Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 9
FÓÐUR
Kaup og sala heys
Þegar hey er keypt eða selt er að ýmsu að
hyggja. Þrennt er þó mikilvægt að hafa í
huga þegar hugað er að heyviðskiptum:
1. Gæði heysins sem verslað er með.
2. Heymagn (þeim einingum sem um ræðir.
3. Verð heysins á hverja einingu, kíló þurr-
efnis eða fóðureiningu.
Gæði heysins ákvarðast af efnainnihaldi
þess og lystugleika. Gæðahey á að vera
laust við myglu, ryk, mengun og óæskilega
gerjun. Efnainnihaldið er hægt að mæla
með því að taka heysýni og í niðurstöðun-
um kemur orkugildið (fóðureiningar), pró-
teininnihaldið og steinefnainnihaldið í Ijós.
Menn skyldu ekki kaupa hey sem ekki fylgir
efnagreining. Miklu máli skiptir til hvaða
nota heyið er. Sé um að ræða hrossahey
er æskilegt að það sé trénisríkt og ekki of
próteinríkt og því hentar síðslegið vallarfox-
gras best sem hrossahey. Fyrir nautgripi og
sauðfé ráðast gæðin af fóðrunarvirði þess
en það er margfeldi átgetu og orkugildis
og segir til um hversu margar fóðureiningar
gripur innbyrðir af viðkomandi fóðri.
Langmest er selt af heyi f rúllum eða
ferböggum. Eitthvað er um að hey sé selt
þurrt í smáböggum en það eru vissulega
hentugar einingar fyrir hestafólk í þéttbýli.
Oft er erfitt að meta heymagnið í rúllum og
ferböggum. Magnið stjórnast af þáttum á
borð við stærð eininga, þurrefni heysins og
þjöppun þess í bagganum. Best er að vita
þyngd einingarinnar og þurrefni heysins en
þá er hægt að reikna nákvæmlega fjölda
þurrefniskílóa í bagganum.
Erfiðast er að áætla verð heysins. Hey
sem gengur kaupum og sölum lýtur lögmál-
um markaðarins og því er erfitt að gefa út
viðmiðunarverð á það. Ráðunautar Búgarðs
hafa áætlað fóðurkostnað um 60 búa á
Norðausturlandi síðustu ár. Þar kemur f Ijós
að meðalkostnaður við framleiðslu á hvert
þurrefniskíló af heyi liggur nærri 15 kr. sé
tekið tillit til áætlaðs launakostnaðar við
framleiðsluna. Þar af er breytilegur kostn-
aður um helmingur. Miðað við þetta gæti
framleiðslukostnaður á hverja rúllu legið á
bilinu 3.000-7.000 kr.
Eftir Ingvar Björnsson,
ráðunaut hjá Búgarði
1,2 m Þvermál rúllu 1,4 m 1,6 m
Rúmmál 1,4 m3 1,9 m3 2,4 m3
Þurrefni á hverja rúllu, þurrt 280 kg 380 kg 480 kg
Kostnaður, kr. á rúllu 4.200 5.700 7.200
Þurrefni á hverja rúllu, blautt 210 kg 285 kg 360 kg
Kostnaður, kr. á rúllu 3.150 4.275 5.400
Forsendur
Rúllur 1,2 m á lengd
Algengt kostnaðarverð á heyi 15 kr./kg þurrefnis
Rúmþyngd 150 kg þurrefni/rúmmetra I blautu heyi
Rúmþyngd 200 kg þurrefni/rúmmetra í þurru heyi (allt að 250 kg/m3 I ferböggum)
FREYR 09 2006
9