Freyr

Ukioqatigiit

Freyr - 01.09.2006, Qupperneq 19

Freyr - 01.09.2006, Qupperneq 19
Geymsluhúsnæði til sveita Bændur breyta húsnæði í geymslur fyrir tjaldvagna, fellihýsi, húsbíla og hjólhýsi I í 1 1 Gamalt fjós sem hefur staðið ónotað í nokkurn tíma. Þarna er hægt að breyta húsnæðinu í geymslu með litlum tilkostnaði. Hiti er í húsunum og súlur ekki margar. Víða til sveita er að finna útihús í lítilli eða engri notkun. Á nokkrum bæjum hafa bændur breytt útihús- um í geymslur fyrir tjaldvagna og fellihýsi. Þannig ná þeir að drýgja tekjurnar og láta fasteignirnar skila arði. Sumir hafa jafnvel aðstöðu til þess að taka á móti húsbílum og hjólhýsum sem gera kröfur um mikla lofthæð. En í hverju felst rekstur á geymsluhúsnæði úti á landsbyggðinni? Er þetta raunhæf- ur valkostur fyrir bændur til þess að auka tekjur sínar? Freyr kannaði málið og ræddi við nokkra aðila sem standa í slíkum rekstri og lagði mat á tjaldvagnaeign landsmanna. UM 10.000 TJALDVAGNAR OG FELLIHÝSI ERU TIL í LANDINU fslendingar hafa verið duglegir að kaupa sér hjólhýsi, tjaldvagna og fellihýsi undanfarin ár. Hjá Umferðarstofu er haldið bókhald yfir tengivagna sem þessa sem eru skráningar- skyldir. Árið 2002 voru nýskráðirtjaldvagnar 517 en á árinu 2005 voru nýskráningarnar alls 778. Heildarfjöldi tjaldvagna og fellihýsa var 9.866 í lok árs 2005 svo gera má ráð fyrir að talan sé komin yfir 10 þúsund. Sprenging hefur orðið í hjólhýsaeign á fslandi en árið 2002 voru aðeins 24 nýskráningar hjólhýsa en á síðasta ári voru 413 hjólhýsi nýskráð hjá Umferðarstofu. Alls voru 1.290 hjólhýsi skráð á landinu í lok árs 2005 en þau voru aðeins 725 fyrir þremur árum. Tölur yfir fjölda húsbíla eru nokkuð á reiki. Fjöldi í félögum húsbílaeigenda segir nokkuð en á Norðurlandi eru um 300 bílar skráðir í félagsskap húsbílaeigenda. Talið er að um 900 bílar séu skráðir í sambærilegum félagsskap á höfuðborgarsvæðinu. Gera má ráð fyrir nokkrum fjölda húsbílaeigenda sem ekki eru skráðir í félögin og því ekki óvarlegt að ætla að heildarfjöldi húsbíla á landinu sé um 1.500. Þó svo að um 60% tjaldvagna, hjól- og fellihýsa séu skráð á höfuðborgarsvæðinu, eða um 6.000, er eftir talsverðu að slægjast fyrir geymsluaðila á landsbyggðinni. Á Norð- urlandi eystra eru til að mynda rúmlega 1.000 tengivagnar, á Vesturlandi eru þeir tæplega 600, á Suðurlandi tæplega 1.000 og á Austurlandi rúmlega 500. VERÐ OG AÐSÓKN í GEYMSLUR Freyr gerði óformlega könnun á verði geymsluþjónustu. Ljóst er að verðið lækkar eftir þvi sem fjær dregur höfuðborgarsvæð- inu og öðrum þéttbýliskjörnum en verðið er æði misjafnt. Algengast er að flokka þjón- ustuna eftir stærð tjaldvagnanna og fellihýs- anna. Þá eru húsbílar og hjólhýsi flokkaðir sérstaklega enda stærri of fyrirferðarmeiri tæki. Fljótt á litið er verðið frá 10 þúsund krónum fyrir minnstu tjaldvagnana upp í 60 þúsund fyrir húsbíla og hjólhýsi. Einnig eru brögð að því að fyrirtæki bjóði eigend- um tjaldvagna, fellihýsa og hjólhýsa að láta yfirfara græjurnar yfir veturinn. Þannig geta eigendur gengið að tækjunum vísum í full- komnu standi að vori. Misjafnt er hvaða þjónustu geymslufyrir- tækin bjóða upp á. Sum eru með köld hús á meðan önnur bjóða upp á fulla kyndingu. Eins er sums staðar tekið fram að þjófa- eða brunavarnarkerfi sé til staðar. Landeigandi nokkur ( nágrenni höfuð- borgarinnar tjáði Frey að aðsóknin væri góð og í fyrra hefði hann nærri því fyllt allar s(n- ar geymslur sem væru í gömlu, óupphituðu, 600 fermetra refahúsi. Nær allir viðskiptavin- ir fyrra árs kæmu aftur í ár svo ekki þyrfti hann að leggja ( mikinn auglýsingakostnað. Um verðlagninguna sagði landeigandinn að hann skipti verðinu í fjóra flokka, en hann tæki eingöngu tjaldvagna og fellihýsi. I minnsta flokk féllu litlir tjaldvagnar og tæki hann 10 þúsund fyrir þá fyrir veturinn, 12- 15 þúsund fyrir hefðbundna tjaldvagna og lítil fellihýsi og loks 30 þúsund fyrir stærstu gerðaf fellihýsum. Losun og lestun húsanna fer fram á ákveðnum dögum á haustin og vorin. Um hjólhýsin sagði hann að þau væru viðkvæmari í meðhöndlun auk þess sem þau þyrftu meiri lofthæð. Hvar eru hjólhýsi, tjaldvagnar og fellihýsi skráð? Heimilisfang óþekkt 1% Suður and Austur and vestfirðir Vesturland Suöurnes Norðurland eystra 9% Norðurland vestra 2% Höfuðborgarsvæðið 60% Heimild: Umferðarstofa, 2006 FREYR 09 2006

x

Freyr

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.