Freyr

Árgangur

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 10

Freyr - 01.09.2006, Blaðsíða 10
NÝSKÖPUN íslensk sérkenni eru söluvara framtíðarinnar Farmers Market hannar, framleiðir og selur vörur úr ull Bergþóra Guðnadóttir og Jóel Páls- son reka fyrirtækið Farmers Market sem sérhæfir sig í þróun og mark- aðssetningu á vörum úr íslenskri ull og öðrum náttúruefnum. Fyrirtækið er aðeins um ársgamalt en hefur þegar náð hylli hérlendis og stefnir ótrautt á erlenda markaði. Jóel og Bergþóra leggja þó áherslu á að góðir hlutir gerist hægt en áætlanir þeirra byggjast á að selja hágæða vörur fyrir kröfuharða neytendur. [ rúmgóðu húsnæði við Eyjarslóð í Reykjavík hafa þau hjónin aðsetur með fyrirtæki sitt. Jóel starfar einnig sem tónlistarmaður og hefur innréttað hljóðver og æfingaaðstöðu á sama stað. Bergþóra er menntaður text- ílhönnuður og hefur unnið sem slíkur um árabil, m.a. hjá 66°Norður. Verkaskiptingin hjá Farmers Market er með þeim hætti að Bergþóra hannar, teiknar og prjónar frum- gerðir á meðan Jóel sér um það sem snýr að rekstrinum. En hvað skyldi hafa rekið þau f að stofna fyrirtæki sem hefur það höfuð- markmið að nýta íslensku ullina? „Hugmyndin hefur veriðað gerjast í nokk- ur ár. Það er okkar skoðun að íslendingar eigi að halda í sérkenni sín og markaðssetja sínar vörur með tilliti til þeirra. Heimurinn er að þjappast saman og alþjóðavæðing- in á allra vörum. Allir eru að elta alla og í svoleiðis heimi er gott að missa ekki sjónar á sinni arfleið. Við búum í ungu landi og erum í raun nýflutt á mölina. Öll erum við skyld - þurfum ekki að fara lengra aftur en að siðaskiptum til að finna sameiginlega forfeður okkar. Okkur langar til að koma þessu til skila í gegnum ullina. Við íslending- ar höfum sérstöðu þegar kemur að þeim hráefnum sem landið býður upp á. Eitt af þeim er íslenska ullin en við sjáum ótvíræð sóknarfæri í hönnun og framsetningu á ull- arvörum," segir Jóel. VIÐSKIPTAÁÆTLUN OG UNDIRBÚNINGUR Farmers Market má skilgreina sem sprota- fyrirtæki, þ.e. fyrirtæki sem er að koma undir sig fótunum og byggist á vel mótaðri viðskiptahugmynd. Jóel segir að reksturinn hafi gengið vel hingað til og allar áætlanir ■sm íf 1' Ifl r v S 1 / /1 111 !* W ***" * r 11 V if* / Bergþóra Guðnadóttir og Jóei Pálsson reka í sameiningu fyrirtaekið Farmers Market sem hannar, framleiðir og selur vörur úr íslenskri ull. staðist. Það muni þó koma betur í Ijós þegar tímar líða hvernig reksturinn þróist. „Við gerðum áætlun til 3-5 ára og lásum okkur til um stofnun og rekstur fyrirtækja. Við fengum ýmis ráð frá reyndari mönnum sem kom sér mjög vel. Það er kostnaðar- samt að setja upp fyrirtæki og við veltum hverri einustu krónu fyrir okkur. Við höldum uppi lager hér heima og það er í raun mesta áhættan. Við þurfum að finna lagerstöðu sem hentar eftirspurninni. Fyrirframpantanir tíðkast í þessum bransa og við treystum á að svo verði í framtíðinni," segir Jóel. GÆÐIN í FYRSTA SÆTI Bergþóra bendir á að til þess að halda sér- stöðunni þurfi þau alltaf að huga að gæðun- um. „Við látum ekki vörur frá okkur nema 10 FREYR 09 2006

x

Freyr

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.