Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 80
Friðrik Jóhann Róbertsson eða Flóni, eins og hann er kallaður, gaf í síðustu viku út samnefnda plötu en eftirvæntingin eftir plötunni var mikil og
jafnvel áður en hann hafði nokkru
sinni sent frá sér eitt einasta lag
var nafni hans haldið á lofti í rapp-
senunni. Um er að ræða nokkuð
persónulegan grip og yfir vötnum
svífur töluverður tregi, þó að líka sé
nokkuð um gleðskap í bland, svolít-
ið í anda við rapptónlist frá Atlanta
og þá sérstaklega rapparann Future.
„Ég hlusta mikið á trapptónlist –
sérstaklega miklir áhrifavaldar hjá
mér eru Future og Travis Scott til
dæmis. Mestu áhrifin koma frá Atl-
anta-senunni, ég elska þannig dót.
Það er hægt að heyra það í minni
tónlist – ég fíla að nota Autotune-ið
sem hljóðfæri, eins og Future gerir
oft, nýtir röddina með Autotune
eins og hljóðfæri, eins og píanó. Ég
er oft að fara með röddina upp og
Eitt og hálft ár af lífi Flóna
Tónlistarmaðurinn Flóni gaf í síðustu viku út plötuna Flóni þar sem hann talar nokkuð opinskátt um síðustu misseri í
lífi sínu. Flóni segist mjög lífsglaður þrátt fyrir að platan sé myrk á köflum. Hann segir bestu hlutina gerast óplanaða.
Yfir 70 manns létu helling af óútgefnum lögum með Flóna ganga sín á milli löngu áður en platan kom út. Fréttablaðið/EYþór
niður og gera tilraunir. Ég hlusta
líka á house og RnB og alls konar.
En auðvitað þegar ég er að gera
þessi lög er ég að reyna að gera mitt
og það sem ég vil gera og það sem ég
sé fyrir mér að eigi að gera. Þá finnst
mér koma það flottasta út og það
sem fólk kann langbest að meta.“
Þú ert sjálfur að pródúsera á plöt-
unni, ekki satt? „Þetta er eiginlega
smá ferli hjá mér. Ég bý til skissu af
bíti og syng yfir það. Þá erum við
komin með grunn að lagi – svo sendi
ég það á besta vin minn, en hann
heitir Jökull Breki. Hann hefur verið
að gera tónlist í nokkur ár og ég fékk
áhugann á tónlist svolítið í gegnum
hann – við vorum saman í Verzló
og féllum úr skólanum á sama tíma
og svona. En hann tekur sem sagt
skissuna, það kannski vantar eitt-
hvað aðeins meira í hana, og hann
fer í að krydda hana og gera hana að
heilsteyptara lagi. En ég tek allt upp
sjálfur og geri sjálfur „beats“.
Hvernig fórstu út í það að gera
eigin takta? „Það er skemmtilegt að
segja frá því að Arnar Ingi, Young
Nazareth, var líka í Verzló og ég vissi
að hann var að dj-a og svona. Þann-
ig að ég var bara „hey gaur, nenn-
irðu að kenna mér að gera beats?“
og hann bara „jájá“. Við þekktumst
ekkert þannig á þessum tíma. Svo
fór ég bara á YouTube að kynna mér
hlutina og fór að prófa mig áfram,
var í svona hálft ár að því og syngja
sjálfur í aðstöðu sem ég var með
heima hjá mér, og líka lítið stúdíó
heima hjá Jökli þar sem við vorum
að búa til lög og prófa okkur áfram
með alls konar. Það var síðan seinna
meir sem þetta fór að verða aðeins
alvarlegra og einhver lög sem ég var
að gera voru komin í dreifingu – þá
var ég alveg „oh shit, þetta sem ég er
að gera gæti verið gott“. Þannig að ég
lagði mig allan í þetta.“
Innan ákveðins hóps gengu ein-
hver 20 lög, sem Flóni hafði tekið
upp, á milli í tölvupóstkeðju og varð
hann hálfgerð költhetja í rappinu.
Nafnið Flóni sást fljóta um á Twitter
og í hinum og þessum rapplögum
– „hver er að passa upp á Flóna?“
spurði skáldið til að mynda.
„Einhvern veginn fór þetta að
dreifast til fólks. Þetta endaði með
að það var komin óformleg plata
sem fólk var að senda á milli sín.
Það voru fullt af demóum, jafnvel
bara fyrsta vers af einhverju óklár-
uðu lagi. Ég held að nafnið mitt hafi
orðið smá til út af því – smá svona
„underground hype“. Sem mér
finnst kúl, ég er ekkert endilega fyrir
það að vera mikið í sviðsljósinu – ég
vil bara gera tónlist, gera það vel og
hafa gaman af því. Ég er bara búinn
að vera „in the shadows“ að bíða
eftir rétta augnablikinu. Góðir hlutir
gerast hægt.“
Dagbók Flóna
„Þetta er búinn að vera svona eins
og hálfs árs vinnuferill, það að velja
bestu lögin og að þróa þetta litla
sánd svo þú fáir ákveðinn fíling út
frá plötunni sem þú ert að hlusta á.
Þetta á ekki að vera allt útum allt,
heldur er þarna ákveðið „storyline“.
Má ekki segja að þetta sé mjög
persónuleg plata? „Frekar – þetta
er þannig séð saga af síðasta eina
og hálfa ári. Þetta er búinn að vera
tími af rugli og vitleysu en líka
mjög mörgu skemmtilegu. Þetta er
búin að vera smá ferð. Það er gott
að koma frá sér hlutum sem ég hef
verið að upplifa varðandi ástamál,
og annað. Ég get hlustað á lögin og
verið bara „intró, þá var ég að ganga
í gegnum þetta og næsta lag var
þetta“ … smá eins og dagbók. Það
komu nokkrar nafnatillögur en mér
fannst meika sens að nefna hana
Flóna, af því að þetta er ég.“
Kannski leiðinlegt orð – en það er
svona „emo“ fílingur þarna.
„Já, smá,“ svarar Flóni sem virðist
ekki láta emo-orðið trufla sig, „þetta
fer svona úr því persónulega og yfir
í það þar sem ég er að hafa gaman.
Það fer eftir því hvernig mér líður,
hvort ég er „down“ og lítill í mér eða
að hafa gaman og skemmta mér.“
Gott dæmi segir hann lagið
Ísköld.
„Ísköld er lag sem mér þykir ótrú-
lega vænt um. Alltof hratt er svo per-
sónulegt á annan hátt, en þessi lög
lýsa kannski vel þessum mismun.“
Flóni segist þó alls ekki vera
„emo“ gaur heldur þvert á móti ein-
staklega lífsglaður.
„En allir upplifa eitthvað og það
að geta komið því út í gegnum tón-
list er náttúrulega geðveikt. Mér
finnst fólk oftar tengja við þetta
persónulega.“
Fjörið rétt að byrja
Hvernig er svo tilfinningin að vera
búinn að senda frá þér þessa plötu?
„Það er eiginlega bara ótrúlega
skrítið. Ég er alltaf búinn að vera
að hugsa og reyna að sjá fyrir mér
hvernig það verður þegar ég næ
loksins að sýna fólki þetta, ég er
eiginlega ekki búinn að ná að átta
mig á þessu. En það er auðvitað geð-
veikt að vera búinn að gefa út. Núna
byrjar þetta fyrir alvöru. Ég er bara
ótrúlega spenntur að sjá hvert þetta
leiðir mig.“
Hvað er svo planið núna? „Ég er
alltaf í stúdíóinu núna að taka upp
eitthvað nýtt og hugsa um hvað mig
langar til að gera. Oftast er langbest
að hugsa ekkert um hvað maður
ætlar að gera, þá kemur yfirleitt það
besta út. Ef maður planar of mikið
og hugsar of mikið þá er þetta ekki
lengur í því „væbi“ að ég sé að hafa
gaman, þá verður þetta kannski of
alvarlegt. Við erum að búa til góða
tónlist og það er nóg.“
stefanthor@frettabladid.is
Ég Er bara búinn að
vEra „in thE shad
ows“ að bíða EFtir rÉtta
augnablikinu. góðir hlutir
gErast hægt.
1399 kr.kg
Krónu Hamborgarhryggur
Gott
verð!
Whilst every effort is made to avoid mistakes errors can occur. Please check these
carefully. Proofs that are sent back without signature is considered approved and ok.
Approved and OK New proof please
DATE:
SIGNATURE:
/Ingenjörsgatan 7-9
Box 814, 251 08 Helsingborg
Tel. vx. 042-24 73 00
info@lindsflexo.se, www.lindsflexo.se
14
0
280
Linds Flexo, 1310144 Fiskikongurinn_KORR , 17-JAN-13 YTTER catarina
Sogavegi 3
Höfðabakka 1
HUMAR
3.900
Stærð 30/40 kr.kg
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r68 l í F I ð ∙ F r É T T A b l A ð I ð
Lífið
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-5
E
A
4
1
E
7
C
-5
D
6
8
1
E
7
C
-5
C
2
C
1
E
7
C
-5
A
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K