Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 54
Fótbolti Leikmenn Arsenal verða eflaust ekkert alltof spenntir þegar þeir ganga inn á Jämkraft Arena, lítinn gervigrasvöll í Svíþjóð sem tekur tæplega 8.500 manns í sæti, 15. febrúar næstkomandi. Og það verður væntanlega skítkalt enda er Östersund stundum kölluð „Vetrar- borgin“. Þetta verður hins vegar stærsta stundin í sögu mótherjans, Östersund. Uppgangur þessa sænska félags á undanförnum árum hefur verið lygilegur. Til að setja þetta í eitt- hvert samhengi var Östersund stofnað 31. október árið 1996, 30 dögum eftir að Arsene Wenger tók við Arsenal. Samt liggja leiðir þess- ara tveggja liða saman í 32-liða úrslitum Evrópu- deildarinnar. Fyrir 21 ári sam- einuðust þrjú félög undir merkjum Östersund; Ope IF, IFK Östersund og Öster- sund/Torvalla FF. Næstu ár bættust tvö önnur félög við; Frösö IF og Fältjägarnas IF. Frá botninum og upp á topp Til að byrja með var Öster- sund ekki áberandi á landa- korti sænska boltans. Liðið var í C-deild fyrstu 14 árin en féll niður í D-deild 2010. Þá tók stjórnarfor- maður Östersund, fyrrverandi her- maðurinn Daniel Kindberg, góða ákvörðun og réð 35 ára gamlan Englending að nafni  Graham Potter. Sá hafði verið hálfgerður farandverkamaður sem leikmaður, lék með 11 liðum á 15 ára ferli, og fetaði menntaveginn að honum loknum. Hann náði sér í háskóla- gráðu og þjálfaði svo háskólalið. Potter virðist, eins og Englend- ingur með sama eftirnafn, vera göldróttur. Frá því hann tók við Östersund er hann búinn að koma liðinu upp um þrjár deildir, vinna sænska bikarmeistaratitilinn og koma því í 32-liða úrslit Evrópu- deildarinnar. Í 2. umferð forkeppn- innar sló Östersund tyrkneska stórliðið Galatasary út og lenti svo í 2. sæti síns riðils í riðlakeppninni. Í þeim riðli voru einnig Athletic Bilbao, Hertha Berlin og Zorya Luhansk. Östersund tapaði aðeins einum leik, fyrir Athletic á útivelli. Sá Íslendingur sem þekkir Östersund og ævintýri þess betur en nokkur annar er m a r k v ö r ð u r i n n Haraldur Björns- son. Hann lék með liðinu á árunum 2014- 16 og hjálpaði því að kom- ast upp í s æ n s k u ú r v a l s - deildina. Sá þetta ekki fyrir „Ég held að ég hefði ekki getað séð þetta fyrir þegar ég skrifaði undir hjá þeim fyrir þremur árum,“ sagði Haraldur í samtali við íþróttadeild. „Þessi bær var bara þekktur fyrir skíða- göngu og á veturna fer hitinn niður í svona 30 gráður.“ Leikmannahópur Östersund inniheldur ekki þekktustu leik- mennina og þeir fá ekki hæstu laun- in. Rúmlega helmingur þeirra er Svíar en þar er einnig að finna leik- menn frá Englandi, Íran, Gana, Írak, Nígeríu, Kómoreyjum og Palestínu. Samkvæmt félagaskiptasíðunni Transfermarkt er allur leikmanna- hópur Östersund metinn á tæpar 11 milljónir punda. Til samanburðar er allur leikmannahópur Arsenal metinn á rétt rúmar 457 milljónir punda. „Það er ótrúlegt hvað þjálfarinn er búinn að gera við þennan mann- skap. Þetta er sami hópur og þegar ég var þarna. Ég held að það sé einn úr byrjunarliðinu sem er nýr frá þessu ári,“ sagði Haraldur. Besti þjálfarinn Markvörðurinn ber Potter vel sög- una og segir hann besta þjálfara sem hann hefur haft. „Hann var búinn að þjálfa eitt- hvert háskólalið á Englandi áður en hann kom til Östersund. Þetta hefur undið vel upp á sig. Hann er orðinn svo eftirsóttur og hafnaði félagi í ensku úrvalsdeildinni því honum fannst það ekki vera það rétta fyrir sig,“ sagði Haraldur. En hvað gerir Potter að svona góðum þjálfara? „Þessi metnaður til að bæta sig. Hann er óþreytandi í að leikgreina liðið, æfingarnar, andstæðinginn og bæta sig frá degi til dags. Það voru aldrei nein útihlaup, aldrei neinar mælingar, heldur bara fótbolti og ekkert annað.“ Haraldur segir að Potter fari líka óhefðbundnar leiðir í að hrista leik- mannahóp Östersund saman og hugsi út fyrir kassann fræga. Leiksýningar og tónleikar „Þeir eru með menningarpró- gramm. Þegar ég var þarna vorum við með danssýningu. Síðustu 5-6 árin eru þeir búnir að setja upp listasýningu og vera með tónleika fyrir framan 1.500 manns. Þetta er svo sérstakt,“ sagði Haraldur en Östersund tekur samfélagshlutverk sitt alvarlega. Félagið hefur m.a. boðið hælisleitendum á leiki og að horfa á æfingar og verið með vakt til að hjálpa konum að komast heilu og höldnu heim til sín á kvöldin. ingvithor@365.is Töframaðurinn Potter af Östersund Undir stjórn Englendingsins Grahams Potter hefur Östersund náð eftirtektarverðum árangri á undanförnum árum. Liðið varð bikar- meistari í vor og er komið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar þar sem það mætir enska stórliðinu Arsenal í febrúar næstkomandi. Uppgangur Östersunds: 2011: 1. sæti í D-deild norður 2012: 1. sæti í C-deild norður 2013: 10. sæti í B-deild 2014: 5. sæti í B-deild 2015: 2. sæti í B-deild 2016: 8. sæti í A-deild 2017: 5. sæti í A-deild, bikar- meistarar, í 32-liða úrslit Evrópu- deildarinnar Leikmenn Östersund fögnuðu ákaft eftir að þeir tryggðu sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Nokkrum mánuðum síðar tryggðu þeir sér sæti í 32-liða úrslitum keppninnar. NordicphotoS/gEtty graham potter er eini enski þjálfarinn sem er eftir í Meistaradeild Evr- ópu og Evrópudeildinni. NordicphotoS/gEtty Það voru aldrei nein útihlaup, aldrei neinar mælingar, heldur bara fótbolti og ekkert annað. Haraldur Björnsson 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r42 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -7 7 5 4 1 E 7 C -7 6 1 8 1 E 7 C -7 4 D C 1 E 7 C -7 3 A 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.