIR, Lautasmára 3, Kópavogi, er látin. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 31. maí klukkan 13. Páll Halldórsson Sólveig Ásgrímsdóttir Ásta Halldórsdóttir Einar Erlendsson Elín Ýrr Halldórsdóttir Ólöf Eir Halldórsdóttir Jenni Guðjón Clausen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær faðir minn, sonur, bróðir, mágur og frændi, GUÐMUNDUR GUÐMUNDSSON, Nátthaga 16, Skagafirði, lést mánudaginn 15. maí. Útförin fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 30. maí klukkan 13. Sandra Hlín Guðmundsdóttir Ágúst Fannberg Friðgeirsson Torfi Gunnþórsson Fjóla Svavarsdóttir og frændsystkin

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.