Morgunblaðið - 27.05.2017, Síða 52
LAUGARDAGUR 27. MAÍ 147. DAGUR ÁRSINS 2017
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
Í LAUSASÖLU 941 KR. ÁSKRIFT 5.950 KR. HELGARÁSKRIFT 3.715 KR. PDF Á MBL.IS 5.277 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.277 KR.
VEÐUR » 8 www.mbl.is
»MEST LESIÐ Á mbl.is
1. „Allt útpælt“ hjá Costco
2. Nafn drengsins sem lést …
3. Enn löng röð fyrir utan Costco
4. Súrefnisþjófnaður vekur ótta …
Myndlistarkonan Freyja Eilíf opnar
sýninguna Land of abundance, þ.e.
Allsnægtaland, í dag kl. 19 í galleríinu
Frise í Hamborg í Þýskalandi en þar
hefur hún verið við vinnustofudvöl
síðastliðinn mánuð. Til sýnis verða ný
verk, unnin á staðnum, sem fjalla um
allsnægtasamfélagið. Freyja Eilíf er
fyrsti íslenski listamaðurinn sem
dvelur og sýnir í Frise á vegum Kling
og Bang-gallerísins en nýlega hófst
samstarf um listamannaskipti með
sýningarrýmunum tveimur. Umsjón
með verkefninu hafa Hekla Dögg
Jónsdóttir og Michael Kress.
Allsnægtir í Hamborg
Boðið verður upp á ókeypis tónleika
í Dómkirkjunni á morgun kl. 16. Á dag-
skrá verða einleiksverk fyrir fiðlu eftir
Alexandre Zapolski, Fritz Kreisler og
Krzysztof Penderecki auk kammer-
tónlistar: Lark Ascending fyrir píanó
og fiðlu eftir Vaughan Williams og
Contrasts, tríó fyrir fiðlu, klarínett og
píanó eftir Béla Bartók.
Vera Panitch fiðluleikari leikur á
tónleikunum en hún er af dönskum og
rússneskum uppruna og leikur í haust
sem annar konsertmeistari Sinfón-
íuhljómsveitar Íslands. Með henni
leika Mathias Susaas Halvorsen,
norskur píanóleikari
sem m.a. hefur komið
fram með tónlistarkon-
unni Peaches, Páll Pa-
lomares sem tók sl.
haust við starfi
leiðara annarrar
fiðlu SÍ og Arn-
gunnur Árnadóttir,
fyrsti klarín-
ettleikari SÍ.
Frítt inn á tónleika
í Dómkirkjunni
FÓLK Í FRÉTTUM
VEÐURÍÞRÓTTIR
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Fremur hæg suðlæg eða breytileg átt. Þurrt og bjart veður austan-
lands, en sums staðar dálitlar skúrir vestan til, og einnig í innsveitum norðanlands síð-
degis. Hiti 7 til 17 stig, hlýjast í innsveitum norðaustan til.
Á sunnudag Hæg suðlæg eða breytileg átt, en austan 5-10 m/s með norðurströndinni.
Víða væta með köflum, einkum um landið vestanvert. Hiti yfirleitt 6 til 12 stig.
Á mánudag Fremur hæg austlæg átt og rigning með köflum sunnan- og vestanlands, en
þurrt um landið norðaustanvert. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast norðaustan til.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslands-
meistari úr GR, lék á 71 höggi eða á
höggi undir pari á öðrum hring Volvik
Championship í LPGA-mótaröðinni
bandarísku í gærkvöld en mótið fer
fram í Detroit í Michigan-ríki. Ólafía
er samtals á fjórum höggum undir
pari á mótinu og komst örugglega í
gegnum niðurskurð keppenda og
heldur áfram leik á mótinu í dag. »1
Ólafía Þórunn heldur
áfram leik í Detroit
„Maður veit í rauninni aldrei
hvað andstæðingarnir
munu gera en ég taldi mig
geta barist um að fara á
verðlaunapallinn,“ segir
kraftlyftingakonan Fanney
Hauksdóttir í samtali við
íþróttablaðið í dag. Fanney
vann til silfurverðlauna í
bekkpressu á heimsmeist-
aramótinu í Kaunas í Lithá-
en í gær og setti auk þess
Norðurlandamet. »1
Taldi sig geta far-
ið á verðlaunapall
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Fjórir nemendur í Varmahlíðarskóla
í Skagafirði unnu til verðlauna í ný-
afstaðinni nýsköpunarkeppni grunn-
skólanna (NKG) 2017, en á undan-
förnum átta árum hafa níu nem-
endur skólans hlotið verðlaun í
keppninni.
NKG er keppni í nýsköpun fyrir
5.-7. bekk grunnskólanna. Hún fór
fyrst fram 1991 og var nú haldin í 27.
sinn. 25 hugmyndir, sem 34 nem-
endur unnu að, voru valdar í úrslit af
yfir 1.100 hugmyndum frá 34 skólum
víðs vegar að af landinu. Þórdís
Sævarsdóttir í Dalskóla hlaut hvatn-
ingarverðlaun NKG „fyrir framúr-
skarandi framlag sitt til eflingar ný-
sköpunarmenntunar á Íslandi“ og er
því Nýsköpunarkennari grunnskól-
anna 2017.
Indriði Ægir Þórarinsson og Ósk-
ar Aron Stefánsson í 7. bekk Varma-
hlíðarskóla hlutu 1. verðlaun fyrir
einfalda markatöng en lyklaklemma
þeirra komst einnig í úrslit. Lilja
Diljá Ómarsdóttir og Þóra Emilía
Ólafsdóttir úr 6. bekk urðu í 2. sæti
með barnabjargara og fengu tækni-
bikar Pauls Jóhannssonar fyrir hug-
myndina og framúrskarandi sköp-
unargáfu og eljusemi í vinnu-
smiðjunni. Lilja Diljá komst líka í
úrslit í fyrra.
Þetta er þriðja árið í röð sem Ósk-
ar Aron kemst í úrslit. Hann lenti
fyrst í 5. sæti með hárlosunarhár-
bursta og síðan urðu þeir Indriði Æg-
ir í 3. sæti í fyrra með markaappið.
Félagarnir búa í Lýtingsstaða-
hreppi; Óskar í Álfheimum og Indr-
iði á Stórhóli. Þeir þekkja því vel til
sveitastarfa og finna hvar skórinn
kreppir. Það er því ekki tilviljun að
verðlaunahugmyndir þeirra hafa
með búskap að gera.
Hugmyndaríkir krakkar
Óskar segir að hugmyndirnar
verði til með því að finna vandamál
sem þurfi að leysa og í kjölfarið sé
lausnarleiðin fundin. Indriði bætir
við að hann hafi fengið hugmyndina
að markatönginni frá Sverri, bróður
sínum. „Ég spurði hann hvort það
væru einhver vandamál í kringum
kindurnar og hann sagði að sér fynd-
ist leiðinlegt að marka sum mörk og
sérstaklega markið fjöður.“
Strákarnir segja að þeir hafi ekki
átt von á sigri í keppninni og það hafi
óneitanlega verið gaman að fá 1.
verðlaun, tölvu og gjafabréf. Þeir
segja að næst á dagskrá sé að forrita
appið, sem var verðlaunað í fyrra, og
svo vilja þeir láta á það reyna hvort
markaður sé fyrir framleiðslu á
markatönginni. Þeir unnu hvataferð
til Vestmannaeyja og hafa í hyggju
að nota hana til þess að prófa mis-
munandi hnífa á töngina.
Stelpurnar voru ekki síður
ánægðar með uppskeruna, en barna-
bjargarinn virkar þannig að sé takka
á handfangi barnavagns sleppt
stoppar vagninn. „Ég átti alls ekki
von á þessu,“ segir Lilja Diljá. Hún
segir að þær hafi verið í skólanum og
hugsað hvað þær gætu gert. „Svo
datt okkur þetta í hug og við áttum
alls ekki von á því að við kæmumst
áfram því þetta var eiginlega bara
grínhugmynd.“
Þóra Emilía tekur í sama streng.
„Ég var mjög ánægð,“ segir hún um
viðbrögðin við verðlaununum og
bætir við að framkvæmd hugmynd-
arinnar hafi ekki vafist fyrir þeim.
„Hún var svolítið erfið en ekki neitt
svakalega.“
Markatöngin leysir málið
Nemendur í Varmahlíðarskóla í Skagafirði taka á vandamálunum
Ljósmynd/Birgitta Sveinsdóttir
Verðlaunahafar Frá vinstri: Lilja Diljá Ómarsdóttir, Þóra Emilía Ólafsdóttir, Indriði Ægir Þórarinsson og Óskar Aron Stefánsson.
„Við áttum nánast allar stórleik á
móti KR. Þannig að ég held að við
séum á góðri leið nú þegar þriðjungur
deildarkeppninnar er að baki. Sjálfs-
traustið eykst jafnt og þétt eins og
við leikum um þessar mundir. Ekki
skemmir fyrir að halda
marki okkar hreinu,“
segir Berglind Björg
Þorvaldsdóttir sem
skoraði þrennu fyr-
ir Breiðablik gegn
KR í Pepsi-deild
kvenna. »3
Áttum allar stórleik og
sjálfstraustið eykst