Freyr - 01.09.2006, Side 14
SAUÐFJÁRRÆKT
Einkunnir sæðinga-
stöðvahrútanna
haustið 2006
Á hverju hausti hefur verið miðlað
til sauðfjárbænda nýjustu niðurstöð-
um um reynslu hrútastofnsins sem
er á sæðingastöðvunum. Minnt er
á það að þær tölulegu upplýsingar
sem eru í sviga byggja á gögnum
um afkvæmi í heimafélagi (þaðan
sem hrúturinn kom á stöð) en hitt
eru upplýsingar um afkvæmi tilkom-
in við sæðingar. Þá eru uppiýsingar
um sláturlömb undan hrútunum
fyrir mörg ár. Upplýsingar um dætur
eru hins vegar aðeins fyrir ær sem
eru tilkomnar við sæðingar á árinu
2005. Þess vegna eru sumir yngstu
hrútanna á stöð þar sem hér er
aðeins um að ræða upplýsingar
fyrir veturgamlar dætur.
Upplýsingar um stöðvarhrútana eru í mörg-
um tilvikum afar yfirgripsmiklar. Mikið er
um að afkvæmafjöldi þeirra hafi löngu
Loftræstikerfi
fyrir gripahús
ís —
Sími 586 8327 -www.ismork.is
Hylur 01-883 gaf áberandi jákvæð frávik í
fallþunga lamba haustið 2005
sprengt mörk þeirra gömlu forrita sem
halda utan um þessar upplýsingar skýrslu-
haldsins, en það á við um sláturlömb hjá
hrútum sem skráðir eru með 2.300 lömb
og fyrir dætrahópana þegar fjöldi er skráður
901. í þessum tilvikum eru afkvæmahópar
viðkomandi hrúts enn stærri.
Hér skal ekki fjölyrt um einkunnir hrút-
anna fyrir sláturlömb. Margoft hefur verið
á það bent að hrútarnir á stöðvunum eru
undantekningarlítið reyndir að því að gefa
góðan vænleika lamba og eru nánast engin
frávik frá því. Einnig eru fremur fá frávik
þar sem hrútar gefa áberandi jákvæð frávik
í fallþunga lamba. Haustið 2005 sýnast það
öðrum fremur hafa verið Glópur 00-930,
Hylur 01-883 og Ormur 03-933 sem gáfu
nokkuð vænni lömb en hinir hrútarnir.
Af eldri hrútum eru það öðrum fremur
dætur Sjóðs 97-846 sem hafa skilað frábær-
um afurðum haustið 2005. Þessi dætrahóp-
ur er á mjög góðum aldri og útkoma hans
hefur verið frábær, bæði hvað varðar frjó-
semi og vænleika lamba. Af yngri hrútunum
eru það Rektor 00-889, Tímon 00-901 og
Ægir 01-916 sem sýna hvað mesta yfirburði
hjá dætrum sínum, yfirburðir í frjósemi hjá
þessum veturgömlu dætrum Ægis eru mjög
miklir. Eini yngri hrúturinn sem alvarlega
bregst vonum um frjósemi dætra er Frosti
02-913.
Rétt er að nefna að flestar niðurstöður
hníga orðið að því að dætur Læks 97-843
og sumra sona hans og sonarsona muni
vera ær sem eru í slöku meðallagi varðandi
vænleika lamba, þannig að stundum skortir
ef til vill á mjólkurlagni þeirra.
Þessu til viðbótar liggja fyrir umfangs-
miklar niðurstöður um frjósemi dætra
IEftir Jón Viðar
Jónmundsson,
Bændasamtökum
íslands
Dætur Langadals 01-931 sýna
varla næga frjósemi.
þessara hrúta úr vorupplýsingum sem
komu til uppgjörs í sumar. Mest af þessu
er í ágætu samræmi við fyrri reynslu. Þeir
fáu hrútar, þar sem dætur höfðu ekki
áður sýnt nægjanlega mikla frjósemi, virð-
ast yfirleitt ekki ná að rétta sinn hlut. Hin-
ir eru sem betur fer miklu fleiri sem þar
státa að jákvæðum niðurstöðum. Þannig
sýna dætur þeirra Rektors 00-889, Tímons
00-901 og Ægis 01-916 áfram yfirburði í
frjósemi. Roði 00-921, Erpur 01-919, Eld-
ar 01-922 og Lómur 02-923 vekja öðrum
fremur athygli fyrir glæstar niðurstöður,
af þeim hrútum sem nú eru að fást fyrstu
upplýsingar frá um dætrahópa tilkomna
við sæðingar (aðeins veturgamlar ær).
Hins vegar sýna dætur þeirra Langadals
01-931 og Orms 02-933 varla næga frjó-
semi og einnig hefði verið æskilegt að
sjá aðeins fleiri lömb hjá dætrum Kulda
03-924.
Nú er á lokastigi úrvinnsla á nýju kyn-
bótamati fyrir frjósemi og mjólkurlagni
ánna. Hér er um að ræða BLUP-mat. Ekk-
ert vafamál er að með þeim niðurstöðum
fáum við í hendur miklu ítarlegri og örugg-
ari niðurstöður um þessa eiginleika en við
höfum áður haft. Þetta skapar vonandi
tækifæri til þess að leggja meiri áherslu á
frjósemi og mjólkurlagni í ræktunarstarf-
inu en verið hefur um árabil. Ljóst er að
ræktunarárangur síðustu ára hvað varðar
þessa eiginleika er minni en skyldi. Nýjar
og betri niðurstöður úr kynbótamati eiga
að geta skapað möguleika til að skerpa
á þessum eiginleikum í ræktunarstarfinu.
Hagkvæmni í rekstri fjárbúanna ræðst
meira af þessum eiginleikum en nokkrum
öðrum.
14
FREYR 09 2006