Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.2006, Síða 14

Freyr - 01.10.2006, Síða 14
LÍFELDSNEYTI Etanólframleiðsla af íslenskum túnum - skref til sjálfbærrar orkuframleiðslu í Ijósi umræðu um mengun, orku- framleiðslu og ný hlutverk landbún- aðar er rétt að velta fyrir sér hvert hlutverk íslensks landbúnaðar geti verið á sviði etanólframleiðslu. GRÓÐURHÚSAÁHRIF Gróðurhúsahrif stafa af auknum styrk ýmissa oxíða í andrúmsloftinu. Þar spilar koltvísýringur stórt hlutverk en hann kem- ur fyrst og fremst frá bruna olíu og gass. Árið 1957 lýstu franskir vísindamenn þess- um áhrifum best:„Mannkynið er að fram- kvæma þá stærstu tilraun á sviði jarðeðlis- fræði sem gerð hefur verið. Aldrei hefur það gerst og mun aldrei geta gerst aftur að á nokkrum öldum sé sleppt út f andrúms- loftið og í höfin því gríðarlega magni lífræns kolefnis sem safnast hefur fyrir í setlögum í hundruð milljónir ára." Áhrifin hljóta að vera ófyrirséð (Himmel o.fl., 1997). Árið 2005 var lífeldsneyti (biofuel) nærri 2% af heimsnotkun bensíns. Á etanól þar stærstan hlut á undan lífdísel. Árabilið 2000 til 2005 fór framleiðsla etanóls úr 17 í 46 milljarða lítra (Brown, 2006). Jarðeldsneyti notað á bifreiðar og flutn- ingstæki í heiminum stendur fyrir um 25% af losun gróðurhúsalofttegunda (Scobie, 2006). Notkun lífeldsneytis á venjulegar vélar dregur verulega úr losun mengandi efna og það hefur verið metið að ef etanól sé notað í 95% blöndu með bensíni á léttar bifreiðar megi draga úr CO^ losun um 90% (Himmel. o.fl., 1997). EVRÓPA Evrópusambandið hefur markað sér þá stefnu að auka hlutdeild Itfeldsneytis. Er það einn af liðunum til að ná markmiðum Kyoto- bókunarinnar um minnkandi losun CO^. Markmiðið var að árið 2005 yrðu 2% af orku- notkun frá endurnýjanlegum orkugjöfum og 5,75% árið 2010. Þessi markmið hafa ekki náðst í öllum aðildarríkjum en flest eru þó á góðri leið. Einnig hefur Evrópusambandið sett sér öryggismarkmið með því að stefna að því að árið 2020 verði það sjálfu sér nægt með um 20% þeirrar orku sem þarf til að halda uppi samgöngum (EU, 2003). Það eru þó ekki öll aðildarríki sambandsins þessu sammála og t.d. sögðust Danir ekki stefna að neinni hlutdeild lífeldsneytis í sínum flutn- ingageira en frekar í framleiðslu rafmagns og hita. Þessi afstaða Dana stafar meðal annars af því að mesta áherslan hefur til þessa verið á framleiðslu díseleldsneytis úr olíufræjum. Ræktun þeirra í Danmörku hefur talsverð umhverfiséhrif, þ.e. krefst mikils áburðar og talsverðar notkunar plöntuvarnarefna en í nokkur ár hafa Danir unnið markvisst að því að draga úr notkun þessara efna. En með tækniþróun í vinnslu etanóls úr lífmassa er talið að afstaða Dana muni breytast (Birr-Ped- ersen, 2006). ETANÓL Það er rétt að árétta að etanól er fræðiheit- ið yfir það sem flestir kalla „spíra". Upp á erlenda tungu er etanól, sem er notað á bifreiðar, yfirleitt kallað bioethanol til að tilgreina sérstaklega að það sé framleitt úr lífmassa (bio=líf). Etanól er framleitt með því að gerja plöntu- massa, s.s. korn, maís, sykurreyr, sykurrófur eða hálm. Stærstu framleiðendur etanóls í heiminum eru Brasilía með 15 milljarða lítra og Bandaríkin með 13 milljarða. Brasilía not- ar aðallega sykurreyr til framleiðslunnar en Bandaríkin maís. Hægt er að framleiða etanól úr í raun hvaða sykrum sem er. Þar sem stórt hlutfall allra plantna er sykrur er mögulegt að fram- leiða etanól úr flestum plöntum. Með núver- andi tækni er auðveldast að framleiða etanól úr einföldum sykrum, s.s. hexósa og pentósa. Sykurreyr hefur mjög hátt hlutfall hexósa og því hentar hann mjög vel til etanólframleiðslu (Thomsen o.fl., 2003). í kornræktarlöndum, s.s. Bandaríkjunum og Evrópu, er algengara að framleiða etanól úr sterkju af maís, byggi eða hveiti. En einungis hluti af uppskeru þess- ara plantna er notaðurtil gerjunar. Til að auka sjálfbæra framleiðslu á etanóli er nauðsynlegt að þróa aðra möguleika til framleiðslunnar. Er þá horft til nýtingar annarra tegunda plantna og eins betri nýtingar plantna með því að nota t.d. einnig hálminn með korninu. Einnig er horft til trjáa og ýmiss konar úrgangs. Það eru fjölsykrurnar sellulósi og hemisellu- lósi sem eru nýtanlegar. Þær eru bundnar í plöntufrumum með lignini sem erónýtanlegt til etanólframleiðslu en það má brenna og nota sem orkugjafa t.d. til suðu á hráefninu eða einfaldlega til rafmagns-, gufu- eða hita- framleiðslu. Einnig gæti komið til greina að nýta það sem áburð eða til uppgræðslu allt eftir aðstæðum og það er engin ástæða til að flokka þennan hluta sem verðlausan úrgang. Mörgum er kunnugt að framleiðsla á etan- óli fer fram í tveimur meginstigum: gerjun og eimingu. Einungis einsykrur geta gerjast en sykrur í plöntum eru yfirleitt fjölliður og því þarf formeðferð til að brjóta þær upp. Sú aðferð sem hefur notið mestrar hylli er vatnssuða og niðurbrot með örverum. Sýru- meðferð er einnig möguleg en óneitanlega gerir hún ferlið heldur óviðfelldnara vegna eitur- og slysahættu við notkun sýrunnar. Venjulegt ger er notað til gerjunarinnar og 14 FREYR 10 2006

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.