Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 22

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 22
FÓÐRUN Heykögglatilraun á Vörðubrún 2005 IEftir Þórarin Lárusson, Búnaðarsambandi Austurlands, Jóhannes Sveinbjörnsson, Landbúnaðarháskóla íslands og Guðfinnu Hörpu Árnadóttur, Landbúnaðarháskóla íslands. Eins og mörgum er kunnugt var gerð eldistilraun með að fóðra haustgelt hrútlömb á köggluðu og óköggluðu heyi frá byrjun janúar 2005 og fram undir páska, eða í 74 daga. Fór tilraunin fram á Vörðubrún í samvinnu við BsA og Landbúnaðar- háskóla íslands. Tilgangur tilraunar- innar var einkum sá að kanna áhrif af kögglun á fóðrunarvirði heyja mælt í eldisáhrifum á þessa gripi og út frá því hver hugsanleg hag- kvæmni við kögglun væri. Einnig átti að meta mun á átgetu vegna fínleika mölunar kögglanna. SKIPULAG TILRAUNAR Tilraunalömbunum var skipt í fjóra hópa V, A, B og C og voru lömbin (V-hópnum alrúin og slátrað við upphaf tilraunar til viðmiðun- ar. Skrokkarnir voru vegnir, fitumældir og frystir til nánari skoðunar við lok tilraunar. Lömbin í hinum þrem hópunum voru rúin að framanverðu. I hverjum hóp voru 16 lömb sem alin voru á mismunandi magni heys eða köggla. Að meðaltali reyndust vera 0,75 FEm og 137 g af hrápróteini í hverju kg þurrefnis í heyfóðrinu á tilrauna- skeiðinu. Hér fyrir neðan er skema sem sýnir tilraunaskipulagið. Hópur Fjöldi Meðferð og fóðrun V 16 Viðmiðunarhópur, slátrað við upphaf tilraunar A 16 Hey að vild B 16 300 g hey og heykögglar að vild C 16 300 g heykögglar og hey að vild HELSTU NIÐURSTÖÐUR Eins og sjá má á mynd 1 jókst þurrefnisát allra þriggja hópanna á tilraunaskeiðinu en mest í hópi B (kögglar að vild) og hafði át B-hópslambanna aukist um 72,7% frá upphafi til lokaviku tilraunarinnar en A- og C-flokks um 13,8% og 19%. Taka þarf tillit til þess að nokkur aukning verður í áti einfaldlega vegna þess að lömbin stækka. Meðalþurrefnisát (kögglar og hey) A-hóps á tilraunaskeiðinu öllu var 1,239 kg/grip/dag, B-hóps 1,652 kg/grip/dag og C-hóps 1,311 kg/grip/dag. Einnig má sjá á línuritinu veru- legt vaxandi át, einkum hjá B-hópnum á milli 7. og 9. viku, sem skýrist af notkun köggla úr sama heyi með mun meiri þétt- leika en áður. Þannig reyndist átgetuaukn- ingin vegna kögglunarinnar (B-A%) um 63% síðustu 3 vikurnar. Vigtun lamba og holdamat yfir tilrauna- skeiðið fór fram við upphaf 1., 4., 7. og í lok 10. viku og ómmæling var gerð á spjaldi og síðu við upphaf og lok tilraunar. Þungaaukn- ingu lambanna í hópunum þremur má sjá á línuritinu á mynd 2. Einnig var marktæk aukning á ómvöðvaþykkt og síðufitumati allra hópa frá upphafi til loka tilraunar en ekki ómfituþykkt á spjaldi nema hjá einum hóp (B). Öll lömbin í fóðrunarhópunum voru rúin og þeim slátrað í lok tilraunaskeiðsins. Við slátrun var ull og mör vigtuð og fituþykkt á síðu mæld. Að auki voru allir skrokkarnir Mynd 1. Heykögglatilraun að Vörðubrún - Þurrefnisát Mynd 2. Lifandi þungi, kg, 3. janúar - 16. mars 22 FREYR 09 2006

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.