Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 4
Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra . Bókaðu JÓL Í SÓL Síðustu sætin með afslætti v/forfalla! Fuerte- ventura 21. des í 11 nætur Tenerife 20. des í 14 nætur Gran Canaria 19. des í 14 nætur Hafnarfjörður Bjarg íbúðafélag hefur óskað eftir því að fjölga íbúðum um helming á lóð sem það hefur fengið úthlutað í Hraun skarði í Hafnarfirði. Björn Traustason, framkvæmdastjóri Bjargs, segir fjölda íbúða á lóðinni og kvaðir um ytra útlit húsanna útiloka að hægt sé að byggja hagkvæmar litlar íbúðir fyrir þá tekjulægstu. Bjarg íbúðafélag er húsnæðis- sjálfseignarstofnun sem er rekin án hagnaðarmarkmiða og er ætlað að tryggja aðgengi að hagkvæmu, öruggu og vönduðu íbúðarhús- næði. Félagið var stofnað af BSRB og Alþýðusambandi Íslands og sitja forsvarsmenn þeirra í stjórn Bjargs. Hinn 30. desember 2016 fékk Bjarg samþykkt stofnframlag ríkis- ins vegna lóðar fyrir 32 íbúðir í sex litlum fjölbýlum við Hraunskarð. Ljóst var að sá fjöldi væri ekki hag- kvæmur og var óskað eftir fjölgun íbúða um tíu og var það samþykkt í maí á þessu ári. Nú fer Bjarg fram á að geta byggt 60 íbúðir í tveimur byggingum í stað 42 íbúða í samtals sex fjöl- býlishúsum. „Það er okkar mat að skipulagið hamli því að við getum byggt hagkvæmar litlar íbúðir. Markmiðið er að byggja íbúðir fyrir lægstu tekjutíundirnar og því þurfum við að byggja hagkvæmt til að verkefnið standi undir sér,“ segir Björn. Erindi Bjargs var tekið til umræðu á fundi skipulagsráðs Hafnarfjarðar í gær. Málið verður unnið áfram í bæjarkerfinu með Bjargi og von verður á niðurstöðu í málinu á fyrsta fundi nefndarinnar á nýju ári, sem áætlaður er þann 9. janúar. – sa Vilja byggja helmingi fleiri íbúðir en skipulag gerir ráð fyrir Bjarg vill byggja 60 íbúðir í tveimur byggingum. FréttaBlaðið/Vilhelm Kjaramál Viðræður flugvirkja við Samtök atvinnulífsins (SA) halda áfram í dag. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, segir að viðræður hafi mjakast áfram á fundi í gærkvöldi. „Tím- inn er á þrotum og það dregur að úrslitastund,“ segir Halldór. „Ég segi kannski ekki að fundur- inn hafi verið alveg árangurslaus en við erum allavega á svipuðum stað eftir fundinn og við vorum fyrir hann,“ segir Óskar Einarsson, for- maður Flugvirkjafélags Íslands. Flugvirkjar hjá Icelandair hafa boðað til ótímabundins verkfalls frá og með klukkan sex næstkom- andi sunnudagsmorgun. Talið er að verkfallið myndi hafa áhrif á um tíu þúsund farþega á dag. Um 300 flug- virkjar starfa nú hjá flugfélaginu. Halldór segir að búið sé að bjóða „mjög sanngjarnar launahækkanir sem eru algjörlega í takt við það sem aðrir í samfélaginu eru að fá. Það er útilokað að einn hópur geti skorið sig úr þegar kemur að kjara- samningum. Kröfur flugvirkja eru himinháar og langt umfram það svigrúm sem er til staðar til launa- hækkana.“ Hann segir að flugvirkj- um hjá Icelandair hafi fjölgað mikið undanfarin ár – hefur flugfélagið ráðið um 100 flugvirkja til starfa – samhliða því að hafa fært viðhalds- verkefni í auknum mæli til Íslands. Sigurður Ingi Jóhannsson sam- gönguráðherra sagði í gær að stjórn- völd hefðu ekki uppi „nein áform um að setja lög“ á boðaðar verk- fallsaðgerðir flugvirkja. Samningar flugvirkja hjá Icelandair losnuðu í lok ágúst. Var kjaraviðræðum vísað til ríkissáttasemjara 8. september. Halldór segir það eiga að vera sameiginlegt markmið allra aðila á vinnumarkaði að viðhalda stöðug- leika og þeim árangri sem náðst hefur í að hækka kaupmátt launa á síðustu árum. „Hvort sem þar er um að ræða flugvirkja og Icelandair, eða aðra hópa og önnur fyrirtæki.“ Hlutabréfaverð Icelandair hefur lækkað nokkuð í vikunni vegna fregna af mögulegu verkfalli flug- virkja og í gær lækkaði gengi bréfa félagsins um 1,66 prósent í 260 milljóna króna viðskiptum. hordur@frettabladid.is Dregur æ nær úrslitastund í viðræðum flugvirkja og SA Framkvæmdastjóri SA segir ekkert dæmi um viðlíka hækkun líkt og flugvirkjar fara fram á síðustu áratugi. Boðað hefur verið til ótímabundins verkfalls frá og með klukkan sex næstkomandi sunnudagsmorgun. Ekki eru uppi áform um að setja lög á verkfallið sem talið er að muni hafa áhrif á um tíu þúsund farþega á dag. Hlutabréfaverð Icelanda- ir hefur lækkað nokkuð í vikunni vegna fregna af mögulegu verkfalli flugvirkja Bretland Meirihluti breska þings- ins samþykkti í gær breytingartil- lögu á Brexit-frumvarpi sem gekk út á að nauðsynlegt verði að bera lokaútgáfu samningsins við Evr- ópusambandið um væntanlega útgöngu Breta undir þingið. Ther- esa May forsætisráðherra barðist gegn tillögunni og hefur áður sagt að lögbundin trygging um slíka atkvæðagreiðslu gæti komið í veg fyrir hnökralausa útgöngu úr sam- bandinu. Það voru þingmenn Íhaldsflokks- ins, flokks May, sem tryggðu meiri- hluta í málinu og var flokkurinn því klofinn í málinu. Dominic Grieve, þingmaður Íhaldsflokksins, var flutningsmaður tillögunnar.  Alls kusu 309 þingmenn með en 305 á móti. Þetta er í fyrsta skipti sem ríkis- stjórnin býður ósigur á þinginu í málum sem lúta að Brexit-stefn- unni, að því er BBC greinir frá. Segir jafnframt í umfjöllun miðilsins að gagnrýnendur þessarar ákvörðunar hafi í umræðum á þinginu sagt að með þessu væri verið að trufla ferlið og reyna að binda hendur ríkis- stjórnarinnar. Mikil óvissa ríkti í aðdraganda atkvæðagreiðslunnar. Sagði Nick Eardley, blaðamaður BBC, stuttu áður en þingmenn greiddu atkvæði að útlit væri fyrir að stór hluti upp- reisnargjarnra Íhaldsmanna myndi frekar sitja hjá en greiða atkvæði með tillögunni. Íhaldsmennirnir Paul Masterton og George Freeman greindu sjálfir frá því að þeir hygð- ust sitja hjá. „Það olli okkur vonbrigðum að þingið skyldi samþykkja þessa breytingartillögu þrátt fyrir þær tryggingar sem við höfum nú þegar gefið,“ sagði talsmaður ríkisstjórn- arinnar eftir atkvæðagreiðsluna í gær. – þea Theresa May gat ekki smalað köttunum theresa may, forsætisráðherra Bret- lands, gat ekki tryggt sér stuðning flokksmanna sinna. FréttaBlaðið/ePa dómsmál Aldís Hilmarsdóttir fær engar skaðabætur frá íslenska ríkinu. Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði ríkið í málinu í gær og málskostnaður var felldur niður. Aldís, sem var yfirmaður fíkniefna- deildar lögreglunnar á höfuðborgar- svæðinu, stefndi ríkinu vegna ákvörð- unar Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur lögreglustjóra um að færa hana til í starfi í fyrra. Tilfærsluna taldi Aldís jafngilda ólögmætri brottvikningu úr starfi. Krafðist hún ógildingar ákvörðunar- innar og 126 milljóna króna í skaða- bætur. Ríkislögmaður fullyrti á móti að lögreglustjóri hafi haft fulla heim- ild til að breyta starfsskyldum Aldísar tímabundið. – kk Aldís fær engar bætur frá ríkinu 126 milljóna krafðist Aldís í skaðabætur Flugvirkjar icelandair hafa boðað til verkfalls frá og með klukkan sex á sunnudagsmorgun. FréttaBlaðið/Vilhelm lögreglumál Lögreglunni á höfuð- borgarsvæðinu barst á þriðjudag tilkynning um að mannslík hefði fundist í Fossvogsdal í Reykjavík. Vitni komu að látnum karlmanni rétt fyrir klukkan fjögur á þriðjudag. Líkið fannst í skurði við læk nálægt vinnusvæði í dalnum. Lögregla hefur reynt að bera kennsl á hinn látna en talið er að um sé að ræða íslenskan karlmann á fertugsaldri. Margeir Sveinsson aðstoðaryfir- lögregluþjónn segir að ekkert bendi til að nokkuð saknæmt hafi átt sér stað. Verið sé að rannsaka hvað gerðist og meðal annars hvort um slys hafi verið að ræða. – ngy Lík fannst í Fossvogsdal 1 4 . d e s e m B e r 2 0 1 7 f I m m t u d a g u r4 f r é t t I r ∙ f r é t t a B l a ð I ð 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 7 C -3 7 2 4 1 E 7 C -3 5 E 8 1 E 7 C -3 4 A C 1 E 7 C -3 3 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 B F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.