Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 84
Of mikil fjölbreytni og fram-boð á mat, eins og bíður okkar á jólahlaðborði,
eykur líkur á að við borðum allt
of mikið – við eigum einfald-
lega erfiðara með að hafa stjórn
á okkur þegar úrvalið er mikið.
Áfengisneysla fyrir máltíð eykur
líka matarlystina og gefur auka
hitaeiningar.
Það getur verið lúmskt hvað
hollar fæðutegundir eins og þurrk-
aðir ávextir og hnetur eru orku-
ríkar og mætti því borða þær í hóf-
legu magni (lófafylli). Þetta gildir
sérstaklega fyrir einstaklinga í
kyrrsetuvinnu.
Trefjarík matvæli auka á seddu-
tilfinninguna og því tilvalið að
notfæra sér það fyrir uppskriftir
(kökur og pítsubotn).
Dæmi um breytingar á upp-
skriftum til að gera þær hollari og
trefjaríkari:
Nota heilhveiti eða grófmalað
spelt á móti hveiti í uppskriftinni.
Fínt er að miða við 50:50 hlutföll.
Nota eplamauk eða stappaðan
banana á móti sykri í uppskrift-
inni. Þannig er hægt að minnka
sykurmagnið um a.m.k. helming.
Einnig má minnka sykurinn í
uppskriftinni án þess að bæta
nokkru á móti. Nota jurta-
olíu í staðinn fyrir smjör eða
smjörlíki (1 dl fyrir 100 g) –
mjúk fita er ávallt betri val-
kostur en hörð fita.
Best er að sneiða sem
oftast hjá sykurríkum mat-
vælum eins og sælgæti, konfekti
og sykruðum gosdrykkjum (t.d.
jólaöli). Í staðinn mætti fá sér
mandarínur, vínber, tómata og
fleira í þeim dúr. Svo er mikil-
vægt að borða hóflega af söltu og/
eða reyktu kjöti eða sleppa því
alveg og gefa í staðinn ávöxtum,
grænmeti og baunum gott pláss á
disknum.
Niðurstaða: Þrátt fyrir
annasama aðventu er mikil-
vægt að huga að reglulegum
máltíðum og hreyfingu og
minnka þannig líkur á ofáti.
Einnig er gott að borða ríku-
lega af ávöxtum og græn-
meti. Svo er bara að njóta.
Lesendum er bent á að senda
sérfræðingum okkar spurningar
tengdar heilsu og lífsstíl á
heilsanokkar@frettabladid.is.
Hvernig kemst ég hjá því
að borða of mikið á aðventunni?
Heilsan
okkar
áFENGIS-
NEySla FyrIr
máltíð Eykur líka
matarlyStINa oG
GEFur auka HIta-
EININGar.
Jóhanna E. torfadóttir
næringarfræðingur
og doktor í lýð-
heilsuvísindum Melania starfaði sem fyrirsæta á
sínum yngri árum og var stórstjarna
í tískuheiminum, líkt og kunnugt
er. Melania þykir einstaklega fáguð
og með háklassa fatasmekk. Hún
er óhrædd við að ganga í skærum
litum og ber þá með prýði. Gífurlegt
álag og heilmikil ferðalög um heim-
inn virðast samt ekki hafa áhrif á
óaðfinnanlegt útlit þessarar 47 ára
gömlu eiginkonu Donalds Trump.
Melania hefur margoft verið
spurð hvort hún hafi farið í
fegrunar aðgerðir sem er frekar
venja en undantekning hjá þeim
sem eru stöðugt í sviðsljósinu en
hún segir galdurinn liggja í öðru.
Leynivopn Melaniu er förðunar-
meistarinn Nicole Bryl en þær hafa
starfað saman í ellefu ár, Nicole
hefur unnið fyrir fjölmarga heims-
fræga, meðal annars fyrirsætuna
Cindy Crawford og Charlene, eigin-
konu Alberts fursta af Mónakó.
Leiðir þeirra lágu fyrst saman
þegar Nicole farðaði Mel-
aniu fyrir fyrirsætuverk-
efni. Nicole og Melania
eru sammála um að
galdurinn á bak við
gott útlit sé fyrst
og fremst góð
húðumhirða.
Sjálf hefur
M e l a n i a
margoft sagt
frá því í viðtölum
að gott rakakrem og
húðhreinsun sé lykill-
inn að fallegu útliti, en hún
hefur sinnt húð sinni af alúð
frá táningsaldri. Melania hefur
fastmótaðan förðunarstíl þar sem
áherslan er á „smókí“ útlit í kringum
augun og athyglinni beint að háum
kinnbeinum hennar en að jafnaði er
hún með hlutlausan varalit. Spenn-
andi verður að sjá hvort þessi förð-
un verður að tískubylgju.
asta@frettabladid.is
leynivopn melaniu
„Ég hreinsa húðina og nota rakakrem og forðast sólina,“ hefur Melania trump
sagt, spurð út í galdurinn á bak við gott útlit. NOrDiCPHOtOs/GEttY
Melania Trump forsetafrú þykir glæsileg en leynivopn hennar er
förðunarmeistarinn Nicole Bryl. Þær hafa starfað saman í 11 ár.
Nicole Bryl
K R I N G L U N N I & S M Á R A L I N D
Buxur
2.990 kr.
Breytibolur
3.390 kr.
Fallegar vörur í jólapakkann fyrir börnin
Bolur
2.590 kr.
Gallaskyrta
3.990 kr.
Peysa
1.590 kr.
Galli
2.990 kr.
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r72 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-4
5
F
4
1
E
7
C
-4
4
B
8
1
E
7
C
-4
3
7
C
1
E
7
C
-4
2
4
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K