Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.2006, Síða 8

Freyr - 01.10.2006, Síða 8
HROSSARÆKT Annar í flokki 4 vetra stóðhesta varð Krák- ur IS2002187812 frá Blesastöðum IA á Skeiðum (B: 8,24 H: 8,40 A: 8,34). Eigandi Kráks er Kráksfélagið ehf. en knapi var Þórður Þorgeirsson. Faðir Kráks er Töfri frá Kjartansstöðum og móðir Bryðja frá Húsa- tóftum. Krákur er með að flestu leyti góðan byggingardóm, hæst er 9,0 fyrir samræmi og 8,5 fyrir háls/herðar/bóga, bak/lend og hófa. Lægst og það sem til galla mætti telja er 7,0 fyrir fótagerð. Krákur er úrvalstöltari, ekki síst I Ijósi þess að hann er einungis fjög- urra vetra gamall. Hæst ber toppeinkunnina 9,5 fyrir tölt og þá 9,0 fyrir stökk, vilja/geðs- lag, fegurð i reið og hægt tölt. Lægst fyrir utan skeiðleysið er 6,5 fyrir fet. Krákur frá Blesastöðum IA og Þórður Þorgeirsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). Þriðji í þessum flokki varð Trostan IS2002187055 frá Auðsholtshjáleigu í Ölfusi (B: 8,00 H: 8,47 A: 8,28). Eigandi Trostans er Gunnar Arnarson og knapi Þórð- ur Þorgeirsson. Faðir Trostans er Orri frá Þúfu en móðir Tign frá Enni. Trostan er með jafnan drjúggóðan byggingardóm, hæst er 8,5 fyrir bak/lend en lægst 7,5 fyrir höfuð. Hæfileikarnir eru jafnir og góðir, hæst er 9,0 fyrir vilja/geðslag og 8,5 fyrir tölt, skeið og fegurð (reið, lægst er 7,0 fyrir fet. Trostan frá Auðsholtshjáleigu og Þórður Þorgeirsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). HRYSSUR 7 VETRA OG ELDRI Efst af elstu hryssunum á árinu varð Hvíta- Sunna IS1999257007 frá Sauðárkróki (B: 8,39 H: 8,65 A: 8,55). Eigandi Hvítu-Sunnu er Sauðárkróks-Hestar en knapi var Sigurð- ur V. Matthíasson. Faðir Hvítu-Sunnu er Spegill frá Sauðárkróki, ff. Fáni frá Hafsteins- stöðum, fm. Hervör frá Sauðárkróki. Móðir Hvítu-Sunnu er Vaka frá Sauðárkróki, mf. Angi frá Laugarvatni, mm. Sunna frá Sauðár- króki. Hvíta-Sunna er með glæsilegan bygg- ingardóm þar sem hæst er 9,0 fyrir bak/ lend og 8,5 fyrir höfuð, háls/herðar/bóga, samræmi, hófa og prúðleika, lægst er 7,5 fyrir réttleika. Hæfileikarnir eru ekki síðri, Hvíta-Sunna hefur mikið rými og fótaburð á öllum gangtegundum. Hæst er 9,5 fyrir fet og 9,0 fyrir brokk, vilja/geðslag og hægt tölt, lægst er 8,0 fyrir stökk og hægt stökk. Hvíta-Sunna er einkar falleg á litinn, leirljós með hvítt fax og tagl og blesótt að auki. Hvíta-Sunna frá Sauðárkróki og Sigurður V. Matthíasson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). Önnur í þessum flokki varð Fjörgyn IS1997288570 frá Kjarnholtum I í Bisk- upstungum (B: 8,13 H: 8,79 A: 8,52). Eigandi er Guðný Höskuldsdóttir en knapi Daníel Jónsson. Faðir Fjörgynjar er Kol- skeggur frá Kjarnholtum I en móðir Fjöður frá Melhóli 2. Fjörgyn er allvel byggð með hæst 9,0 fyrir höfuð og 8,5 fyrir háls/herð- ar/bóga og hófa, lægst er 7,5 fyrir bak/lend, fótagerð og réttleika. Fjörgyn er mikilvirk á öllum gangi, hæsta einkunn er 9,0 fyrir tölt, vilja/geðslag, fegurð í reið og fet en engin einkunn er undir 8,0. Þess er rétt að geta að árið 2005 var Fjörgyn einnig næsthæst ( sínum árgangi hryssna. Fjörgyn frá Kjarnholtum I og Daníel Jónsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). Þriðja í elsta flokki varð Álfrún IS1998225296 frá Reykjavík (B: 8,24 H: 8,63 A: 8,48). Eigandi Álfrúnar er Sigurður V. Ragnarsson en knapi var Steingrímur Sig- urðsson. Faðir Álfrúnar er Oddur frá Selfossi en móðir Álfadís frá Kópavogi. Álfrún er með háan byggingardóm þar sem hæst ber 8,5 fyrir höfuð, samræmi, fótagerð og rétt- leika, engin byggingareinkun er undir 8,0. Álfrún er afbragðs alhliðagengur gæðingur, hæstu einkunnir eru 9,0 fyrir skeið og vilja/ geðslag og 8,5 fyrirtölt, brokk, fegurð í reið, hægt tölt og hægt stökk. Álfrún stóð einnig þriðja efst í sínum árgangi árið 2005. Álfrún frá Reykjavík og Steingrímur Sigurðsson. (Ljósm. Eiríkur Jónsson). HRYSSUR6 VETRA Efst í 6 vetra flokki hryssna á árinu varð Ösp IS2000258308 frá Hólum í Hjaltadal (B: 8,46 H: 8,76 A: 8,64). Eigandi Aspar er Hóla- skóli en knapi var Mette Mannseth. Faðir Aspar er Markús fré Langholtsparti, ff. Orri frá Þúfu, fm. Von frá Bjarnastöðum. Móðir Aspar er Þokkabót frá Hólum, mf. Fjölnir frá Kópavogi, mm. Þóra frá Hólum. Ösp er með feiknaháan byggingardóm þar sem hæst ber 9,0 fyrir samræmi og hófa og 8,5 fyrir höfuð og háls/herðar/bóga, lægst er 7,5 fyrir réttleika. Ösp er afbragðsgóð á öllum gangi, viljug og fer vel, hæst fékk hún 9,0 fyrir brokk, stökk, vilja/geðslag og fegurð í reið og 8,5 fyrir tölt, skeið, hægt tölt og hægt stökk. Eina einkunnin undir 8,0 er 7,5 fyrir fet. Ösp frá Hólum og Mette Mannseth. (Ljósm. Eiríkur Jónsson) FREYR 10 2006

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.