Freyr

Volume

Freyr - 01.10.2006, Page 32

Freyr - 01.10.2006, Page 32
HROSSARÆKT Skýrsluhald í hrossarækt 2006 ÞÁTTTAKA OG UMFANG Alls voru 3.499 einstaklingar skráðir sem þátttakendur í skýrsluhaldi hrossaræktarinn- ar um mánaðamótin september/október 2006. Ljóst er að nær allir þeir sem stunda markvissa hrossarækt eru innan skýrslu- haldsins. Ef bornar eru saman tölur um ásett folöld úr forðagæsluskýrslum annars vegar og úr skýrsluhaldinu hins vegar kemur í Ijós að rúmlega 90% allra ásettra folalda eru innan skýrsluhaldsins. Nýjustu tölur úr gagnavörslukerfinu WorldFeng segja okkur að þar séu nú skráð rúmlega 263.000 hross í að minnsta kosti tuttugu og fjórum löndum og hefur þeim fjölgað um nær 30.000 á einu ári þannig að gagnabankinn vex hratt og hraðar en Tafla 1. Staðsetning hrossa sem skráð eru á lífi Land Fjöldi Hlutfall Austurríki 1.400 0,9% Bandaríkin 2.909 1,9% Belgía 951 0,6% Bretland 727 0,5% Danmörk 18.653 12,4% Ekki vitað 2.146 1,4% Finnland 1.740 1,2% Frakkland 264 0,2% Færeyjar 95 0,1% Grænland 16 0,0% Holland 6.300 4,2% Irland 43 0,0% Island 81.533 54,2% Italía 270 0,2% Kanada 134 0,1% Litháen 2 0,0% Lúxemborg 110 0,1% Noregur 5.227 3,5% Nýja-Sjáland 7 0,0% Slóvenia 16 0,0% Sviss 1.523 1,0% Svíþjóð 17.401 11,6% Ungverjaland 24 0,0% Þýskaland 8.876 5,9% Samtals: 150.367 100% á síðustu árum. Af skráðum hrossum eru tæp 150.000 skráð á lífi og má sjá staðsetn- ingu þeirra í töflu 1. Ljóst er að hérlendis er skráning komin langlengst á veg því giskað er á að íslensk hross t.d. í Þýskalandi séu nú um 50.000. Utan (slands eru Danir og Svíar komnir hvað lengst í skráningu sinna hrossa en þessi misserin er unnið ötullega að skrán- ingu víða um heim. Þegar einstaklingur vill hefja skýrsluhald þarf hann að snúa sér til viðkomandi búnað- arsambands og fá aðstoð við að grunnskrá hrossin.Þá þarf að svara spurningum um fæð- ingarár, nafn, uppruna, lit, ætt og eigendur. Þegar þessum áfanga er náð er eftirleik- urinn auðveldur. Að hausti berast skýrslu- höldurum í hendur tvenns konar eyðublöð til útfyllingar: 1. Afdrifaskýrsla. Á hana færast upplýsing- ar um afdrif hrossa sem skráð eru í eigu viðkomandi aðila. Merkja þarf við hafi hrossið drepist, verið fellt eða folar geltir. Einnig er hægt að merkja við að hrossið hafi verið selt. 2. Folaldaskýrsla. Á þessari skýrslu koma fram hryssur sem mögulega gætu átt fol- öld. Þarna þarf að merkja við hafi hryss- an verið geld, látið eða henni ekki haldið árið á undan. Þá er hægt að merkja við ef folald hefur fæðst og að lokum er hægt að merkja við hver afdrif folaldsins hafi verið hafi það ekki verið sett á. Annað þarf ekki til svo skýrsluhaldið gangi nokkuð snurðulaust fyrir sig. IEftir Guðlaug V. Antonsson, landsráðunaut í hrossarækt, Bændasamtökum íslands (töflu 2 kemur fram fjöldi skráðra, ásettra folalda fæddra 2005 eftir landsvæðum og hversu mörg þeirra eru A-vottuð og hlutfall þeirra. Til samanburðar eru árin 2003 og 2004. Ásett folöld veturinn 2005/2006 voru 5.138 sem er 454 folöldum fleira en árið 2004 sem er umtalsverð fjölgun og sú mesta um nokkurra ára skeið. Langflest eru þau í Rangárvallasýslu en næst koma Skagafjörð- ur, Árnessýsla og Húnavatnssýslur. Einnig sést að gæði skýrsluhaldsins eru vaxandi hjá þeim sem það stunda en til að hrossið fái A-vottun í dag þarf að uppfylla þrjú skilyrði skýrsluhalds eða færa sönnur á ætterni með DNA-greiningu. Þau skilyrði sem uppfylla þarf í skýrsluhaldi eru í fyrsta lagi að skila fyrir áramót fyljunarvottorðum yfir hryssur sem haldið var á árinu, í öðru lagi að skila árlegum skýrslum skýrsluhaldsins fyrir ára- mót og í þriðja lagi að skila inn örmerkingar- vottorðum folalda fyrir 1. mars árið eftir að þau fæðast. Nú er hlutfall A-vottaðra folalda farið að nálgast 40% sem er umtalsverð aukning milli ára, nokkursvæði eru nú þegar yfir 50% hvað þennan þátt varðar. Á mynd 1 sést skipting ásettra folalda 2005 eftir hrossaræktarsambandssvæðum. Mynd 1. Hlutfallslegur fjöldi ásettra og skráðra folalda 2005 eftir hrossaræktar- sambandssvæðum 3% 1 % 15% 47% 10% □ Hrs. □ Hrs. □ Hrs. □ Hrs. ■ Hrs. □ Hrs. ■ Hrs. □ Hrs. ■ Hrs. Suðurlands Vesturlands Dalamanna V-Húnvetninga A-Húnvetninga Skagfirðinga Eyfirð. og Þing. Austurlands A-Skaftfellinga 32 FREYR 10 2006

x

Freyr

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Freyr
https://timarit.is/publication/863

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.