Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 18
FRÍKIRKJAN Í REYKJAVÍK HElgIHAld á AðVENtu og Jólum 14. desember kl. 20 Aðventukvöld, fjölbreytt og glæsilegt tónlistarkvöld. Gestir kvöldsins verða hjónin Jóga Gnarr og Jón Gnarr. Jón mun lesa úr bókinni þúsund kossar og síðan svara þau hjón fyrirspurnum á eftir. Fram koma: Kammerkór Hafnarfjarðar undir stjórn Helga Bragasonar, hljómsveitin Mantra ásamt Gunnari Gunnarssyni sem jafnframt er organisti kirkjunnar og stjórnandi sönghóps, barnakór Fríkirkjunnar undir stjórn Álfheiðar Björgvinsdóttur og barnakór Landakotsskóla undir stjórn Nönnu Hlífar Ingvadóttur. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. 17. desember kl. 14:00 Heilunarguðsþjónusta. Á vegum Sálarrannsóknarfélags Íslands, Fríkirkjunnar og Kærleikssetursins. Aðfangadagur 24. desember kl. 18:00 Aftansöngur á aðfangadagskvöldi. Auður Guðjohnsen syngur einsöng. Sönghópurinn við Tjörnina syngur jólin inn og leiðir safnaðarsöng undir stjórn Gunnars Gunnarssonar. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. Aðfangadagur 24. desember kl. 23:30 miðnætursamvera á jólanótt. Ellen Kristjánsdóttir söngkona ásamt strengjasveit. Sr. Hjörtur Magni talar til viðstaddra. Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. Mætið vel tímanlega til að fá góð sæti!. Jóladagur 25. desember kl. 14:30 Hátíðarguðsþjónusta á jóladag. Ljósanna hátíð fagnað með rísandi sól.Egill Ólafsson söngvari syngur og spjallar um tónlistarval sitt. Sr. Hjörtur Magni, Sönghópurinn við Tjörnina ásamt Gunnari Gunnarssyni. gamlársdagur 31. desember kl. 17:00 Aftansöngur á gamlársdag. Hljómsveitin Eva ásamt Sönghópnum við Tjörnina leiða safnaðarsöng ásamt Gunnari Gunnarssyni, organista. Sr. Hjörtur Magni leiðir stundina. Almenna leigufélagið ehf., kt. 611013-0350, Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, Íslandi, hefur birt grunnlýsingu í tengslum við 30.000.000.000 króna útgáfuramma skuldabréfa og víxla félagsins. Grunnlýsingin, sem er dagsett 13. desember 2017, hefur verið staðfest af Fjármálaeftirlitinu. Grunnlýsingin er birt vegna fyrirhugaðrar umsóknar félagsins um töku skuldabréfa og víxla félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland. Grunnlýsingin, sem er á íslensku, er birt með rafrænum hætti á vef Almenna leigufélagsins ehf., http://www.al.is/#!/investors. Fjárfestar geta einnig nálgast grunnlýsinguna sér að kostnaðarlausu á skrifstofu Almenna leigufélagsins ehf. að Suðurlandsbraut 30, 108 Reykjavík, í 12 mánuði frá dagsetningu hennar. María Björk Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Almenna leigufélagsins ehf., veitir nánari upplýsingar í síma 519 6450 / 774 0604 eða í gegnum netfangið maria@al.is. Reykjavík, 14. desember 2017. Birting grunnlýsingar ARGENTÍNA Dómari í Argentínu hefur gefið út handtökuskipun á hendur fyrrverandi forseta lands- ins, Cristinu Fernández de Kirchner. Fernández, sem var forseti frá 2007 til 2015, er sökuð um samvinnu við erlent ríki til að koma í veg fyrir rannsókn á mesta hryðjuverkinu í sögu Argentínu. Voveiflegt andlát sérstaks saksóknara kemur einnig við sögu. Í janúar árið 2015 fannst sak- sóknarinn Alberto Nisman látinn á heimili sínu í Búenos Aíres með skotsár á höfði nokkrum klukku- stundum áður en hann átti að koma fyrir þingið og kynna skýrslu sína um meinta aðild Fernández að hinu svokallaða „Irangate“ þegar hún var forseti. Sérstaki saksóknarinn hafði árið 2006 sakað íranska embættismenn um að standa á bak við sprengju- árásina á menningarsetur gyðinga í Búenos Aíres í júlí 1994. Alls lét- ust 85 manns í árásinni og um 300 særðust. Nisman hélt því fram að liðsmenn Hizbollah hefðu framið hryðjuverkið. Í skýrslu sinni sem til stóð að kynna fyrir þinginu árið 2015 sak- aði Nisman Cristinu Fernández de Kirchner og utanríkisráðherra hennar, Héctor Timerman, um að hafa hylmt yfir meinta aðild Írana að hryðjuverkinu. Saksóknarinn fullyrti að ríkisstjórn Fernández hefði með því viljað tryggja hag- stæða viðskiptasamninga við Íran, einkum viðskipti með olíu frá Íran, að því er greint er frá á fréttavef BBC. Argentínumenn voru slegnir yfir fullyrðingum saksóknarans og veltu því fyrir sér hvernig dauða hans hefði borið að höndum. Samkvæmt rannsókn sem stjórn Fernández fyrirskipaði svipti saksóknarinn sig lífi. Hundruð þúsunda Argentínu- manna efndu til mótmæla á götum úti og sökuðu yfirvöld um að standa á bak við andlát saksóknarans. Eftir að flokkur Fernández, Perón- istaflokkurinn, missti völdin fyrir tveimur árum var fyrirskipuð ný rannsókn. Niðurstaðan varð sú að Nisman hefði verið myrtur. Það var svo í síðustu viku sem dómarinn Claudio Bonadio fyrir- skipaði handtöku forsetans fyrrver- andi og nokkurra embættismanna vegna ásakananna um samkomu- lagið við Íran. Fernández, sem nú er orðin þingmaður, efndi til blaða- mannafundar og sagði ásakanirnar fáránlegar. Ekki verður hægt að handtaka hana nema þingið aflétti friðhelgi hennar. Enn standa yfir rannsóknir vegna ásakana um að forsetinn fyrrver- andi hafi hagnast gríðarlega á því að taka við mútugreiðslum vegna byggingaverkefna og með því að hafa áhrif á gengi argentínska gjald- miðilsins. ibs@frettabladid.is Handtaka fyrrverandi forseta fyrirskipuð Cristina Fernández de Kirchner, fyrrverandi Argentínuforseti, er sökuð um að hafa hylmt yfir meinta aðild Írana að hryðjuverkaárás í Búenos Aíres til að tryggja hagstæða viðskiptasamninga. Saksóknari fannst látinn með skotsár á höfði. Argentínsk yfirvöld voru sögð bera ábyrgð á andláti hans. Cristina Fernández de Kirchner vísar öllum ásökunum á bug. FRÉTTABLAÐIÐ/EPA Christina Fernández de Kirchner var forseti Argent- ínu frá 2007 til 2015 BANdARÍkiN Roy Moore, frambjóð- andi Repúblikana í Alabama til öld- ungadeildar Bandaríkjaþings, laut í lægra haldi fyrir Demókratanum Doug Jones þegar talið var upp úr kjörkössunum í fyrrinótt. Moore tap- aði með minnsta mun en einungis 20.000 atkvæði af 1,3 milljónum skildu frambjóðendurna að. Verður Jones því fyrsti Demókratinn til að sitja í öldungadeildinni fyrir Demó- krata í aldarfjórðung. Moore játaði sig hins vegar ekki sigraðan í gær og hafði hann ekki gert það þegar Fréttablaðið fór í prentun. „Þegar svona mjótt er á munum er þetta ekki búið,“ sagði Repúblikaninn, sem sakaður hefur verið um kynferðisbrot gegn stúlk- um undir lögaldri, við stuðnings- menn sína í fyrrinótt. John Merrill, innanríkisráðherra Alabama, sagði í viðtali við CNN í gær að Moore væri svo sannarlega ekki sigurvegari kosninganna. Jafn- framt sagði hann að ekki yrði ráðist sjálfkrafa í endurtalningu atkvæða. „Ég er viss um að þetta skiptir fram- boð hans máli og ég er viss um að þetta skiptir ýmsa aðra máli. Ég er hins vegar ekki viss um að Doug Jones hafi miklar áhyggjur af þessu,“ sagði Merrill. Rík hefð er fyrir því í Bandaríkj- unum að sá sem lýtur í lægra haldi hringi í sigurvegarann í kjölfar kosn- inga og færi honum hamingjuóskir. Þess er skemmst að minnast að í aðdraganda forsetakosninga síðasta árs neitaði Trump að heita því að virða niðurstöður kosninganna og hringja slíkt símtal án þess að gengið væri úr skugga um að ekki hefði verið svindlað á honum. – þea Moore játar ekki ósigur Doug Jones, nýkjörinn öldungadeildarþingmaður fyrir hönd Alabama. Hann fékk 20.000 fleiri atkvæði en frambjóðandi Repúblikana. NoRDICPHoTos/AFP 1 4 . d E s E m B E R 2 0 1 7 F i m m T U d A G U R18 F R é T T i R ∙ F R é T T A B L A ð i ð 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 4 F B 0 8 8 s _ P 0 7 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 7 C -2 D 4 4 1 E 7 C -2 C 0 8 1 E 7 C -2 A C C 1 E 7 C -2 9 9 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 B F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.