Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 27
Eftir hrunið 2008 varð fljótlega ljóst að þv. ríkisstjórn vildi ekki að erlendir aðilar kæmu að rannsókn málsins. Ég lagði það til í ræðu minni á borgarafundi í Háskólabíói 24. nóvember þá um haustið að óvilhallir útlendingar yrðu hafðir með í ráðum við rann- sóknina og aftur í einkasamtali við ráðherra. Ég varð þess áskynja að við þetta var ekki komandi. Ég var ekki einn um þessar áhyggjur. Jónas Krist- jánsson ritstjóri skrifaði tæpu ári síðar, 28. september 2009, undir yfir- skriftinni Vel tengdur glæpalýður: „Erlendir ráðamenn efast um, að Ísland geri upp sakirnar við glæpa- lýðinn, sem rústaði fjárhag og áliti landsins. Gera ráð fyrir, að sannleiks- nefndin fræga stundi kattarþvott. Taka eftir, að enginn glæpamaður hefur verið settur inn, ekki einu sinni yfirmenn IceSave og Landsbankans. Ísland er talið vera eins konar mafíu- ríki, þar sem vel tengdur glæpalýður sleppur billega frá ofursyndum sínum. Samt er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur formlega við völd. En hann ræður enn embættum og dóm- stólum og lögreglu og skilanefndum og sannleiksnefnd. Pólitíkin er máttvana, jafnvel þótt hér sé vinstri stjórn.“ Erlend skrif um Ísland Bakgrunnur þessara áhyggna Jónasar Kristjánssonar og margra annarra var m.a. fréttaflutningur erlendra fjölmiðla um Ísland, en landið hafði fram að hruni ekki verið í alfaraleið heimspressunnar. Hrunárið 2008 brá svo við að Financial Times í London birti 250 greinar um Ísland, Globe and Mail í Torontó birti 170 greinar, Guardian sem var áður kennt við Manchester og er nú heimsblað 130, Le Monde í París 110 og New York Times 75. Þessar tölur eru sóttar í bók eftir kanadíska pró- fessorinn Daníel Chartier frá 2011, The End of Iceland's Innocence: The Image of Iceland in the Foreign Media during the Financial Crisis. Erlendir fjölmiðlar (og innlendir!) fjölluðu Samstæð sakamál IV Þorvaldur Gylfason Í dag m.a. um grunsemdir um að íslenzkir bankar hefðu stundað fjárböðun fyrir rússnesku mafíuna og um til- raun þv. ríkisstjórnar og Seðlabank- ans til að komast hjá að þiggja aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með því að taka heldur risalán hjá Pútín Rússlandsforseta. Grunsemdirnar um Rússatengslin eru enn á sveimi m.a. vegna þess að Ísland kann að koma við sögu í rannsókn banda- ríska saksóknarans Roberts Mueller á tengslum Trumps forseta og manna hans við Rússa, þ. á m. dæmda menn og mafíósa. Þetta er samt ekki allt. Fyrir liggur að miklu fé var mokað út úr bönkunum í miðju hruni, bæði mánudaginn 6. október 2008 eins og leknu gögnin sem Stundin birti frá skilanefnd Glitnis vitna um og lög- bann var lagt á fyrir nokkru og jafn- vel einnig þriðjudaginn 7. október eins og Robert Wade, prófessor í London School of Economics, og Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, dósent í Háskóla Íslands, hafa lýst í erlendu tímariti (New Left Review, septem- ber/október 2010, bls. 22). Þau skrifa [mín þýðing, ÞG]: „Meðan krónan var í frjálsu falli, gjaldeyrisforðinn var á þrotum og engar hömlur öftruðu útstreymi fjármagns, var gengið fest í fáeinar klukkustundir; þetta var e.t.v. stytzta fastgengisskeið sem sögur fara af. En það var nógu langt til þess að vel tengdir innherjar gátu fært fé sitt úr krónum yfir í gjaldeyri á miklu hagstæðara gengi en þeim myndi bjóðast síðar. Heimildir innan bankanna herma að milljarðar hafi flúið krónuna þessar klukkustundir. … Síðan var krónan sett á flot – og hún sökk eins og steinn.“ Virðing Alþingis Ótti við hvítþvott af hálfu rann- sóknarnefndar Alþingis reyndist ekki réttur. Nefndin skilaði góðu verki á heildina litið. Hitt er þó rétt að RNA tók á hvorugu málinu sem lýst er hér að framan, hvorki meintri fjárböðun fyrir Rússa né meintum mokstri fjár vel tengdra manna út úr bönkunum og út úr landinu í miðju hruni meðan venjulegt fólk sat eftir með sárt ennið og sumir misstu aleiguna. Yfirvöldin hafa haft nægan tíma til að rannsaka þessa atburðarás, en þau hafa kosið að leiða hana hjá sér. Tilfinnanlegust er e.t.v. vanræksla Alþingis sem samþykkti í desember 2012 að láta fara fram rannsókn á einkavæðingu bankanna en ekkert bólar þó enn á slíkri rannsókn. Svo vant sem Alþingi er að virð- ingu sinni getur það varla talið sæma að fagna 100 ára afmæli fullveldisins 1. desember 2018 með lúðraþyt og söng eftir að hafa látið fyrningarfrest meintra innherja- og umboðssvika í hruninu líða hjá sjö vikum fyrr vitandi vits – og stolið nýju stjórnar- skránni í þokkabót. Rifjast nú upp fyrir mér spurn- ingin sem einn helzti listamaður þjóðarinnar lagði fyrir mig við kvöldverðarborð í heimahúsi: Datt ykkur ekki í hug að bjóða þeim að halda þýfinu í skiptum fyrir nýju stjórnarskrána? Ekki mitt að bjóða, svaraði ég. Svo vant sem Alþingi er að virðingu sinni getur það varla talið sæma að fagna 100 ára afmæli fullveldisins 1. desember 2018 með lúðraþyt og söng eftir að hafa látið fyrningarfrest meintra innherja- og umboðssvika í hruninu líða hjá sjö vikum fyrr vitandi vits – og stolið nýju stjórnarskránni í þokkabót. GEFÐU HÆNU gjofsemgefur.is 9O7 2OO3 kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol la k aff itá R f rá bý li í b ol la ka ff itá r f rá býli í boll a hátíðí bæ S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 27F i M M T u d a g u R 1 4 . d e S e M B e R 2 0 1 7 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 6 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 6 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -5 4 C 4 1 E 7 C -5 3 8 8 1 E 7 C -5 2 4 C 1 E 7 C -5 1 1 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.