Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 64

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 64
Sjálfstæði þjóðar, sjálfs­mynd og menning er bundin órjúfan­legum böndum. Þetta vissi Sigurður Guðmundsson og aðrir aðstandendur Kvöldfélagsins sem var starfrækt á árunum 1861 til 1874 og hafði víðtæk áhrif á menningu, umhverfi og listalíf þjóðar í mótun og leit að sjálfstæði. Sigurður Guðmundsson málari var einn af stofnendum félagsins og helsti talsmaður, og hlutur hans verður seint ofmetinn í íslenskri menningarsögu þó að hann hafi ekki farið ýkja hátt til þessa. Nýverið kom þó út bókin Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöld­ félagið 1858­1874, greinasafn í ritstjórn þeirra Terry Gunnell, prófessors í þjóðfræði við HÍ, og Karls Aspelund, lektors í hönnun við University of Rhode Island, og er bókin tilnefnd til Íslensku bók­ menntaverðlaunanna. Hér er á ferðinni afar viðamikið og vandað verk en Terry Gunnell segir að hann hafi sjálfur fyrst feng­ ið veður af Sigurði og verkum hans þegar hann kom hingað til lands til þess að vinna að BA­ritgerð sinni um íslenska leiklist við háskólann í Birmingham. „Það var 1976 að Þor­ geir Þorgeirsson sagði mér aðeins frá Sigurði og þeim áhrifum sem hann hafði og síðan þá hef ég haft mikinn áhuga á honum. Það er stór­ furðulegt að koma út í kirkjugarð þar sem legsteinninn hans stendur máður og ómerktur og annað eftir því. Auk þess var lítið til af rituðu efni um Sigurð, engin ýtarleg ævisaga eða annað slíkt og samt var þetta maðurinn sem var einhvern veginn á bak við Þjóðleikhúsið, Þjóðminja­ safnið, útivistarsvæðið í Laugardal, og íslenska þjóðbúninginn. Þetta var maðurinn sem sagði Jóni Árna­ syni fyrstur þjóðsöguna Móðir mín í kví, kví og var meira að segja hug­ myndasmiðurinn að turninum á Skólavörðuholti. Sigurður var maður sem hafði gríðarleg áhrif á menn­ ingu þessarar þjóðar en einhvern veginn dettur hann út af kortinu, er svona ýtt út úr myndinni og það er mikilvægt að draga hann aftur inn. Karl Aspelund, meðritstjóri minn, skrifaði doktorsritgerð um Sigurð og þjóðbúninginn og hann upplifði þessa sömu jaðarsetningu á þessum merkilega manni.“ Maður sem vildi meira Terry segir að þessi jaðarsetning á Sigurði og verkum hans eigi sér ekki augljósar og einhlítar skýringar. „Það hefur verið skrifað um hann og minnst á hann hér og þar en vandinn var eflaust að Danir voru mjög á móti Sigurði og hann á móti þeim. Samt var það Sigurður sem hannaði tjald fyrir konunginn þegar hann kom til Íslands 1874 og þá ætlaði konungur að gefa honum gullpening fyrir verkið. Hins vegar lögðust dönsku embættismennirnir gegn þessum fyrirætlunum þannig að Sigurður fékk aldrei gullpeninginn og dó svo í sárri fátækt aðeins nokkrum dögum síðar. Kerfið var á móti honum enda var þetta maður sem fór sínar eigin leiðir og átti það til að vera afar hvassyrtur,“ segir Terry og hlær. „Orðbragð hans var reyndar ekki upp á það besta og þetta var ekki ýkja þolinmóður maður þannig að það gekk stundum mikið á. Styrkur Sigurðar var að hann hafði brenn­ andi áhuga á því að Ísland skapaði sína eigin menningu. Fyrir honum var ekki nóg að Ísland öðlaðist sjálf­ stæði heldur vildi hann að Íslend­ ingar gætu staðið til jafns við aðrar þjóðir og til þess þarf menningu. Þess vegna þurfti leiklist, leikhús og söfn því það þarf að sýna söguna. Sýna bæði þjóðinni og öðrum hvaðan þessi þjóð er runnin.“ Skapaði hefð Spurður um það hvað valdi því að leiklistin hafi verið svona veiga­ mikill þáttur í verkum Sigurðar, segir Terry að það megi rekja til þess þegar hann fór fyrst til Kaupmanna­ hafnar 16 ára gamall. „Hugmyndin var að hann lærði húsamálun en hann gafst nú upp á því á nokkrum vikum. Þá fer hann út í leikhúsið og þar myndast þessi tenging að mála og skapa rými, þetta er það sama og hann gerði seinna með Þjóðminja­ safnið til að mynda, þannig að þessi sviðslistanálgun verður honum mjög hugleikin. Úti í Danmörku sér hann tableaux vivants í fyrsta sinn, kemur heim og setur upp fullt af slíkum sviðssetningum með máluðum bak­ grunni, leikurum, ljósi og hljóði. Hann hvetur líka aðra til þess að semja verk á íslensku sem takast á við íslenskar kringumstæður og er alltaf að kenna. Hann lifði sam­ kvæmt sínu eigin slagorði: Það þarf að laga alla þjóðina. Þetta er auð­ vitað alveg frábært.“ Terry segir að í raun hafi Sigurður tekið þessa leikhúsnálgun og útvíkk­ að hana fyrir alla þjóðina en hann hafi líka sjálfur verið einhvers konar leikari. „Ég var að skoða sögurnar sem hann sagði á sagnaskemmtun og þar virðist hann oft hafa endað sögurnar á draugalegum nótum, eins og Móðir mín í kví, kví eða Djákninn á Myrká og þarna kom fram drama­ tíski leikarinn í honum. Þetta var maðurinn sem var á bak við Úti­ legumenn Matthíasar, og Nýársnótt Indriða Einarssonar og með þessu var sköpuð hefð fyrir íslenskum leik­ ritum. Hefð sem mjög fljótt fluttist út um allt land og líka erlendis. Sveinn Einarsson skrifaði grein um þetta í bókinni. Þetta voru fyrst og fremst söguleg leikrit og verk byggð á þjóð­ sögum og hafði mikil áhrif.“ Fyrir framtíðina Terry segir að Sigurður verði fyrst og fremst skilgreindur sem frumherji. „Þetta var mjög framsýnn maður með stóra drauma um öðruvísi land og þjóð, öðruvísi menningu. Hann kom heim frá Danmörku með fullt af nýjum hugmyndum og festist hér. Á þeim þrettán árum sem Kvöldfélag­ ið starfaði gerðist gríðarlega mikið. Þetta var allt öðruvísi en hjá Jónasi frá Hriflu í upphafi tuttugustu aldar þegar líkaminn og karlmennska voru í forgrunni. En í Kvöldfélag­ inu var verið að tala um konurnar og menntun þeirra. Hið andlega og listræna skipti miklu máli, auk þess sem þetta var rammpólitískt. Þetta var félag sem var á móti kerfinu og fyrir vikið lenti Sigurður í ónáð. En Sigurður var maður sem ég hefði viljað hitta og helst hanga sold­ ið með,“ segir Terry léttur. „En það sem vantar núna er stytta af mann­ inum. Ég vil að hún verði niðri í Aðal­ stræti og að hann halli sér þar upp að vegg og stari á Morgunblaðshöllina. En þetta á líka að vera stytta sem má klæða, snerta og gefa trefla eins og menn gerðu fyrir Sigurð þegar hann var á lífi. Þessi stytta mundi standa fyrir framsýni og hugsjónir unga fólksins og framtíðardrauma.“ Sigurður var maður sem ég hefði viljað hanga með Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið 1858-1874 er ný bók um frum- kvöðul sem mótaði íslenska menningu og hugmyndir okkar  í aðdraganda sjálfstæðis þjóðarinnar. Terry Gunnell hefur haft áhuga á Sigurði Guðmundssyni allt frá því hann var að vinna að BA-ritgerð sinni árið 1976. FréTTABlAðið/Ernir Sigurður Guðmundsson málari við vinnu sína. Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r52 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð menning 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 6 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -6 8 8 4 1 E 7 C -6 7 4 8 1 E 7 C -6 6 0 C 1 E 7 C -6 4 D 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.