Freyr

Árgangur

Freyr - 01.10.2006, Síða 23

Freyr - 01.10.2006, Síða 23
JARÐRÆKT Myndin sýnir streymi vatns að affalli. Mikilvægt er að vera með nokkurskonar varnarbelti neðst í hallanum sem síar jarðvegsagnir og tekur til sín næringarefni. Teikn. óþekktur (Robert Evans et al. 1996a) Framræst og vel gróið ræktunarland þar sem tap jarðvegs og næringarefna er vænt- anlega í lágmarki. Ljósm. Árni Snæbjörnsson úr efsta og frjósamasta lagi svarðarins. Heildaráhrifin eru þau að jarðvegurinn sem eftir er verður grófari og ófrjósamari. Þar sem jarðvegur er þykkur og hlutfall fínni efna er hátt getur mjög mikið fokið úr landinu án þess að frjósemi dali veru- lega. Moldrok úr mýrarjarðvegi inniheldur að mestu lífræn efni og þar sem mýrarnar eru þykkar getur tap næringarefna þvi ver- ið verulegt. Jarðvegur úr neðri lögum, oft áburðarfrekari, kemur upp á yfirborðið. Eftir sáningu er hætta á að grasfræ fjúki eða skolist til þannig að gróðurþekjan geti orðið ójöfn. I kjölfar rofs í efstu lögum akursins koma kornfræ upp á yfirborðið og ná ekki að spíra. í þeim tilfellum þar sem jarðvegsrof er mikið getur brunnið við að fjúki ofan af niðursettum kartöflum. ÁHRIF Á NÆRLIGGJANDI SVÆÐI Sandfok stoppar fljótt við fyrirstöðu. Fyrir- staða getur verið skurður, lækur, á eða vatn sem þá fyllist smátt og smátt. Gróðurlendi stoppar fok jarðvwegsagna og við það safnast jarðvegsefni smátt og smátt upp og mynda þykkari jarðveg. Þar sem foksandur fer yfir myndast þykkur og ófrjór sendinn jarðvegur og veldur það yfirleitt tjóni. Fínu kornin sem berast lengra dreifast á stærra svæði en bæta einnig næringarefnum við jarðveginn sem fyrir fokinu verður. Hávaxinn gróður, kjarr og skóglendi síar sérstaklega mikið af fínum ögnum úr loftinu. ( þeim til- fellum þar sem skóglendi er nálægt ökrum sem mikið fýkur úr tekur það að jafnaði við miklu af áfokinu. Hlutfall mélu, leirs og lífrænna efna eykst og jarðveguinn verður þykkari með tímanum. í öllum tilfellum gildir að með foki eða gruggugu vatni sem rennur af ökrum berst mikið af næringarefnum burt. Þetta getur leitt til ofauðgunar næringarefna í tjörnum og vötnum eins og vel er þekkt í löndum Moldrok í Eyjafjarðarsveit í júní 2006. Ljósm. Jón Ingi Cæsarsson með mikla akuryrkju. Áburðaráhrifa gætir þó sérstaklega þar sem fínna fokið sest til. Þetta getur haft mikil og jákvæð áhrif ef það berst á ófrjósamt land. ÁHRIF Á LOFT Yfirborðsrennsli í akurlendi getur valdið tjóni, auk þess sem vindur á greiða leið að opnum sverðinum. Ljósm. L. 0ygarden (G. Wilhelmsen 1998) Moldrok orsakar rykmengun í lofti. Þegar moldrokið er sýnilegt er það mjög mikið og veldur skaða. Moldrok er hvimleitt, það dregur úr skyggni og veldur óþægindum. Rykið sest til og óhreinkar allt sem það sest á og er í alla staði hvimleitt. Jarðvegs- rykið er frekar grófkorna og hefur því ekki eins alvarleg áhrif á heilsu og smágert iðnaðarryk. Jarðvegsrykið er ekki hlaðið skaðlegum efnum eins og oftast er í ryki frá iðnaði. hætta á útskolun jarðvegs með yfirborðs- vatni og slíkt þarf að reyna að koma í veg fyrir. Þá er oft gripið til þess ráðs að koma svokölluðum varnarbeltum/gróðurbeltum fyrir næst affalli eða við brekkurætur. I sum- um löndum er það hluti af ræktunaráætlun að koma upp slíkum varnarbeltum og í Finnlandi er mælt með að slík belti séu allt að 5% af flatarmáli alls ræktunarlands (Jari Koskiaho, 2002). HRINGRÁS VATNSINS Vatn, sem fellur til jarðar með úrkomu eða berst að með árennslisvatni, ýmist gufar upp, sígur í gegnum jarðveginn eða renn- ur í burtu sem yfirborðsvatn í næsta affall. í hallandi og opnu landi er alltaf veruleg ÚTSKOLUN JARÐVEGS í hallandi landi getur laus og nýunnin jarðvegsþekja farið illa í leysingum eða úrkomutíð. Varast ber að vinna slíkt land að hausti eða að vetri. ( mörgum löndum er jarðvinnsla að hausti bönnuð vegna þess FREYR 12 200S 23

x

Freyr

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.