Fréttablaðið - 14.12.2017, Qupperneq 64
Sjálfstæði þjóðar, sjálfsmynd og menning er bundin órjúfanlegum böndum. Þetta vissi Sigurður Guðmundsson og aðrir aðstandendur
Kvöldfélagsins sem var starfrækt
á árunum 1861 til 1874 og hafði
víðtæk áhrif á menningu, umhverfi
og listalíf þjóðar í mótun og leit að
sjálfstæði. Sigurður Guðmundsson
málari var einn af stofnendum
félagsins og helsti talsmaður, og
hlutur hans verður seint ofmetinn
í íslenskri menningarsögu þó að
hann hafi ekki farið ýkja hátt til
þessa. Nýverið kom þó út bókin
Málarinn og menningarsköpun:
Sigurður Guðmundsson og Kvöld
félagið 18581874, greinasafn í
ritstjórn þeirra Terry Gunnell,
prófessors í þjóðfræði við HÍ, og
Karls Aspelund, lektors í hönnun
við University of Rhode Island, og
er bókin tilnefnd til Íslensku bók
menntaverðlaunanna.
Hér er á ferðinni afar viðamikið
og vandað verk en Terry Gunnell
segir að hann hafi sjálfur fyrst feng
ið veður af Sigurði og verkum hans
þegar hann kom hingað til lands til
þess að vinna að BAritgerð sinni
um íslenska leiklist við háskólann í
Birmingham. „Það var 1976 að Þor
geir Þorgeirsson sagði mér aðeins
frá Sigurði og þeim áhrifum sem
hann hafði og síðan þá hef ég haft
mikinn áhuga á honum. Það er stór
furðulegt að koma út í kirkjugarð
þar sem legsteinninn hans stendur
máður og ómerktur og annað eftir
því. Auk þess var lítið til af rituðu
efni um Sigurð, engin ýtarleg ævisaga
eða annað slíkt og samt var þetta
maðurinn sem var einhvern veginn
á bak við Þjóðleikhúsið, Þjóðminja
safnið, útivistarsvæðið í Laugardal,
og íslenska þjóðbúninginn. Þetta
var maðurinn sem sagði Jóni Árna
syni fyrstur þjóðsöguna Móðir mín
í kví, kví og var meira að segja hug
myndasmiðurinn að turninum á
Skólavörðuholti. Sigurður var maður
sem hafði gríðarleg áhrif á menn
ingu þessarar þjóðar en einhvern
veginn dettur hann út af kortinu, er
svona ýtt út úr myndinni og það er
mikilvægt að draga hann aftur inn.
Karl Aspelund, meðritstjóri minn,
skrifaði doktorsritgerð um Sigurð
og þjóðbúninginn og hann upplifði
þessa sömu jaðarsetningu á þessum
merkilega manni.“
Maður sem vildi meira
Terry segir að þessi jaðarsetning á
Sigurði og verkum hans eigi sér ekki
augljósar og einhlítar skýringar.
„Það hefur verið skrifað um hann og
minnst á hann hér og þar en vandinn
var eflaust að Danir voru mjög á móti
Sigurði og hann á móti þeim. Samt
var það Sigurður sem hannaði tjald
fyrir konunginn þegar hann kom til
Íslands 1874 og þá ætlaði konungur
að gefa honum gullpening fyrir
verkið. Hins vegar lögðust dönsku
embættismennirnir gegn þessum
fyrirætlunum þannig að Sigurður
fékk aldrei gullpeninginn og dó svo
í sárri fátækt aðeins nokkrum dögum
síðar. Kerfið var á móti honum enda
var þetta maður sem fór sínar eigin
leiðir og átti það til að vera afar
hvassyrtur,“ segir Terry og hlær.
„Orðbragð hans var reyndar ekki
upp á það besta og þetta var ekki
ýkja þolinmóður maður þannig að
það gekk stundum mikið á. Styrkur
Sigurðar var að hann hafði brenn
andi áhuga á því að Ísland skapaði
sína eigin menningu. Fyrir honum
var ekki nóg að Ísland öðlaðist sjálf
stæði heldur vildi hann að Íslend
ingar gætu staðið til jafns við aðrar
þjóðir og til þess þarf menningu. Þess
vegna þurfti leiklist, leikhús og söfn
því það þarf að sýna söguna. Sýna
bæði þjóðinni og öðrum hvaðan
þessi þjóð er runnin.“
Skapaði hefð
Spurður um það hvað valdi því að
leiklistin hafi verið svona veiga
mikill þáttur í verkum Sigurðar,
segir Terry að það megi rekja til þess
þegar hann fór fyrst til Kaupmanna
hafnar 16 ára gamall. „Hugmyndin
var að hann lærði húsamálun en
hann gafst nú upp á því á nokkrum
vikum. Þá fer hann út í leikhúsið og
þar myndast þessi tenging að mála
og skapa rými, þetta er það sama og
hann gerði seinna með Þjóðminja
safnið til að mynda, þannig að þessi
sviðslistanálgun verður honum mjög
hugleikin. Úti í Danmörku sér hann
tableaux vivants í fyrsta sinn, kemur
heim og setur upp fullt af slíkum
sviðssetningum með máluðum bak
grunni, leikurum, ljósi og hljóði.
Hann hvetur líka aðra til þess að
semja verk á íslensku sem takast
á við íslenskar kringumstæður og
er alltaf að kenna. Hann lifði sam
kvæmt sínu eigin slagorði: Það þarf
að laga alla þjóðina. Þetta er auð
vitað alveg frábært.“
Terry segir að í raun hafi Sigurður
tekið þessa leikhúsnálgun og útvíkk
að hana fyrir alla þjóðina en hann
hafi líka sjálfur verið einhvers konar
leikari. „Ég var að skoða sögurnar
sem hann sagði á sagnaskemmtun
og þar virðist hann oft hafa endað
sögurnar á draugalegum nótum, eins
og Móðir mín í kví, kví eða Djákninn
á Myrká og þarna kom fram drama
tíski leikarinn í honum. Þetta var
maðurinn sem var á bak við Úti
legumenn Matthíasar, og Nýársnótt
Indriða Einarssonar og með þessu
var sköpuð hefð fyrir íslenskum leik
ritum. Hefð sem mjög fljótt fluttist út
um allt land og líka erlendis. Sveinn
Einarsson skrifaði grein um þetta í
bókinni. Þetta voru fyrst og fremst
söguleg leikrit og verk byggð á þjóð
sögum og hafði mikil áhrif.“
Fyrir framtíðina
Terry segir að Sigurður verði fyrst og
fremst skilgreindur sem frumherji.
„Þetta var mjög framsýnn maður
með stóra drauma um öðruvísi land
og þjóð, öðruvísi menningu. Hann
kom heim frá Danmörku með fullt af
nýjum hugmyndum og festist hér. Á
þeim þrettán árum sem Kvöldfélag
ið starfaði gerðist gríðarlega mikið.
Þetta var allt öðruvísi en hjá Jónasi
frá Hriflu í upphafi tuttugustu aldar
þegar líkaminn og karlmennska
voru í forgrunni. En í Kvöldfélag
inu var verið að tala um konurnar
og menntun þeirra. Hið andlega og
listræna skipti miklu máli, auk þess
sem þetta var rammpólitískt. Þetta
var félag sem var á móti kerfinu og
fyrir vikið lenti Sigurður í ónáð.
En Sigurður var maður sem ég
hefði viljað hitta og helst hanga sold
ið með,“ segir Terry léttur. „En það
sem vantar núna er stytta af mann
inum. Ég vil að hún verði niðri í Aðal
stræti og að hann halli sér þar upp að
vegg og stari á Morgunblaðshöllina.
En þetta á líka að vera stytta sem má
klæða, snerta og gefa trefla eins og
menn gerðu fyrir Sigurð þegar hann
var á lífi. Þessi stytta mundi standa
fyrir framsýni og hugsjónir unga
fólksins og framtíðardrauma.“
Sigurður var maður sem ég hefði viljað hanga með
Málarinn og menningarsköpun: Sigurður Guðmundsson og Kvöldfélagið 1858-1874 er ný bók um frum-
kvöðul sem mótaði íslenska menningu og hugmyndir okkar í aðdraganda sjálfstæðis þjóðarinnar.
Terry Gunnell hefur haft áhuga á Sigurði Guðmundssyni allt frá því hann var að vinna að BA-ritgerð sinni árið 1976. FréTTABlAðið/Ernir
Sigurður Guðmundsson málari við vinnu sína.
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r52 m e n n I n G ∙ F r É T T A b L A ð I ð
menning
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-6
8
8
4
1
E
7
C
-6
7
4
8
1
E
7
C
-6
6
0
C
1
E
7
C
-6
4
D
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K