Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 11

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 11
NÝSKÖPUN við séum ánægð með þær og viljum ganga í þeim sjálf. Fyrirtækið leggur höfuðáherslu á gæði og að framleiða vandaða hönnun. Það sem einkennir okkar vörur er að peysurn- ar eru margar hverjar mjög léttar og þunnar og það kunna við- skiptavinirnir að meta. Þetta eru flíkur sem henta við öll tækifæri." [ starfinu hjá 66°Norður hef- ur Bergþóra mikið unnið með flísefni og önnur gerviefni. Hún fullyrðir að ullin hafi marga eiginleika sem eru einstakir fram yfir önnur efni. „Þegar maður hefur unnið mikið með gervi- efnin, s.s. flís og vatns- held efni, sér maður hvað íslenska ullin er frábær. Hún hefur í raun alla kosti sem hin efnin hafa, hún hrindir frá sér vatni og hefur gott ein- angrunargildi." FRAMLEIÐSLU- FERILLINN ER í SMÍÐUM Farmers Market er ( góðu samstarfi við ístex sem selur fyrir- tækinu ullina. Nú er reksturinn kominn á það stig að tryggja þarf framleiðsluget- una. Það getur reynst afdrifaríkt að geta ekki uppfyllt kröfur verslana um afhendingu. „Við erum að reyna að finna út bestu fram- leiðslulausnina svo við get- um stækkað og brugðist við pöntunum. Farmers Market er með framleiðslu hér heima og erlendis. Sumt er prjónað í höndunum og annað í vélum. Það er langþægilegast að úthýsa framleiðslunni, t.d. til prjónastofa sem bera þá áþyrgð á framleiðslunni. Aðal- atriðið er að framleiðsluferillinn sé ekki mjög langur og gæðin í fullkomnu lagi. Við viljum geta afhent vörur á tilsettum tíma og það er aðalmálið. Stefnan er sett á að vera með framleiðsluna í þremur löndum. Nú þegar erum við komin með nokkra aðila sem vilja selja vöruna fyrir okkur erlendis en það stendur í raun á framleiðslunni. Aðalógnin er í raun og veru að geta ekki afhent vörur á tilsettum tíma," segir Jóel. Ullarpeysa sem kemur úr smiðju Bergþóru sem er menntaður textílhönnuður. Vöruheitin sækir hún til íslenskra sveitabæja en þessi peysa ber nafnið Reykjahlíð. Dæmi um önnur nöfn eru Fell, Háls og Hraun. MARKMIÐIÐ AÐ GERA FARMERS MARKET AÐ ARÐBÆRU FYRIRTÆKI Jóel og Bergþóra lögðu sjálf fram eigið fé við stofnun Farmers Market og eiga húsnæð- ið sjálf. Auk þess hafa þau fengið liðsinni frá Framleiðnisjóði sem veitti styrk vegna markaðssetningar. „Við reynum að gera þetta skynsamlega og höfum fylgst með öðr- um fyrirtækjum í svipuðum geira sem hafa markaðssett fatnað erlendis. Við fórum ekki af stað með þetta til að treysta á styrki héð- an og þaðan. Markmiðið er að gera þetta að arðbæru fyrirtæki þegarframlíðastund- ir en vissulega hjálpar og flýtir fyrir að fá aðstoð. Það er mjög auðvelt að fara fram úr sér í svona rekstri. Við reynum að halda okkur á jörðinni og missa ekki sjónar á mark- miðum okkar," segir Jóel. VAXTARMOGULEIKAR FELAST í ÚTFLUTNINGI Bergþóra segir að næsta ár hjá Farmers Market fari í að fóta sig í útflutningnum. „Við viljum gera þetta hægt og læra jafnóðum á þetta. Við sjáum ekki fyrir okkur einhverja kjörstærð á fyrirtækinu en erum viðbúin því að það geti þróast í allar áttir. Núna eru vörur Farmers Mark- et á boðstólum í ýms- um verslunum hér heima. Við seljum á þremur ólíkum stöð- um í miðbænum og það hefur gengið vel hingað til. Síðan erum við með vörur í Leifsstöð og á ferða- mannastaðnum við Geysi í Haukadal." Nýtið þið teng- ingu við íslenskar sveitir í markaðs- setningunni? „Nafnið gefur til kynna að við viljum tengja okkur við sveitirnar. Við erum nálægt upprunanum og viljum undirstrika það. Það er okkar trú að menn kunni að meta þessar áherslur okk- ar. (sland hefur alla burði til þess að kynna landið sem hreint og heilbrigt land í fram- tíðinni. (slendingar eru með öll spil á hendi. Það myndi auðvelda margt ef það væri einhver stefna í gangi hjá stjórnvöldum, t.d. hvað varðar umhverfisvernd. Landið hefur svo mikið að bjóða og við höfum alla burði til þess að standa okkur vel á alþjóða- vettvangi. Við þurfum að nýta hugvitið i meira mæli og það hráefni sem við höfum - náttúrulegt hráefni. Við getum unnið með ímynd íslensks landbúnaðar á fleiri sviðum en hvernig við gerum það kemur í Ijós," segja Bergþóra Guðnadóttir og Jóel Pálsson hjá Farmers Market. FREYR 09 2006

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.