Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 66
Hvað gera Vigga, Óli bróðir og tvíburarnir á á undu hæð, þegar bannað er að halda húsdýr í blokkinni? Jú, auðvitað stofna þau dýragarð. DÝRAGARÐURINN ÓLAFUR HAUKUR SÍMONARSON SJÁLFSTÆTT FRAMHALD Geisladiskur Hafdís Bjarnadóttir: Já HHHHH Útgáfa: Hafdís Bjarnadóttir Hér á Íslandi getur „já“ þýtt ótal margt. Það fer eftir því hvernig það er sagt; blíðlega, í spurnartón, hrana­ lega, reiðilega, glaðlega og þar fram eftir götunum. Svo er það líka sagt á innsoginu, eða tvisvar, „já, já“ – jafnvel oftar. Þessar ólíku hliðar orðsins eru yrkisefni Hafdísar Bjarnadóttur tón­ skálds í fyrsta verkinu á geisladiski sem ber einmitt heitið Já. Hún klippti öll „jáin“ úr upptöku af samræðu á kaffihúsi og bjó til tónlist úr þeim. Undir er líflegur taktur og blásturs­ hljóðfæri sem líkja eftir því hvernig hægt er að segja þetta orð. Inn í það fléttast laglína sem er leikin á rafgítar, skemmtileg og grípandi. Andrúms­ loftið er glaðlegt og frjálst; útkoman minnir dálítið á þýsku tilrauna­ rokksveitina Can, sælla minninga. Hafdís er vaxandi tónskáld, um það er engum blöðum að fletta. Hún hefur margoft vakið athygli fyrir framsækið tónmál sem er fágað, fín­ legt og hugvitsamlegt. Hún kann list hófseminnar, fer vissulega langt með hugmyndir sínar, en ekki um of. Sum tónskáld missa sig út í fanatík, festast í einhverju tilteknu og týnast þar. Haf­ dís er hins vegar full af skáldskap og hún kemur honum frá sér með frjóu ímyndunarafli. Spennandi fjölbreytni ríkir á geisladiskinum. Þar eru upptökur af umhverfishljóðum, sveimkenndur kórsöngur, þráhyggjukenndur tré­ blástur og poppaðir raftónar með líflegum trommuleik. Allan tímann svífur húmor yfir vötnunum, án þess þó að platan sé beinlínis fyndin. Haf­ dís einfaldlega umfaðmar ólíka tón­ listarstíla og hrærir þeim saman á per­ sónulegan og áhrifaríkan hátt. Tónlistin er samt ekki fyrir alla. Sum verkin eru býsna ómstríð og gætu kallað fram ofnæmisviðbrögð hjá viðkvæmum. En jafnvel þar er smekkvísi í fyrirrúmi, það er aldrei gengið yfir strikið. Alltaf er eitthvað kræsilegt handan við hornið ef hlust­ andinn bara bíður í smá stund. Hafdís var staðartónskáld á Sumar­ tónleikum í Skálholti fyrir nokkru. Síðasta tónsmíðin á diskinum, Tungl­ sjúkar nætur, er samið fyrir kammer­ kórinn Hljómeyki fyrir hátíðina. Á diskinum blandast kórsöngurinn og rafhljóð saman við upptöku af Einari Má Guðmundssyni að lesa upp ljóðið sem liggur til grundvallar. Útkoman er íhugul en notalega kæruleysisleg, og hún smám saman verður að ein­ hverju ómældu, óljósu og óumræði­ legu sem er afar fallegt. Flutningurinn á öllum verkunum er til fyrirmyndar. Þetta er fjölbreytt­ ur hópur söngvara og hljóðfæraleik­ ara sem of langt mál væri að telja upp hér. En túlkun þeirra er áhrifamikil, í senn ljóðræn og snörp, dreymin og kraftmikil. Heildarmyndin er svo sannarlega hrífandi. Jónas Sen Niðurstaða: Athyglisverð og skemmtileg tónlist, glæsilegur flutningur. Tónlist um tunglsjúka nótt Lokaæfingin áðan var æðisleg. Nú mega jólin koma fyrir mér,“ segir Sig­ríður Ósk Kristjánsdóttir söngkona glaðlega þegar hún er spurð út í jólatón­ leikana sem hún stendur fyrir í Sel­ tjarnarneskirkju annað kvöld, föstu­ dag, og hefjast klukkan 20. Hún segir þá fara fram við tindrandi kertaljós og heita Sígild jól. „Ég stefni að því að gera þá að árvissum viðburði og fá til liðs við mig hina ýmsu félaga mína úr söngvarastétt,“ segir hún. Í ár syngja með Sigríði Ósk þau Hallveig Rúnarsdóttir sópran og Ágúst Ólafsson barítón. Um með­ leik sjá Lenka Mátéová orgelleikari og Sigurður Halldórsson sellóleikari. Níels T. Girerd, betur þekktur sem Nilli, verður kynnir kvöldsins. „Hugmyndin hjá mér er að reyna að ná svipaðri stemningu og í sveita­ kirkjum. Þar skapast svo mikil nánd milli áheyrenda og flytjenda. Þess vegna er líka bara söngur og orgel, reyndar bætum við sellói við til að ná meiri dýpt,“ segir Sigríður Ósk. Er þá ekki Seltjarnarneskirkja óþarflega stór? „Nei, hún er nefni­ lega ekki svo stór og orgelið er niðri sem er stór þáttur í því að ná þeirri nánd sem við viljum. Við héldum tónleika þar á þessum tíma í fyrra, þá upplifðum við einstaka stemningu og jólaandinn mætti. Við erum að vona að það gerist aftur.“ En hvað er á dagskránni? „Það eru sálmar, íslensk og erlend jólalög og þjóðlög og við skjótum líka inn gullmolum úr óperum eftir Mozart og Händel. Meðal annars syngjum við tríó úr Così fan tutte sem er eitt fallegasta tríó sem Mozart samdi. Einnig syngjum við Hallveig saman Heims um ból. Það er útsetning sem hún Sigríður Ella, söngkennarinn minn, gróf upp. Hún söng hana þegar hún var lítil. Alveg ótrúlega falleg. Við vitum ekki eftir hvern sú útsetning er, þetta eru gamlar nótur.“ Sigríður Ósk segir að Lenka, Sig­ urður og hún hafi æft í nóvember því þau hafi farið með hluta dagskrár­ innar til Strassborgar í Frakklandi á opnunarhátíð stærsta jólamarkaðar í Evrópu þar sem Ísland er heiðurs­ gestur. „Við komum fram í Cathredal Notre Dame, risastórri kirkju í miðri borginni. Þetta voru opnir tónleikar, allir velkomnir og kirkjan fylltist næstum. En ljósin voru svo sterk á okkur flytjendunum að við sáum ekki neitt. Reyndum bara að finna fyrir fólkinu,“ lýsir hún og lofar því að lýsingin verði notalegri í Seltjarn­ arneskirkju annað kvöld klukkan 20. Vill ná sömu stemningu og í sveitakirkju Trúarleg tónlist, jólalög og þjóðlög, auk gullmola úr óperum Mozarts og Händels, verða á dagskrá jólatón- leika söngkonunnar Sigríðar Óskar Kristjánsdóttur og félaga hennar í Seltjarnarneskirkju annað kvöld. Sigríður Ósk, Ágúst, Hallveig, Lenka og Sigurður ætla að skapa hátíðlegt andrúmsloft í kirkjunni. FréttabLaðið/anton brink Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Hafdís bjarnadóttir bregður á leik. FréttabLaðið/SteFÁn 1 4 . d e s e m B e r 2 0 1 7 F i m m t u d a G u r54 m e N N i N G ∙ F r É t t a B l a ð i ð 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 6 6 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -6 3 9 4 1 E 7 C -6 2 5 8 1 E 7 C -6 1 1 C 1 E 7 C -5 F E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.