Freyr - 01.10.2006, Side 34
HROSSARÆKT
Tilgangur myndatökunnar er að minnka
tíðni spatts í íslenska hrossastofninum.
Mikilvægast í þeirri baráttu er að finna þá
hesta sem á unga aldri greinast með brjósk-
eyðingu I hækilliðum.
EISTNAMÆLINGAR/EISTNASKOÐUN
Á árinu var lögð aukin áhersla á eistnamæl-
ingar og eistnaskoðun á öllum stóðhestum
sem til dóms komu. Alls voru athuganirnar
um 400, af þeim reyndust aðeins 10 stóð-
hestar, eða 2,5%, hafa svo ríka eistnagalla
að ástæða væri til að skrá það í WorldFeng
en hrossaræktarráðunautur Bl sér um þá
skráningu. Ferli athugasemda sem gerðar
voru var á þann veg að ef eigendur/knapar
voru ekki sáttir við niðurstöðu dómnefndar
höfðu þeir þrjár vikur til að afla nýs úrskurð-
ar hjá dýralækni. Kæmi hann ekki fram
voru athugasemdir settar í WorldFeng. Þeir
gallar sem alvarlegir voru taldir og skráðir
voru eru: eineistni, mikill stærðarmunur á
eistum og ef bæði eistu sneru öfugt.
ÚTFLUTNINGUR HROSSA
Vissar áhyggjur vekur að útflutningur
hrossa hefur heldur farið minnkandi á und-
anförnum árum þó engin vafi sé á að verð-
mæti þeirra hrossa sem út eru flutt hafi
aukist umtalsvert. Einkum eru það keppn-
is- og kynbótahross sem flutt eru út á góðu
verði en meginfjöldinn er tilkominn vegna
almennra reiðhesta og reiðskólahrossa sem
ekki fæst hátt verð fyrir og hafa í raun
ekki hækkað ( verði um alllangt skeið. Hitt
er einnig deginum Ijósara að verslun með
hross er lífleg innanlands þannig að sá
markaður hefur að stórum hluta komið í
stað útflutnings. Sífellt fleiri sjá sér hag í
að stunda hestamennsku bæði til gagns
og ánægju, ný hesthúsahverfi rísa og versl-
un með allt er tengist hestamennsku er
blómleg svo ekki sé minnst á alla þá sem
hafa atvinnu sína beint eða óbeint af grein-
inni. (töflu 3 er yfirlit yfir útflutt hross eftir
einstökum löndum frá 1996 til 5. október
í ár. Eins og undanfarin ár er langmestur
útflutningur til þriggja landa þ.e. Svíþjóðar,
Þýskalands og Danmerkur. Illa gengur að
vinna stóra markaði í öðrum löndum þó
Finnland hafi verið lofandi markaður á und-
anförnum árum. Útflutningur til annarra
landa einkennist af miklum sveiflum sem
erfitt er að sjá fyrir.
SKÝRSLUHALDIÐ Á NÆSTU ÁRUM
Sú stefna hefur verið mörkuð af fagráði
í hrossarækt að pappírsskýrsluhald skuli
minnkað. Nokkur skref hafa verið stigin (
þessa átt á undanförnum árum. Nú í haust
verður pappírsnotkunin enn dregin saman
því skýrslum verður fækkað um eina frá
fyrri árum. Undanfarin ár hafa skýrsluhald-
arar fengið í hendur svokallaða yfirlits-
skýrslu með yfirliti yfir kynbótamat allra
hrossa búsins. ( haust verður þessi skýrsla
ekki send út en hana geta þeir nálgast
sem hafa aðgang að WorldFeng en aðrir
hjá sínum búnaðarsamböndum hafi þeir
áhuga á því. Pappírssparnaður er ekki eina
ástæðan fyrir því að þessi ákvörðun var
tekin. í fyrsta lagi hefur útsending þessarar
skýrslu seinkað útsendingu annarra gagna
vegna þess að beðið hefur verið eftir nýju
kynbótamati, í öðru lagi hefur stór hluti
skýrsluhaldara aðgang að WorldFeng og í
þriðja lagi er stefnan sú að á næstu árum
fái þeir aðeins pappírsgögn í skýrsluhaldi
sem þess óska en öðrum verði gert kleift
að skrá sitt skýrsluhald beint í WorldFeng.
Hér að framan var minnst á DNA-grein-
ingar hrossa. Nú hefur fagráð ákveðið
að frá og með næsta hausti fái aðeins
þau hross A-vottun á ætterni sem sanna
það með DNA-greiningu. Á aðalfundi FEIF
(Alþjóðasamtaka (slandshestafélaga) í sept-
ember síðastliðnum var ákveðið að frá og
með árinu 2010 þyrftu allir stóðhestar sem
til dóms koma að vera DNA-greindir með
tilliti til ætternis.
Tafla 3. Útflutningur hrossa 1995 til 5. október 2006.
Land 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 Samtals
Austurríki 80 87 76 44 23 31 39 35 28 55 53 31 582
Belgía 8 1 9 1 6 4 3 4 2 8 46
Kanada 104 73 162 44 17 19 77 10 3 3 7 1 520
Sviss 96 118 120 118 147 106 95 76 81 98 77 43 1.175
Þýskaland 1.127 1.078 820 531 457 377 314 185 198 240 269 160 5.756
Danmörk 401 255 228 268 308 203 150 259 232 327 320 148 3.099
Finnland 16 122 56 41 71 67 96 72 105 121 162 86 1.015
Færeyjar 15 16 11 13 16 11 10 7 9 8 1 117
Frakkland 3 3 2 1 3 11 6 3 2 34
Bretland 23 16 25 22 13 11 12 30 8 16 17 16 209
Graenland 3 5 2 10 4 2 8 4 2 40
ítalia 11 27 7 3 3 5 2 4 9 6 77
Luxembourg 3 1 2 1 2 3 2 1 15
Flolland 59 55 69 56 60 45 49 26 16 19 24 8 486
Noregur 137 177 173 159 127 249 279 200 172 114 134 53 1.974
Svíþjóð 407 647 690 582 557 543 421 388 472 450 335 271 5.763
USA 116 158 117 108 150 219 208 194 106 100 78 44 1.598
Slóvenía 1 1 1 10 4 17
Nýja-Sjáland 4 1 2 7
írland 2 1 2 5
Ungverjaland 4 1 2 7
2.609 2.840 2.564 1.994 1.955 1.897 1.765 1.506 1.455 1.578 1.501 878 22.542
34
FREYR 10 2006