Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 80

Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 80
Friðrik Jóhann Róbertsson eða Flóni, eins og hann er kallaður, gaf í síðustu viku út samnefnda plötu en eftirvæntingin eftir plötunni var mikil og jafnvel áður en hann hafði nokkru sinni sent frá sér eitt einasta lag var nafni hans haldið á lofti í rapp- senunni. Um er að ræða nokkuð persónulegan grip og yfir vötnum svífur töluverður tregi, þó að líka sé nokkuð um gleðskap í bland, svolít- ið í anda við rapptónlist frá Atlanta og þá sérstaklega rapparann Future. „Ég hlusta mikið á trapptónlist – sérstaklega miklir áhrifavaldar hjá mér eru Future og Travis Scott til dæmis. Mestu áhrifin koma frá Atl- anta-senunni, ég elska þannig dót. Það er hægt að heyra það í minni tónlist – ég fíla að nota Autotune-ið sem hljóðfæri, eins og Future gerir oft, nýtir röddina með Autotune eins og hljóðfæri, eins og píanó. Ég er oft að fara með röddina upp og Eitt og hálft ár  af lífi Flóna Tónlistarmaðurinn Flóni gaf í síðustu viku út plötuna Flóni þar sem hann talar nokkuð opinskátt um síðustu misseri í lífi sínu. Flóni segist mjög lífsglaður þrátt fyrir að platan sé myrk á köflum. Hann segir bestu hlutina gerast óplanaða. Yfir 70 manns létu helling af óútgefnum lögum með Flóna ganga sín á milli löngu áður en platan kom út. Fréttablaðið/EYþór niður og gera tilraunir. Ég hlusta líka á house og RnB og alls konar. En auðvitað þegar ég er að gera þessi lög er ég að reyna að gera mitt og það sem ég vil gera og það sem ég sé fyrir mér að eigi að gera. Þá finnst mér koma það flottasta út og það sem fólk kann langbest að meta.“ Þú ert sjálfur að pródúsera á plöt- unni, ekki satt? „Þetta er eiginlega smá ferli hjá mér. Ég bý til skissu af bíti og syng yfir það. Þá erum við komin með grunn að lagi – svo sendi ég það á besta vin minn, en hann heitir Jökull Breki. Hann hefur verið að gera tónlist í nokkur ár og ég fékk áhugann á tónlist svolítið í gegnum hann – við vorum saman í Verzló og féllum úr skólanum á sama tíma og svona. En hann tekur sem sagt skissuna, það kannski vantar eitt- hvað aðeins meira í hana, og hann fer í að krydda hana og gera hana að heilsteyptara lagi. En ég tek allt upp sjálfur og geri sjálfur „beats“. Hvernig fórstu út í það  að gera eigin takta? „Það er skemmtilegt að segja frá því að Arnar Ingi, Young Nazareth, var líka í Verzló og ég vissi að hann var að dj-a og svona. Þann- ig að ég var bara „hey gaur, nenn- irðu að kenna mér að gera beats?“ og hann bara „jájá“. Við þekktumst ekkert þannig á þessum tíma. Svo fór ég bara á YouTube að kynna mér hlutina og fór að prófa mig áfram, var í svona hálft ár að því og syngja sjálfur í aðstöðu sem ég var með heima hjá mér, og líka lítið stúdíó heima hjá Jökli þar sem við vorum að búa til lög og prófa okkur áfram með alls konar. Það var síðan seinna meir sem þetta fór að verða aðeins alvarlegra og einhver lög sem ég var að gera voru komin í dreifingu – þá var ég alveg „oh shit, þetta sem ég er að gera gæti verið gott“. Þannig að ég lagði mig allan í þetta.“ Innan ákveðins hóps gengu ein- hver 20 lög, sem Flóni hafði tekið upp, á milli í tölvupóstkeðju og varð hann hálfgerð költhetja í rappinu. Nafnið Flóni sást fljóta um á Twitter og í hinum og þessum rapplögum – „hver er að passa upp á Flóna?“ spurði skáldið til að mynda. „Einhvern veginn fór þetta að dreifast til fólks. Þetta endaði með að það var komin óformleg plata sem fólk var að senda á milli sín. Það voru fullt af demóum, jafnvel bara fyrsta vers af einhverju óklár- uðu lagi. Ég held að nafnið mitt hafi orðið smá til út af því – smá svona „underground hype“. Sem mér finnst kúl, ég er ekkert endilega fyrir það að vera mikið í sviðsljósinu – ég vil bara gera tónlist, gera það vel og hafa gaman af því. Ég er bara búinn að vera „in the shadows“ að bíða eftir rétta augnablikinu. Góðir hlutir gerast hægt.“ Dagbók Flóna „Þetta er búinn að vera svona eins og hálfs árs vinnuferill, það að velja bestu lögin og að þróa þetta litla sánd svo þú fáir ákveðinn fíling út frá plötunni sem þú ert að hlusta á. Þetta á ekki að vera allt útum allt, heldur er þarna ákveðið „storyline“. Má ekki segja að þetta sé mjög persónuleg plata? „Frekar – þetta er þannig séð saga af síðasta eina og hálfa ári. Þetta er búinn að vera tími af rugli og vitleysu en líka mjög mörgu skemmtilegu. Þetta er búin að vera smá ferð. Það er gott að koma frá sér hlutum sem ég hef verið að upplifa varðandi ástamál, og annað. Ég get hlustað á lögin og verið bara „intró, þá var ég að ganga í gegnum þetta og næsta lag var þetta“ … smá eins og dagbók. Það komu nokkrar nafnatillögur en mér fannst meika sens að nefna hana Flóna, af því að þetta er ég.“ Kannski leiðinlegt orð – en það er svona „emo“ fílingur þarna. „Já, smá,“ svarar Flóni sem virðist ekki láta emo-orðið trufla sig, „þetta fer svona úr því persónulega og yfir í það þar sem ég er að hafa gaman. Það fer eftir því hvernig mér líður, hvort ég er „down“ og lítill í mér eða að hafa gaman og skemmta mér.“ Gott dæmi segir hann lagið Ísköld. „Ísköld er lag sem mér þykir ótrú- lega vænt um. Alltof hratt er svo per- sónulegt á annan hátt, en þessi lög lýsa kannski vel þessum mismun.“ Flóni segist þó alls ekki vera „emo“ gaur heldur þvert á móti ein- staklega lífsglaður. „En allir upplifa eitthvað og það að geta komið því út í gegnum tón- list er náttúrulega geðveikt. Mér finnst fólk oftar tengja við þetta persónulega.“ Fjörið rétt að byrja Hvernig er svo tilfinningin að vera búinn að senda frá þér þessa plötu? „Það er eiginlega bara ótrúlega skrítið. Ég er alltaf búinn að vera að hugsa og reyna að sjá fyrir mér hvernig það verður þegar ég næ loksins að sýna fólki þetta, ég er eiginlega ekki búinn að ná að átta mig á þessu. En það er auðvitað geð- veikt að vera búinn að gefa út. Núna byrjar þetta fyrir alvöru. Ég er bara ótrúlega spenntur að sjá hvert þetta leiðir mig.“ Hvað er svo planið núna? „Ég er alltaf í stúdíóinu núna að taka upp eitthvað nýtt og hugsa um hvað mig langar til að gera. Oftast er langbest að hugsa ekkert um hvað maður ætlar að gera, þá kemur yfirleitt það besta út. Ef maður planar of mikið og hugsar of mikið þá er þetta ekki lengur í því „væbi“ að ég sé að hafa gaman, þá verður þetta kannski of alvarlegt. Við erum að búa til góða tónlist og það er nóg.“ stefanthor@frettabladid.is Ég Er bara búinn að vEra „in thE shad­ ows“ að bíða EFtir rÉtta augnablikinu. góðir hlutir gErast hægt. 1399 kr.kg Krónu Hamborgarhryggur Gott verð! Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok. Approved and OK New proof please DATE: SIGNATURE: /Ingenjörsgatan 7-9 Box 814, 251 08 Helsingborg Tel. vx. 042-24 73 00 info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se 14 0 280 Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina Sogavegi 3 Höfðabakka 1 HUMAR 3.900 Stærð 30/40 kr.kg 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r68 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð Lífið 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 8 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 8 0 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -5 E A 4 1 E 7 C -5 D 6 8 1 E 7 C -5 C 2 C 1 E 7 C -5 A F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 B F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.