Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 10
Mannréttindi „Það er rosalega alvarlegt að ég þurfi sjálf að segja þeim hver minn stjórnarskrár- bundni réttur er,“ segir Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi for- maður Ungra Pírata. Dóra fékk á dögunum senda 20.500 króna rukkun frá Reykjavíkurborg fyrir afnot af borgarlandinu þegar hún, ásamt fleirum, efndi til mótmæla á Austurvelli vegna fyrirhugaðrar sameiningar Fjölbrautaskólans við Ármúla og Tækniskólans. Mót- mælin fóru fram 28. maí. Innheimtan, sem borgin féll frá eftir athugasemdir Dóru, gengur í berhögg við stefnu borgarinnar í þessum málum. Bjarni Brynjólfsson, upplýsingastjóri Reykjavíkurborgar, segir í samtali við Fréttablaðið að um mistök hafi verið að ræða. Í við- tali við hann á mbl.is í fyrra kom fram að ekki væri greitt grunngjald fyrir afnot af borgarlandi þegar um mótmæli væri að ræða. „Á þessu máli er borg ara leg ur vink ill sem snýst um rétt fólks í lýðræðis ríki til að mót mæla,“ hafði mbl.is eftir Bjarna. Hann bætti hins vegar við að það væri spurning hver ætti að greiða fyrir kostnað sem félli á borgina vegna þjónustu sem inna þyrfti af hendi í tengslum við mótmælasam- komur, svo sem vegna lokana gatna, aðgangi að rafmagni eða uppsetn- ingu sviðs. Í samtali við Fréttablaðið segir hann að afstaða borgarinnar hafi ekki breyst heldur hafi verið um mistök að ræða, sem nú hafi verið leiðrétt. Honum er ekki kunnugt um að fleiri mótmælendur hafi fengið rukkun sem þessa vegna sambæri- legra viðburða. Í tölvuskeyti til borgarinnar, sem Dóra sendi eftir að henni barst ítrek- un vegna málsins, vísaði hún til þess að það væri stjórnarskrárvarinn réttur hennar að mótmæla. Henni þætti óeðlilegt ef mótmælaréttur- inn væri takmarkaður með þessum hætti. Það stríddi gegn stjórnarskrá. Í 74. grein stendur: „Rétt eiga menn á að safnast saman vopnlausir.“ Þá segir í 73. grein að hver maður eigi rétt á að láta í ljós hugsanir sínar og í sömu grein að tálmanir á tjáningar- frelsi megi aldrei í lög leiða. Á vef borgarinnar er meðal ann- ars tekið fram að þeir sem vilja fá afnot af almenningsgörðum, svo sem Austurvelli, þurfi að sækja um afnotaleyfi. Þetta eigi líka við um útifundi og samkomur. Ekkert er þar tekið fram um mótmælafundi. Dóra nefnir að á alþjóðavísu sé sums staðar mjög sótt að borgara- legum réttindum fólks, og nefnir Bandaríkin sem dæmi. Hún óttist að fleiri hafi fengið rukkun á borð við þá sem hún fékk og segir að slíkt háttalag væri hamlandi fyrir frelsi fólks til að mótmæla. Þá bendir hún á að þeir sem mótmæli séu oft hópar sem standi höllum fæti í samfélaginu og að 20 þúsund króna gjald geti verið hár þröskuldur. Hún segir að í aðdraganda mót- mælanna hafi hún hringt til að láta borgina vita af viðburðinum og hafi í kjölfarið verið beðin um að fylla út eyðublað. „Ég vildi gera þetta rétt svo þeir gætu passað upp á öryggi og hugað að þeim málum sem þörf krefur þegar fólk kemur saman.“ Hún bendir á að hún hafi áður staðið fyrir mótmælum en að í það skipti hafi hún ekki verið rukkuð. baldurg@frettabladid.is uMhverfisMál „Bæjarstjórinn var mjög skýr á því að þolinmæði bæj- arins vegna lyktarmengunarinnar væri engin,“ segir Einar Bárðarson, samskiptastjóri Hafnarfjarðar, um fund fulltrúa Hafnarfjarðar með Gámaþjónustunni Þetta kemur fram í tölvupósti frá Einari vegna fréttar í Fréttablaðinu í gær um kvartanir íbúa á Völlunum í Hafnarfirði undan mikilli ólykt sem stundum berst inn í hverfið frá moltugerði sem Gámaþjónustan starfrækir rúma tvo kílómetra frá hverfinu. Einar segir bæjastjórann og for- mann skipulags- og byggingaráðs hafa fundað með Gámaþjónustunni 29. nóvember. Gámaþjónustan hafi sagst þegar hafa innleitt nýja verk- ferla sem ættu nánast að öllu leyti að koma í veg fyrir ólykt frá starf- seminni. „Fulltrúar Gámaþjónustunnar sögðust hafa skilning á því og væntu þess að aðgerðir þeirra myndu koma í veg fyrir hana. Eftir fund- inn er það von bæði bæjaryfirvalda og Gámaþjónustunnar að frekari lyktarmengun berist ekki frá starf- seminni,“ segir í orðsendingu sam- skiptastjórans. Gunnar Bragason, framkvæmda- stjóri Gámaþjónustunnar, sagðist í Fréttablaðinu í gær vera bjartsýnn á að komið yrði í veg fyrir lyktar- mengun með breyttu vinnulagi við moltugerðina. – gar Hafa enga þolinmæði fyrir ólykt í Hafnarfirði Íbúar á Völlunum eru ósáttir við óþef sem berst inn í hverfið. Fréttablaðið/Eyþór Er það von bæði bæjaryfirvalda og Gámaþjónustunnar að frekari lyktarmengun berist ekki frá starfseminni. Einar Bárðarson, samskiptastjóri Hafnarfjarðar Ég vildi gera þetta rétt svo þeir gætu passað upp á öryggi og hugað að þeim málum sem þörf krefur þegar fólk kemur saman. Dóra Björt Guðjónsdóttir, fyrrverandi formaður Ungra Pírata Rukkuð af borginni fyrir að efna til mótmæla við Austurvöll Reykjavíkurborg sendi fyrrverandi formanni Ungra Pírata rukkun fyrir afnot af borgarlandinu þegar Píratar efndu til mótmæla við Austurvöll í sumar. Borgin hefur dregið í land og segir að um mistök hafi verið að ræða. Upplýsingastjóri spyr þó hver eigi að greiða kostnað sem fellur á borgina í tengslum við mótmæli. Dóra björt bendir á að það sé stjórnarskrárvarinn réttur hennar að mótmæla. Fréttablaðið/Ernir uMhverfi „Þetta er áríðandi mál og á dagskránni að hitta Mývetninga,“ segir Guðmundur Ingi Guðbrands- son umhverfisráðherra um fyrstu skref varðandi vanda Mývetninga í fráveitumálum. Guðmundur þekkir fráveituvanda Mývetninga vel úr starfi sínu hjá Landvernd en sam- tökin hafa þrýst á aðgerðir vegna áhrifa atvinnustarfsemi í kringum vatnið á lífríki þess. Fyrstu verkefni ráðherrans verða að koma í gang vinnu um stofnun þjóðgarðs á miðhálendinu, stofnun Loftslagsráðs sem mun vinna að gerð vegvísis fyrir kolefnislaust Ísland 2040 og koma í gang átaki í friðlýsingum. – aá Ráðherra hittir Mývetninga Guðmundur ingi Guðbrandsson, umhverfisráð- herra. stjórnsýsla Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í gær að vísa máli gegn íslenska ríkinu til EFTA-dómstólsins þar sem ekki hefur verið innleidd hér EES-löggjöf um rekstraraðila sérhæfðra sjóða innan tímamarka. „Tilkoma stöðugs og skilvirks innri fjármálamarkaðar veltur á því að allir markaðsaðilar fylgi sam- eiginlegum reglum og eftirliti,“ sagði Helga Jónsdóttir, stjórnarmaður ESA, í tilkynningu til fjölmiðla í gær. Um er að ræða tilskipun um að koma á fót lagaramma um heimild og eftirlit með sérhæfðum sjóðum. – hg Vísa máli gegn ríkinu til EFTA 1 4 . d e s e M b e r 2 0 1 7 f i M M t u d a G u r10 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 7 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 E 7 C -5 9 B 4 1 E 7 C -5 8 7 8 1 E 7 C -5 7 3 C 1 E 7 C -5 6 0 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.