Morgunblaðið - 27.05.2017, Blaðsíða 46
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR 7.4.2017 - 31.12.2019
Valin verk úr safneign
HRAFNHILDUR ARNARDÓTTIR / SHOPLIFTER
Taugafold VII / Nervescape VII 26.5 - 22.10 2017
Listamannaspjall með Hrafnhildi Arnardóttir / Shoplifter
sunnudaginn 28. maí kl. 14.
STEINA - ELDRÚNIR (PYROGLYPHS) 4.3. - 20.8.2017
VASULKA-STOFA Miðstöð fyrir raf- og stafræna list á Íslandi
SAFNBÚÐ - Listrænar gjafavörur
KAFFISTOFA - Ljúffengar veitingar
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 10-17.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
SAMSKEYTINGAR 3.9.2016 - 17.09.2017
Opið daglega kl. 14-17, lokað mánudaga. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti.
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA 2.10.2016 - 14.9.2017
Opið þriðjudaga, fimmtudaga, laugardaga og sunnudaga kl. 14-17.
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
Steinholt-saga af uppruna nafna í Myndasal
Ísland í heiminum, heimurinn í Íslandi í Bogasal
Grímsey á Vegg
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sýningin Sjónarhorn Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Geirfugl †Pinguinus impennis Aldauði tegundar – Síðustu sýnin
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna.
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík s: 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið alla daga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið alla daga frá 10-17.
Glaðir sýningargestir Gunnar Ólafsson, Ragnheiður Jónasdóttir, Óttarr Proppé og Svanborg Sigurðar.
Morgunblaðið/Ófeigur
» Taugafold VII, sýning myndlistar-konunnar Hrafnhildar Árnadóttur,
sem þekktari er undir listamannsnafni
sínu Shoplifter, var opnuð boðsgestum
í gærkvöldi í Listasafni Íslands.
Hrafnhildur er þekkt fyrir litríka og
oft umfangsmikla skúlptúra sína og
innsetningar úr gervihári sem takast á
við efni á borð við skreytiþörf, hé-
góma, umbreytingu og mannslíkam-
ann sjálfan.
Shoplifter opnaði sýningu í Listasafni Íslands í gærkvöldi
Sæt saman Rúnar Örn Jóhönnu-Marínóson og Ásgerð-
ur Birna Björnsdóttir voru viðstödd opnunina.
Flottar Svanhildur Einarsdóttir, Sigurbjörg Gylfadóttir,
Bryndís Jóhannsdóttir og Sóldís Lydia Ármannsdóttir.
Glæsilegar Lilja Baldursdóttir, framleiðandi sýning-
arinnar, Elísabet Alma Svendsen og Saga Sig.
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2017
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Teikningin er útgangspunktur sýn-
ingarinnar,“ segir Una Lorenzen um
myndlistarsýninguna Dáið er allt án
drauma sem opnuð verður í Sverris-
sal Hafnarborgar í Hafnarfirði í dag,
laugardag, kl. 15. Á sýningunni stilla
Una og Sara Gunnarsdóttir saman
verk sem þær hafa unnið í sitthvoru
lagi á sl. sjö árum.
„Við Sara vorum í CalArts listahá-
skólanum í Kaliforníu á svipuðum
tíma þar sem við lærðum tilraun-
kennda hreyfimyndagerð,“ segir Una
sem útskrifaðist 2009, en Sara 2012.
„Við þekktumst því vel þaðan, en
höfðum aldrei unnið saman áður,“
segir Una sem býr í Montreal meðan
Sara býr í New York. Tekur hún
fram að þær Sara hafi því eðlilega
tekið afar vel í hugmynd sýning-
arstjóra Hafnarborgar, þeirra Ás-
laugar Friðjónsdóttur og Unnar
Mjallar Leifsdóttur, um að vinna
saman sýningu.
„Verkin sem Sara sýnir hefur hún
unnið að sl. sjö ár og ég hafði þau til
hliðsjónar þegar ég vann mín verk frá
áramótum. Við höfum verið í miklum
samræðum um sýninguna,“ segir
Una og bendir á að Sara færi teikn-
inguna yfir í annan miðil í verkum
sínum, frá penna á blaði yfir í þræði á
textíl. Alls má sjá 13 útsaumsmyndir
Söru á sýningunni ásamt nokkurn
fjölda skissubóka.
Venjuleg augnablik leysast upp
Aðspurð segir Una titil sýning-
arinnar fengna að láni frá Nóbel-
skáldinu Halldóri Laxness og hann
vísi í heim ímyndunaraflsins sem
listamaðurinn býr yfir og sækir inn-
blástur sinn í. „Við sköpum heima í
kringum valin augnablik eða hug-
mynd og leikum okkur að abstrakt og
stundum súrrealískum umbreyt-
ingum eða afmyndunum,“ segir Una
og tekur fram að lykilþema sýning-
arinnar sé í raun bjögun. „Það er ein-
hver bjögun þarna í gangi sem tengir
okkur Söru saman, bæði sjónræn
bjögun á persónum og tilfinningaleg
bjögun.“
Að sögn Unu vinnur hún með
gagnsæi teikningarinnar í hreyfi-
myndaseríu sem nefnist „Lygasög-
ur“. „Lygar eru stór partur af lífi
okkar. Þetta er innskot inn í lífi fólks.
Í raun má segja að þetta sé bjögun á
raunveruleikanum, sem er stór part-
ur af okkar lífi. Þarna sjá áhorfendur
venjuleg augnablik í lífi fólks leysast
upp eða umbreytast í abstrakt eða
óhlutbundinn myndheim eða afmynd-
un sem er uppfull af bæði trega og
húmor,“ segir Una og tekur fram að
hún vinni mikið með stemningu og til-
finningu í verkum sínum.
Hreyfimynd á einu blaði
„Ég sýni einnig vídeóverk sem er
unnið þannig að ég er með autt blað
og teikna mynd með þurrkrít eða
þurrpastel. Tek ljósmynd. Breyti
myndinni og tek aftur ljósmynd og
svo koll af kolli þannig að úr verður
„sequence“ eða röð mynda. Ég sýni
líka stakar myndir sem eru gerðar
með sömu aðferð. Til sýnis er því víd-
eóverkið sjálft og myndirnar sem
voru notaðar til að skapa verkið.
Einnig sýni ég annað lítið vídeó þar
sem sjá má hvernig ég vinn verkin, því
vinnuferlið sjálft er stór hluti af verk-
unum sjálfum, þ.e. þessi aðferð að
gera alla hreyfimyndina á eitt blað.“
„Teikningin
er útgangs-
punktur“
Dáið er allt án drauma í Sverrissal
Ljósmynd/Áslaug Friðjónsdóttir
Bjögun Una Lorenzen og Sara Gunnarsdóttir vinna með bjögun á sýningu sinni í Sverrissal Hafnarborgar.