Freyr - 01.09.2006, Page 26
NAUTGRIPARÆKT
Ný meðferð við
júgurbólgu gæti
orðið valkostur á
móti sýklalyfjum
Doug Bannerman örverufræðingur (til vinstri) og Max Paape mjólkurfræðingur
telja frumur og skoða bakteríuræktun úr kúm sem annaðhvort fengu sýklalyf
eða Poly-x í lok mjaltaskeiðsins (í upphafi geldstöðu).
Ljósm. Stephen Ausmus.
Hugsanlega er komið fram nýtt
vopn í baráttunni gegn bakter-
íunum sem valda júgurbólgu í
mjólkurkúm en árlegur kostnaður í
Bandaríkjunum vegna sjúkdómsins,
í formi gripadauða og mjólkurtaps,
er um tveir milljarðar dala.
Við genamengjarannsóknir Rannsókna-
stofnunar bandaríska landbúnaðarins (ARS)
í nautgriparannsóknasetrinu í Beltsville f
Maryland hafa vísindamennirnir Max Paape
og Douglas Bannerman sýnt að með því að
sprauta sykrunni Poly-x í júgurkirtla kúnna
dró úr júgurbólgusýkingum og kostnaður-
inn er aðeins einn tólfti af verði sýklalyfja.
Um er að ræða fjölsykrur sem finnast í
frumuveggjum ákveðinna gersveppa. Þeg-
ar þær eru gefnar kúm á geldstöðu verka
þær eins og lífefnafræðilegur herlúður sem
eykur virkni ónæmiskerfis dýranna, einkum
til að framleiða hvít blóðkorn sem drepa
bakteríur.
„Rannsóknir í Beltsville höfðu þegar gefið
til kynna að það að fjölga frumum í mjólk
kæmi ( veg fyrir sýkingu," segir Paape.
„Poly-x eykur frumufjölda í seyti geldkúa
fyrstu fimm daga geldstöðunnar og kemur
þannig (veg fyrir bakteríusýkingu."
Við júgurbólguvarnir eru oft notuð mörg
úrræði, til dæmis sýklarannsóknir, hreinlætis-
ráðstafanir, einangrun, slátrun, spenahreins-
un og sýklalyfjameðferð. Notkun sýklalyfja
getur verið kostnaðarsöm fyrir hefðbundna
mjólkurframleiðslu, lyfin kosta um tlu dali á
hverja kú eða 45 milljónir dala á landsvísu,
samkvæmt áætlun Paape. Meðferðin er
einnig umdeild og áhyggjur eru uppi um
hugsanlega umhverfismengun og að upp
komi bakteríur sem ónæmar eru fyrir sýkla-
lyfjum.
Paape og Bannerman sjá marga kosti við
að nota Poly-x sem náttúrlegan valkost,
einn þeirra er að leyfar eru engar. Verðið er
annar kostur. Túpa af sýklalyfjum kostar um
hálfan þriðja dal en tilraunameðferð með
Poly-x aðeins 20 sent.
Við rannsóknir sínar sprautuðu vísinda-
mennirnir 40 Holstein-mjólkurkýr á geld-
stöðu með Poly-x og 40 með sýklalyfjum.
Þegar geldstöðutímabili kúnna lauk leituðu
vísindamennirnir að júgurbólgusýkingu í
skepnunum. „Fimm af kúnum sem fengið
höfðu Poly-x fengu nýjar sýkingar ( upphafi
næsta mjólkurtímabils en 16 sýklalyfjakýr
sýktust," segir Paape. Þeir Bannerman hyggj-
ast birta niðurstöður sínar í vísindaritum.
Rannsóknastofnun bandaríska landbún-
aðarins hefur sótt um einkaleyfisvernd á
gersykurmeðferðinni og leitar nú að sam-
starfsaðila til frekari útfærslu og markaðs-
setningar til hefðbundinna og lífrænna
mjólkurbænda. Mörg fyrirtæki íhuga Poly-x
með þetta í huga en rannsóknastofnunin á (
samningaviðræðum um einkaleyfi á annarri
og eldri tækni við júgurbólguvarnir frá rann-
sóknasetrinu í Beltsville, þ.e. samskeytta
prótíninu CD14, sem binst og hlutleysir
inneitur sem júgurbólgusýklar framleiða.
(Sjá „An Udder Solution for Bossie's Woes,"
Agricultural Research, júní 2002, bls. 18.)—
Eftir Jan Suszkiw, starfsmann Agricultural
Research Service Information.
Þessi rannsókn heyrir undir Animal Health,
áætlun Rannsóknastofnun bandaríska land-
búnaðarins (#103), sem nánar er lýst á vef-
siðunni www.nps.ars.usda.gov.
Max J. Paape og Douglas Bannerman starfa
hjá genamengjarannsóknasetri nautgripa,
Bovine Functional Genomics Laboratory
undirstofnun Rannsóknastofnunar banda-
ríska landbúnaðarins.
„Ný meðferð við júgurbólgu gæti orðið
valkostur á móti sýklalyfjum" birtist í
febrúarhefti timaritsins Agricultural Rese-
arch 2006.
26
FREYR 09 2006