Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 12
TTil
Snæfellsjökull
Haraldur Sigurðsson
Til sölu í bókaverzlunum
Art, science and history of an Icelandic volcano
Einstök bók eftir þekktasta eldfjallafræðing Íslands.
MERKIÐ
MITT
Skoðaðu litríkt úrval á bros.is
Bros auglýsingavörur,
Norðlingabraut 14.
Bros auglýsingavörur með þínu merki
Stjórnmál „Ég get ekki botnað það
hvað er átt við,“ segir Gylfi Arn-
björnsson, forseti ASÍ, um ákvæði í
stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórn-
ar um aðgerðir í húsnæðismálum.
Þar kemur fram að ríkisstjórnin
muni fara í aðgerðir sem lækka
þröskuld ungs fólks og tekjulágra
inn á húsnæðismarkaðinn.
„Í því augnamiði verða stuðnings-
kerfi hins opinbera endurskoðuð
þannig að stuðningurinn nýtist fyrst
og fremst þessum hópum. Meðal
annars verða skoðaðir möguleikar
á því að hægt verði að nýta lífeyris-
sparnað til þessa.“
Fréttablaðið hefur ítrekað spurt
Ásmund Einar Daðason, nýjan vel-
ferðarráðherra, hvað þarna er átt
við, en hann hefur ekki svarað fyrir-
spurninni.
Í aðdraganda síðustu þingkosn-
inga kynnti Framsóknarflokkurinn
svokallaða svissneska leið í hús-
næðismálum. Gylfi Arnbjörnsson
segir ekkert nýtt í þeirri aðferð.
Hann bendir á að í Sviss sé einungis
heimilt að nýta séreignarsparnað
til húsnæðiskaupa. Ekki sé heimilt
að nota fé úr samtryggingarsjóðum.
Hér á landi sé nú þegar búið að
heimila nýtingu séreignarsparnaðar
til fyrstu íbúðakaupa.
„Það er fjöldi fólks að gera það og
þarf ekkert að heimila það aftur,“
segir Gylfi. Samkvæmt upplýsingum
frá Ríkisskattstjóra hafa nú þegar
um 700 manns fengið heimild sem
tók gildi 1. júlí síðastliðinn til að
nýta séreignarsparnaðinn skatt-
frjálst til útborgunar í kaup á fyrstu
íbúð eða greiðslu inn á lán. Síðan
hafa 44 þúsund nýtt sér heimild frá
2014 til útgreiðslu séreignarsparn-
aðar til að kaupa íbúð til eigin nota
eða greiðslu inn á lán.
Gylfi segir að í þessu ljósi sé
vandséð hverjar fyrirætlanirnar séu.
Hann bendir líka á að langstærstu
lánveitendurnir til fasteignakaupa
séu lífeyrissjóðirnir. „Þeir hafa
verið að auka sinn hlut á þessum
markaði og þeir gera það á kjörum
sem eru miklu hagstæðari en bank-
arnir bjóða upp á. Það hefur alltaf
verið mjög veigamikill þáttur í fjár-
festingarstefnu lífeyrissjóða að lána
sínum sjóðsfélögum.“
Gylfi segir að það yrði mjög var-
hugavert ef ríkið myndi heimila
launþegum að nýta samtrygg-
ingarréttinn til að fjármagna fyrstu
íbúðakaup. „Við vörum algerlega
við því. Ef ungt fólk er að fara að
gera það þá missir það fjórðung
til þriðjung lífeyrisréttinda,“ segir
hann og bætir við að það sé ekki
hyggilegt að ungt fólk fórni trygg-
ingum sínum til að koma sér þaki
yfir höfuðið. „Lífeyriskerfið okkar
er með alveg gríðarlega miklar fjöl-
skyldutryggingar. Bæði hvað varðar
örorkulífeyri, makalífeyri og barna-
lífeyri. Þetta eru allt þættir sem
skipta sköpum fyrir þá sem lenda í
alvarlegum slysum eða veikindum.
Þá er það þetta sem skiptir sköpum,
miklu meira en opinberi geirinn.“
jonhakon@frettabladid.is
Segir ákvæði um húsnæðismál óskýrt
Stjórnarflokkarnir hafa ekki útskýrt hvernig þeir vilja nýta lífeyriskerfið í þágu ungra fasteignakaupenda. Nú þegar nýta hundruð sér sér-
eignarsparnað til kaupa á fyrstu íbúð. Forseti ASÍ varar við því að sameiginlegir sjóðir séu nýttir til að hjálpa fólki við húsnæðiskaup.
Forseti ASÍ segir að í Sviss sé einungis heimilt að nýta séreignarsparnað til húsnæðiskaupa. FréttAblAðið/Vilhelm
Fréttablaðið hefur
ítrekað spurt Ásmund Einar
Daðason, nýjan velferðarráð-
herra, hvað þarna er átt við,
en hann hefur ekki svarað
fyrirspurninni.
Suður-AfríkA Jacob Zuma, forseti
Suður-Afríku, tapaði fyrir rétti í
gær í tveimur aðskildum spillingar-
málum. Annars vegar féllst dómari
á kröfu spillingareftirlitssamtaka
um að skikka Zuma til að skipa
nefnd til að rannsaka ásakanir gegn
honum og hins vegar komst dómari
að þeirri niðurstöðu að Zuma hefði
brotið af sér þegar hann reyndi að
nota dómstóla til að koma í veg fyrir
birtingu sem sýndi fram á spillingu
innan ríkisstjórnarinnar.
Zuma hefur verið forseti Suður-
Afríku undanfarin átta ár fyrir hönd
Afríska þjóðarráðsins. Alla sína
valdatíð hefur Zuma verið sakaður
um spillingu og alltaf hefur hann
neitað slíkum ásökunum. Hann
mun hins vegar víkja úr embætti
leiðtoga flokksins í næstu viku og
mun hann ekki verða í framboði í
forseta kosningunum árið 2019.
Þetta eru ekki fyrstu málin sem
eru höfðuð gegn Zuma. Fyrr á þessu
ári var honum gert að skipa nefnd
til að rannsaka hvort hann hafi
hagnast ólöglega á sambandi sínu
við hina auðugu Gupta-fjölskyldu.
Í fyrra var honum gert að endur-
greiða ríkissjóði fé sem hann nýtti
til að ráðast í lagfæringar á heimili
sínu í Nkandla. Hann var hins vegar
sýknaður af nauðgun árið 2006 og
sömuleiðis var spillingarmál gegn
honum frá árinu 2005 fellt niður
skömmu síðar. – þea
Jacob Zuma tapaði fyrir rétti í tvígang
Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku. NordicphotoS/AFp
S V í Þj ó ð At v i n n u m á l a r á ð u -
neytið í Svíþjóð hefur á þessu ári
keypt tungumálaaðstoð fyrir
400 þúsund sænskar krón-
ur, um fimm milljónir
íslenskra króna, fyrir
Sven-Erik Bucht lands-
byggðarráðherra. Þetta
hefur sætt gagnrýni
innan ráðuneytisins sem
heldur eftir þremur millj-
ónum af upphæðinni. Í fyrra
greindu fjölmiðlar frá því
að keypt hefði verið ensku-
kennsla fyrir ráðherrann fyrir um
þrjár milljónir króna.
Ráðherrann bendir á
að tungumálakunnátta
manna sé misjöfn. Hann
sé ekki góður í ensku en
þurfi að sinna erindum á
alþjóðlegum vettvangi og
halda ræður. Þá vilji hann
standa sig vel og vera Sví-
þjóð til sóma. – ibs
Milljónir í enskukennslu ráðherra
nOrEGur Plastagnir fundust í 80
prósentum alls kræklings við Nor-
egsstrendur, að því er niðurstöður
rannsóknar norsku hafrannsókna-
stofnunarinnar sýndu. Rannsakaðar
voru 252 bláskeljar og af þeim inni-
héldu 193 örplast.
Höfundur skýrslunnar um rann-
sóknina, Amy Lusher, segir lítið
vitað um afleiðingar þess að neyta
matar sem inniheldur örplast.
Langtímarannsókn á plastögnum
í fiski í Eystrasalti leiddi nýlega í
ljós að magnið hefur ekki breyst
síðastliðin 30 ár. Á sama tíma hefur
notkun plasts í löndunum í kring-
um Eystrasalt þrefaldast, að því er
danska ríkisútvarpið greinir frá. – ibs
Örplast í kræklingi
Sænskur ráðherra þurfti aðstoð
vegna ræðuhalds erlendis.
1 4 . d E S E m b E r 2 0 1 7 f I m m t u d A G u r12 f r é t t I r ∙ f r é t t A b l A ð I ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
7
C
-4
5
F
4
1
E
7
C
-4
4
B
8
1
E
7
C
-4
3
7
C
1
E
7
C
-4
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K