Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.2006, Síða 6

Freyr - 01.10.2006, Síða 6
HROSSARÆKT hestsins. Flest þau hross sem hæstar einkunn- ir hlutu á árinu náðu þeim árangri á lands- mótinu. Ekki verður hér rakið hvernig sæti skipuðust á mótinu sjálfu heldur getið þeirra hrossa í hverjum flokki sem hæstu einkunn- um náðu á sýningaárinu. Rétt er að geta þess áður en lengra er haldið að sú breyting var gerð á árinu að skipta flokki stóðhesta sem áður hefur heitið stóðhestar 6 vetra og eldri f tvo flokka, annars vegar stóðhesta 7 vetra og eldri og hins vegar stóðhesta 6 vetra. Meginástæða þessarar breytingar er að við útreikninga á kynbótamati eru ekki sömu leiðréttingarstuðlar notaðir við útreikn- inga á þessum aldurshópum, þ.e. 6 vetra hestar fá ívilnun upp á við vegna aldurs á sama hátt og 4 og 5 vetra hestar. STÓÐHESTAR 7 VETRA OG ELDRI Hæstu einkunn stóðhesta í þessum flokki og jafnframt hæstu einkunn sem stóðhest- ur hefur nokkru sinni fengið hlaut Stáli IS1998187002 frá Kjarri í Ölfusi (B: 8,26 H: 9,09 A: 8,76). Eigandi Stála er Helgi Egg- ertsson en knapi var Daníel Jónsson. Faðir Stála er Galsi frá Sauðárkróki, ff. Ófeigur frá Flugumýri, fm. Gnótt frá Sauðárkróki. Móðir Stála er Jónína frá Hala, mf. Þokki frá Garði, mm. Blökkfrá Hofsstöðum. Stála hef- Stáli frá Kjarri og Daníel Jónsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). ur lítið verið att fram í sýningum og keppni vegna slyss sem hann varð fyrir á unga aldri en nú kom hann fyrir almenningssjónir sem fullskapaður alhliðagæðingur. Stáli er vel gerður, hæstu byggingareinkunnir eru 9,0 fyrir bak/lend og samræmi og 8,5 fyrir háls/ herðar/bóga og hófa, veikleikinn í bygging- unni er 7,0 fyrir fótagerð. Hvað hæfileikana varðar er Stáli hreinn snillingur sem fáir eða engir standa á sporði. Hæstu einkunnir eru 9,5 fyrir skeið, vilja/geðslag og fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt. Helst mætti setja út á að brokkið gæti verið stinnara en þar hlaut hann 8,0. Stáli er léttbyggður hestur með grannan og mjúkan háls og hæfileika I besta flokki, búast má við og ekki að ástæðulausu að hann verði með alvinsæl- ustu stóðhestum landsins á næstu árum. Annar ( þessum flokki varð Þokki IS1997158430 frá Kýrholti í Skagafirði (B: 8,14 H: 8,97 A: 8,64). Eigendur Þokka eru Þorvaldur Árni Þorvaldsson og Ágrene- set A/S í Svíþjóð en knapi var Þorvaldur Árni. Faðir Þokka er Sólon frá Hóli og móðir Þörf frá Hólum. Þokki hefur góðan bygg- ingardóm þar sem hæstu einkunnir eru 8,5 fyrir háls/herðar/bóga, bak/lend og sam- ræmi. Prúðleikinn er sístur eða 7,0. Hvað hæfileikana varðar er Þokki mikill snillingur sem fer afburðafallega. Hæstu einkunnir eru 9,5 fyrir fegurð í reið og 9,0 fyrir tölt, skeið, stökk, vilja og geðslag og hægt tölt en lægst er fet 7,0. Þokki frá Kýrholti og Þorvaldur Árni Þorvaldsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). Þriðji varð Aðall IS1999135519 frá Nýja- bæ í Borgarfirði (B: 8,13 H: 8,97 A: 8,64). Eigandi Aðals er Ólöf Guðbrandsdóttir en knapi var Þórður Þorgeirsson. Faðir Aðals er Adam frá Meðalfelli en móðir Furða frá Nýjabæ. Geta má þess að Aðall er eini hátt dæmdi stóðhesturinn undan þeim fallna gæðingi Adam frá Meðalfelli og er verð- mæti hans að þvi leyti töluvert en fleira kem- ur til. Aðall er með góðan byggingardóm þar sem hæst ber 8,5 fyrir höfuð, bak/lend, hófa og prúðleika, engin einkunn bygging- ar er lág en lægst er einkunn fyrir réttleika 7,5. Aðall er rýmisgarpur á öllum gangi þar sem hæstu einkunnir eru 9,5 fyrir skeið og vilja/geðslag og 9,0 fyrir tölt og brokk, lægst er 7,0 fyrir fet. Aukastafir skildu að röð Þokka og Aðals i þessari upptalningu. Aðall frá Nýjabæ og Þórður Þorgeirsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). STÓÐHESTAR 6 VETRA Efstur á árinu í þessum flokki varð Eldjárn IS2000184814 frá Tjaldhólum í Hvolhreppi (B: 8,09 H: 8,85 A: 8,55). Eig- andi Eldjárns er Guðjón Steinarsson en knapi Guðmundur Björgvinsson. Faðir Eldjárns er Hugi frá Hafsteinsstöðum, ff. Hrafn frá Holts- múla, fm. Sýn frá Hafsteinsstöðum, móðir Eldjárns er Hera frá Jaðri, mf. Hervar frá Sauðárkróki, mm. Litla-Kolla frá Jaðri. Eldjárn hefur prýðilegan byggingardóm, hæst er 8,5 fyrir bak/lend, réttleika, hófa og prúðleika en slakast 7,0 fyrir höfuð. Eldjárn er frábær gæðingur, að vísu skeiðlaus en í fremstu röð klárhesta. Hæstu einkunnir eru 10,0 fyrir vilja/geðslag og 9,5 fyrir tölt, brokk og feg- urð í reið, engin einkunn er undir 8,0 nema skeiðeinkunnin 5,0. Eldjárn er frábærlega rúmur og fasmikill og hefur alla burði til að verða vinsæll til notkunar á næstu árum. Eldjárn frá Tjaldhólum og Guðmundur Björgvinsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). Annar í þessum flokki varð Fursti IS2000186002 frá Stóra-Hofi á Rangár- vöilum (B: 8,09 H: 8,78 A: 8,51). Eigandi Fursta er Bæring Sigurbjörnsson en knapi Daníel Jónsson. Faðir Fursta er Óður frá Brún en móðir Hnota frá Stóra-Hofi. Þess má geta að Hnota hlaut heiðursverðlaun fyrir afkvæmi á landsmóti nú í sumar. Fursti hefur góðan byggingardóm þar sem hæst ber 8,5 fyrir höfuð, samræmi og hófa, engin byggingareinkunn er lág en lægst er 7,5 fyrir fótagerð og réttleika. Fursti er alhliðagengur Fursti frá Stóra-Hofi og Daníel Jónsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). FREYR 10 2006

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.