Freyr - 01.09.2006, Side 28
FISKIRÆKT
Sjávardvöl
laxins kortlögð
Veiðimálastofnun hefur endur-
heimt fimm laxa með rafeinda-
merki eftir ársdvöl í hafinu
IEftir Sigurð Má Einarsson og
Sigurð Guðjónsson,
Veiðimálastofnun
Vorið 2005 var 300 laxaseiðum sem
merkt voru með mælimerkjum sleppt
í Kiðafellsá í Kjós. Seiðin voru sérstak-
lega aiin vegna þessara rannsókna í
eldisstöðinni á Laxeyri í Borgarfirði.
Merkin eru ný smíð fyrirtækisins
Stjörnu-Odda og ekki hafa áður verið
búin til jafn smá og fullkomin merki.
Fjórir þessara laxa komu aftur í Kiða-
fellsá og einn til viðbótar í Elliðaárnar
eftir rúmlega ársdvöl í sjó. Við skoðun
á merkjunum kemur í Ijós að fjögur
þeirra hafa skráð hita og dýpi laxins
allan dvalartímann en eitt hætti því í
janúar af ókunnum orsökum. Þetta er
í fyrsta skipti í heiminum sem slíkar
upplýsingar fást um sjávardvöl laxins.
Með samanburði við umhverfisgögn
sjávar má síðan segja með talsverðri
vissu hvar laxinn heldur sig í hafinu
á hverjum tíma og þá hvað kann að
valda mismiklum afföllum hans. Þá
sýna niðurstöðurnar að laxinn heldur
sig að mestu í yfirborðslögum sjávar
en tekur dýfur niður á meira dýpi og
stundum mikið dýpi (dýpra en 500 m).
Meira er um slíkar dýfur á seinni hluta
sjávardvalarinnar og eru þær hugsan-
lega tengdar rötun fisksins til baka á
heimaslóð.
NÁNAR UM VERKEFNIÐ
Undanfarna áratugi hefur stærð laxastofna
Atlantshafslaxins farið sífellt minnkandi.
Ástæður eru margvíslegar, búsvæði er horf-
ið, mengun, áhrif fiskeldis, aukin þéttbýlis-
myndun o.fl. Þess utan hafa rannsóknir á
laxveiðiám við Norður-Atlantshaf leitt í Ijós
aukin afföll laxa á dvalartíma þeirra í sjónum,
sérstaklega hjá stofnum í ám sunnarlega í
Evrópu og í Norður-Ameríku. Á íslandi hefur
ekki orðið vart við sambærilega minnkun í
stofnstærð en tilfinnanleg fækkun hefur þó
orðið hjá laxi sem dvelur 2 ár í sjó í veiðiám
um allt land, en sá lax er mikilvægur bæði
fyrir veiðina og hrygninguna í ánum. Þessi
þróun hófst um miðjan síðasta áratug og
enn sér ekki fyrir endann á þessari lægð.
•r:y.v
Þrír laxar með mælimerki endurheimtir 17. ágúst 2006.
28
FREYR 09 2006