Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 42
Það virðist sem
fordómar fyrir
andlitsförðun karla séu
að hverfa, en enn um sinn
er erfitt að segja hvort
þetta sé tímabundin
tískubylgja eða varanleg
þróun, né hvaða áhrif
þetta gæti haft.
Oddur Freyr
Þorsteinsson
oddurfreyr@365.is
Tabúið í kringum andlitsförðun karla virðist vera að hverfa. NORDICPHOTOS/GETTY
Sífellt fleiri karlmenn nota andlitsfarða og förðunar-vörufyrirtæki eru farin að
bregðast við með auknu framboði
á förðunarvörum fyrir karlmenn. Í
vor ætlar svo enskt förðunarvöru-
fyrirtæki sem sérhæfir sig í vörum
fyrir karlmenn að opna sínu fyrstu
verslun. Það virðist sem fordómar
gegn andlitsförðun karla séu að
hverfa, en enn um sinn er erfitt að
segja hvort þetta er tímabundin
tískubylgja eða varanleg þróun og
hvaða áhrif þetta gæti haft.
Ekki lengur tabú
Karlmenn úr raunveruleikasjón-
varpi hafa tekið þátt í auglýsinga-
herferðum, fegurðarbloggarar hafa
kynnt og vakið athygli á þessari
tísku, í janúar síðastliðnum notaði
Maybelline karlmann í auglýsingu
fyrir maskara og í ágúst sagði
yfirmaður L’Oréal að það væri
ekki lengur tabú fyrir karlmenn af
„sjálfukynslóðinni“ að nota and-
litsfarða. Hann spáði því líka að
innan fimm til sjö ára væru komin
afgreiðsluborð fyrir karlmenn í
verslanir sem selja förðunarvörur.
Sífellt fleiri þekkt merki hafa tekið
þátt í þessari þróun og bjóða nú
förðunarvörur sem eru sérstaklega
fyrir karlmenn.
Þessi þróun helst að nokkru
leyti í hendur við þróun í átt að
kynlausum fatnaði sem sést hjá
mörgum stórum merkjum um
þessar mundir.
Fjölbreyttur markhópur
Í sumar byrjaði tískuvefurinn
Asos að selja andlitsfarða sem er
sérstaklega ætlaður körlum til að
svara þessari nýju eftirspurn. Asos
selur vörur frá MMUK, sem er sex
ára gamalt breskt förðunarvöru-
fyrirtæki fyrir karlmenn. Hagn-
aður fyrirtækisins hefur aukist
hratt síðan það var stofnað og í
vor stefnir MMUK á að opna sína
fyrstu verslun í Brighton.
Talskona fyrirtækisins, Lucy
Atkinson, segir að opnun fyrstu
verslunarinnar sé tákn um hvernig
karlmenn nútímans séu að fín-
stilla snyrtiþarfir sínar og hafi
ekki lengur áhyggjur af tabúum í
tengslum við að þeir farði sig.
Atkinson segir að markhópur
fyrirtækisins hafi upprunalega
verið samkynhneigðir karlar, en
það hafi fljótt komið í ljós að þeir
væru bara hluti af markaðnum.
Stór hluti viðskiptavinanna eru
gagnkynhneigðir karlar sem vilja
halda hraustlegu og unglegu útliti
til að hjálpa til með starfsferilinn,
annar stór hluti er karlar á aldr-
inum 15 til 21 árs sem vilja hylja
lýti á húðinni og svo eru margir
sem nota farða fyrir sjónvarp og
svið.
Rétt eins og yfirmaður L’Oréal
bendir Atkinson á að sjálfur á
samfélagsmiðlum hafi ýtt verulega
undir þessa þróun. Fyrst hafi karlar
nýtt síur á myndirnar, en svo hafi
þeir farið að nota farða til að vera
stöðugt með eins konar síu til að
líta vel út á myndum.
Getur aukið kröfur
Adam Walker, snyrtisérfræðingur
hjá vefsíðunni the Male Stylist,
fagnar þessari þróun en hefur
áhyggjur af því að hún geti ýtt
undir óeðlilegar útlitskröfur hjá
körlum. Hann segir að konur
hafi þurft að eiga við slíkt ára-
tugum saman og nú sé sams konar
þrýstingur að aukast á karlmenn,
sem geti leitt til skekktra viðmiða.
Tilraunir til að fela lýti með and-
litsfarða geti verið fyrstu skrefin á
braut sem leiði til ranghugmynda
um eigin líkama og þess að menn
skammist sín fyrir útlitið.
Það á svo eftir að koma í ljós
hvort andlitsförðun hjá körlum sé
varanleg þróun eða tímabundin
tískubylgja.
Andlitsförðun verður
sífellt vinsælli meðal karla
Í heimi þar sem
myndavélar eru
alls staðar, sjálfur
eru hversdags-
legar og það er
ekki talið athuga-
vert að nota síur á
ljósmyndir til að
líta betur út hafa
vinsældir andlits-
förðunar aukist
verulega hjá
körlum.
Levi ś Kringlunni – Levi ś Smáralind – Levi ś Glerártorgi
13.990
GALLAjAKKi
4 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 4 . D E S E m B E R 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
C
-7
7
5
4
1
E
7
C
-7
6
1
8
1
E
7
C
-7
4
D
C
1
E
7
C
-7
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K