Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 62
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F I m m T U d A G U r50 b í l A r ∙ F r É T T A b l A ð I ð
Bílar
Í fyrsta sinn frá efnahagshruninu
árið 2008 verður bílasala minni í ár í
Bandaríkjunum en árið á undan, þó
ekki muni miklu. Fyrstu 11 mánuði
ársins hefur salan verið 1,5% minni
en í fyrra, er salan náði metsölunni
17,6 milljón bílar. Salan hefur
sem sagt aukist ár frá ári síðustu 9
ár en einsýnt var að þessi vöxtur
myndi einhvern tíma taka enda og
allt stefnir í að það verði ár, nema
gríðarleg sala verði í desember.
Ekkert bendir reyndar til þess. Það
sem drifið hefur þessi síauknu sölu
á undanförnum árum er lágt verð
á eldsneyti í Bandaríkjunum, hag-
stæð bílalán, lágt verð á bílum og
gríðarleg samkeppni á milli bíla-
framleiðenda.
Uppsöfnuð endurnýjunarþörf
yfirstaðin
Að auki var uppsöfnuð þörf á
kaupum á nýjum bílum eftir gríðar-
lega minnkandi sölu á árum efna-
hagskreppunnar og mikil endur-
nýjunarþörf. Eins og salan lítur út í
dag stefnir í 17,1 milljón bíla sölu í
Bandaríkjunum í ár, eða hálfri millj-
ón færri seldra nýrra bíla en í fyrra.
Spáin fyrir næsta ár kveður einn-
ig á um minnkun í sölu, eða upp á
16,6 til 16,7 milljón bíla samkvæmt
spám Autotrader.com og Kelly Blue
Book. Það sem minnka mun söluna
að þeirra mati er tilkoma mikils
magns af nýlegum bílum sem renna
út í leigu og verða boðnir til sölu
lítillega notaðir. Búist er við því að
sala næstu ára muni ná jafnvægi í
um 15,5 til 16 milljón bíla sölu. Því
er gósentíð bílaframleiðenda að ein-
hverju leyti að renna sitt skeið nú
vestanhafs og ár stöðugleika í sölu
fram undan með minni sveiflum en
á síðustu árum.
Minni bílasala í
Bandaríkjunum í
fyrsta sinn frá hruni
Fer úr 17,6 milljónum bíla í fyrra í um 17,1 milljón í ár.
Salan hefur aukist ár frá ári síðustu 9 ár en nú er lát á aukningunni.
Franski bílaframleiðandinn Renault
kynnti þann 7. desember nýja 1,3 l
bensínvél, Energy Tce með beinni
innspýtingu og forþjöppu, sem
þróuð var í samstarfi við Nissan og
Daimler, móðurfyrirtæki Mercedes
Benz. Eru fyrstu vélarnar nú þegar
komnar í nýjustu Renault Scénic og
Grand Scénic á meginlandi Evrópu.
Vélin er snörp og togmikil og jafn-
framt eyðslugrennri og umhverfis-
mildari en fyrri vélar. Kaupendur
Scénic geta valið um þrjár útfærslur;
115 hestafla Energy Tce-vélina við
beinskiptinu og 140 eða 160 hest-
afla Energy Tce-vél þar sem velja má
um beinskiptingu eða EDC tveggja
kúplinga sjálfskiptingu. Á næsta ári
hyggst Renault bjóða fleiri bílgerðir
með þessari nýju vél.
Renault kynnir nýja bensínvél
Bílaumferð í Bandaríkjunum.
N Ý F O R M
h ú s g a g n a v e r s l u n
h ú s g a g n av e r s l u n
Strandgötu 24 | 220 Hafnarfjörður | Sími 565 4100 | nyform.is
Amadeus borðstofuhúsgögn
Opið virka daga
11-18
laugardaga
11-15
Komið og skoðið úrvalið
lyftarar og hillukerfi
www.velaborg.is velaborg@velaborg.is s. 414 8600
V
Hafðu lyfin tilbúin þegar þú sækir
Pantaðu tiltekt á appotek.is
eða í síma 568 0990
Garðs Apótek - í leiðinni
Fáðu lyfin send heim með póstinum
Pantaðu sendingu á appotek.is
Garðs Apótek - um land allt
Sogavegi við Réttarholtsveg og Miklubraut
Opið kl. 9-18 virka daga, lokað um helgar
Bæjarhrauni 2 | Hafnarfirði | Sími: 4370000 | hafis@hafis.is
Komdu og fáðu rjómaís og laktósafrían vegan ís
Íslenskur ís með ítalskri hefð
Hin nýja 1,3 lítra Tce vél Renault er öflug þrátt fyrir smæðina.
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-5
4
C
4
1
E
7
C
-5
3
8
8
1
E
7
C
-5
2
4
C
1
E
7
C
-5
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K