Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 8
NÝJA FJÓSIÐ
MJALTAÞJÓNNINN
Finnurviðurkennirað það hafi helst verið nýj-
ungagirni sem réð því að Káranesbúið kaus
að kaupa mjaltaþjón I nýja fjósið. „í þessari
tækni eru ýmis atriði sem við teljum mjög
mikilvæg gagnvart kúnni. Þjónninn mjólkar
í raun og veru hvern spena sjálfstætt. Þegar
búið er úr einum spena hættir mjaltaþjónn-
inn með þann spena. Ég er hræddur um
að einn maður í stórum mjaltabás geti ekki
sinnt þessum þætti með sama hætti. Við
veltum þessu lengi fyrir okkur, bæði kostum
og göllum. Þegar við fórum að reikna dæm-
ið til enda kom í Ijós að kostnaðarmunurinn
við það að byggja mjaltagryfju með öllu
og kaupa mjaltaþjón var ekki eins mikill og
maður hefði getað ímyndað sér, eða um
tvær milljónir. Ef við hefðum tekið gryfjuna
hefði húsið þurft að vera á bilinu 50-70 fer-
metrum stærra. Uppsetning á mjaltagryfju
tekur einnig töluverðan tíma og það kostar
líka peninga. Þetta hús er byggt utan um
einn mjaltaþjón og fjöldi gripa og stærð
hússins miðast við það," segir Finnur.
SLEGIÐ JAFNÓÐUM í KÝRNAR
Túnstærðin í Káranesi var um 30 hektarar
þegar Káranes ehf. tók við búinu en jörðin
sjálf er rúmlega 100 ha. Sáð var í u.þ.b. 23
ha af nýju landi í vor og auk þess var bætt við
u.þ.b. 6 ha spildu með „haustsáningu" í lok
júlí. Engin kornrækt er á jörðinni en Finnur
útilokar það ekki í framtíðinni. „Við þurfum
að fá hálm og það væri þá helst til þeirra
nota sem við færum út í kornrækt. Við erum
með rýgresi en ég slæ það beint í kýrnar. Tek
upp í sjálfhleðsluvagn á hverjum degi og gef
það ferskt. Þessi aðferð virkar mjög vel og
get ég hiklaust mælt með henni."
Af ýmsum ástæðum og meðal annars
vegna framkvæmda hafa kýrnar ekki verið
settar út í sumar en þær fengu að viðra sig
nokkra daga í september. Kvígurnar ganga
lausar eins á fyrr sagði og er það ágætis
þjálfun fyrir það sem koma skal. „Við getum
ekki notað útiveruna sem leið til að fóðra
kýrnar en þær fá fulla fóðrun inni við allt árið
um kring. Við hugsum þetta fyrst og fremst
sem hreyfingu og tækifæri fyrir þær til þess
að viðra sig," segir Finnur Pétursson bóndi í
Káranesi.
í haugkjallaranum er rafknúin hræra (nk.
skrúfa) með sjálfvirka tímastillingu sem
hringdælir daglega í kjallaranum og heldur
þannig mykjunni upphrærðri sem lágmarkar
gasmyndun. Úr haugkjallaranum er mykj-
unni dælt með rafknúinni mykjudælu út í
stóran mykjupoka. Ljósm. Finnur Pétursson
Vel gekk að reisa stálgrindina en fjórir Flollendingar frá framleiðenda hússins komu til
landsins og unnu verkið í samvinnu við kaupendur. Ljósm. Finnur Pétursson
/ k
íl—í OddkýT £ íl
9 : 1
í
Byggingarlýsing
Stærð hússins: L x B = 33,5 x 29 m. Flatarmál = 972 m2.
Vegghæð = 2,8 m. Þakhalli = 20°. Húsið er stálgrindarhús með
úretaneiningum á þaki og veggjum. Á báðum göflum eru 2 m
breið og 7m há gluggaútskot til að setja svip á útlit hússins og
veita inn birtu. Mjólkurhús, vélarými, inngangur og aðstaða er
aðskilið frá griparými með steyptum veggjum og ofan á millilofti
er gert ráð fyrir skrifstofu, kaffistofu og útsýnisaðstöðu yfir allt
fjósið.
66 básar fyrir mjólkandi kýr og 9 fyrir geldkýr, samtals 75 kýr.
Báslengd við vegg 2,4 m, bás á móti bás 2,2 m, breidd 1,1 m.
Tvær sjúkrastíur, stærð 3,0 x 3,0 m.
2 básar í frátökustíu, fyrir yxna kýr og/eða kýr í meðhöndlun.
18 básarfyrir kvígur 18-24 mán. Báslengd 2,2 m, breidd 1,0 m.
24 básar fyrir kvígur 9-18 mán. Báslengd 1,8 m, breidd 85 cm.
18 básarfyrir kvígur 3-9 mán. Báslengd 1,8 m, breidd 69 cm.
Hálmstía fyrir kvígur 0-3 mán. Stærð u.þ.b. 15 m2.
Kýr og stærri kvígur eru fóðraðar með Weelink-fóðurkerfum.
8
FREYR 09 2006