Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 52
Sóknarmaðurinn Geoffrey Castillion
fer frá Víkingi til FH.
FH-ingar hafa verið stórtækir og hér bjóða þeir Kristin Steindórsson velkominn í Krikann. Fréttablaðið/Ernir
Varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen
er kominn til Víkings frá Kína.
Kristinn Freyr Sigurðsson er kominn
aftur í Val eftir eins árs fjarveru.
Fótbolti Pepsi-deildin byrjar ekki
fyrr en eftir rúma fjóra mánuði en
leikmannamál félaganna eru farin
að skýrast.
Það kostar sitt að ná til sín feit-
ustu bitunum og það þarf því ekki
að koma á óvart að risarnir í deild-
inni hafi verið í aðalhlutverki það
sem af er. Stóru strákarnir borða
fyrst en svo keppa hinir um molana.
Risinn meðal risanna hefur
aðsetur í Kaplakriknum. FH-ingar
hafa farið mikinn á markaðnum og
það er augljóst að slakasti árangur
félagsins í fimmtán ár hefur hreyft
við mönnum og kallað á alvöru liðs-
styrk. Ólafur Kristjánsson er tekinn
við af Heimi Guðjónssyni og hann
fær fullhlaðið vopnabúr í endur-
komu sinni í Krikann.
Fréttablaðið hefur tekið saman
hvaða leikmenn eru komnir og
farnir hjá liðunum og í framhaldinu
höfum við gefið hverju liði einkunn
fyrir framgöngu þeirra.
FH-ingar fá hæstu einkunn en
næstir þeim koma Íslandsmeistar-
arar Vals sem ætla ekki að sofna á
verðinum þó að titillinn sé í húsi.
KR-ingar hafa einnig styrkt sig en
líkt og Blikar þá búa þeir að því að
hjá félaginu eru að koma upp sterkir
árgangar ungra leikmanna.
Víkingur fékk einn feitasta bitann
í Sölva Geir Ottesen en missti líka
öfluga menn til FH og Vals.
Menn horfa hins vegar spurnar-
augum til bæði Garðabæjar og
Akureyrar en Stjarnan og KA hafa
verið mjög öflug á markaðnum
síðustu ár. Bæði lið áttu frábæra
spretti síðasta sumar og vantar
kannski ekki mikið upp á til að
komast enn ofar. Það hefur hins
vegar ekki verið mikið að frétta
þaðan sem hlýtur að breytast á
næstu vikum sem um leið myndi
þýða hærri einkunn.
Nýliðar Fylkis og Keflavíkur hafa
verið mjög rólegir og það er óvissu-
ástand í bæði Eyjum og Grindavík
sem hafa misst feita bita. Þar ættu
menn að hafa áhyggjur ef ekki bæt-
ist í hópinn. sport@frettabladid.is
Stóru borða alltaf fyrst
Fréttablaðið skoðar í dag frammistöðu liðanna í Pepsi-deildinni á félagsskipta-
markaðnum. Líkt og áður eru það risarnir í deildinni sem sitja við kjötkatlana.
Víkingur R.
Komnir
Sölvi Geir Ottesen frá
Guangzhou R&F
Farnir
Geoffrey Castillion í FH
Ívar Örn Jónsson í Val
Viktor Bjarki Arnarsson í HK
Á sama tíma og Víkingar brosa sínu
breiðasta yfir að hafa endurheimt einn
sinn dáðasta son og leikmann sem
ætti með réttu að vera einn sá besti í
deildinni má ekki gleyma hvað er farið.
Magnaður framherji og fastamaður í
vörninni. Það þarf meira til.
Stjarnan
Komnir
Guðjón Orri Sigurjóns-
son frá Selfossi
Þorsteinn Már ragn-
arsson frá Víkingi Ó.
Farnir
Ágúst Leó Björnsson í ÍBV
Ólafur Karl Finsen í Val
Ekki mikið að gerast í Garðabæ miðað
við fyrri ár. Þorsteinn Már hentar ágæt-
lega í rokk og ról-fótbolta Stjörn-
unnar en verður væntanlega mikið á
bekknum. Guðjón Orri er illa meiddur.
Létu Ólaf Karl fara þegar kannski var
að kvikna á honum.
Fjölnir
Komnir
almarr Ormarsson frá
KA
Sigurpáll Melberg Páls-
son frá Fram
Farnir
Fredrik Michaelsen
Ivica Dzolan, Linus Olsson og
Mees Siers
Útlendingahreinsunin er hafin eins og
Ólafur Páll talaði um. Hann veit að
hann þarf að endurheimta hjartað í
liðinu og fékk því mikinn baráttujaxl
frá KA sem spilaði vel í sumar. Nú er
lykilatriðið að halda ungu strákunum
sem eru sumir hverjir þeir mest spenn-
andi í deildinni.
ÍBV
Komnir
alfreð Már Hjaltalín
frá Víkingi Ó.
Ágúst leó björnsson frá
Stjörnunni
Dagur austmann Hilmarsson frá
Stjörnunni
Farnir
Alvaro Montejo Calleja í Þór
David Atkinson til Englands
Hafsteinn Briem
Jónas Þór Næs
Mikkel Maigaard Jakobsen
Pablo Punyed í KR
Þarf ekki að láta Kristján Guðmunds-
son vita að ÍBV hélt sæti sínu í deildinni
og að það er Evrópa næsta sumar?
Tveir ungir menn sem voru lánaðir
í 2. deild síðasta sumar og Ólafs-
víkingurinn sem sefur alltaf í Pepsi-
deildinni. Fjórir byrjunarliðsmenn sem
voru hluti af kjarna liðsins einnig farnir.
Grindavík
Komnir
Jóhann Helgi Hannes-
son frá Þór
Orri Freyr Hjaltalín frá
Þór
Farnir
Andri Rúnar Bjarnason í Helsingborg
Einn mesti missir liðs í vetur og undan-
farin ár í Pepsi-deildinni. Óli Stefán getur
sannað að hann lærði fótboltafræðin
í Hogwarts geri hann Jóhann Helga að
öðrum eins markaskorara. Öfugur ferill
Orra Freys gæti orðið skemmtileg saga
en lítið meira en það.
KA
Komnir
Sæþór Olgeirsson frá
Völsungi
Farnir
Almarr Ormarsson í Fjölni
Bjarki Þór Viðarsson í Þór
Davíð Rúnar Bjarnason í Magna
Það er ekki alltaf sem lið gerir betur, og
þá töluvert betur, í leikmannalugga fyrir
Inkasso-tímabil en í Pepsi. Flestir bjugg-
ust við meiru af Akureyringum núna en
þeir hafa verið ansi rólegir. Horfðu vita-
skuld til Húsavíkur og horfa enn.
Fylkir
Komnir
Stefán ari björnsson
frá Gróttu
ragnar bragi Sveinsson frá Víkingi
Farnir
Árbæingar virðast enn sem komið
er veðja á strákana sína sem féllu en
komust beint upp aftur. Fylkir hefur oft
verið lúmskt öflugt á markaðnum en
lítið gerist núna. Er nánast sama lið og
féll fyrir ári nógu gott fyrir Pepsi 2018?
Keflavík
Komnir
Farnir
Jónas Guðni Sævarsson hættur
Guðjóni Árni Antoníusson hættur
Jóhann Birnir Guðmundsson hættur
Guðlaugur Baldursson er með spenn-
andi lið í höndunum; blöndu af ungum
heimamönnum, nokkrum eldri og
öflugum erlendum leikmönnum. Það
dugði vel í Inkasso-deildinni en efsta
deild er allt annað skrímsli. Heil kyn-
slóð, hokin af reynslu, horfin á einu
bretti. Nú þurfa menn að vakna.
FH
Komnir
Geoffrey Castillion frá
Víkingi
Guðmundur Kristjánsson frá
Start
Hjörtur logi Valgarðsson frá Örebro
Kristinn Steindórsson frá Sundsvall
Farnir
Emil Pálsson til Sandefjord
Kassim Doumbia, Matija Dvornekovic
Hafnarfjarðarliðið spilar beinskeyttari
sóknarleik á markaðnum en inni á
vellinum síðasta sumar. Þriðja sætið
virðist hafa farið illa í menn í Krikanum
og Ólafur Kristjánsson fær allt til alls
til að endurheimta Íslandsmeistara-
titilinn. Og rúmlega það!
a+
Valur
Komnir
Kristinn Freyr Sigurðs-
son frá GIF Sundsvall
Ívar Örn Jónsson frá
Víkingi R.
Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni
Farnir
Nicolas Bogild
Íslandsmeistararnir endurheimtu besta
leikmann Íslandsmótsins 2016 og
bættu við góðum leikmanni í sóknina
sem er væntanlega ólmur í að kalla
fram Íslandsmeistaraformið sitt.
Fengu svo öflugan liðsstyrk til að auka
breiddina á vinstri vængnum.
a
KR
Komnir
björgvin Stefáns-
son frá Haukum
Kristinn Jónsson frá
Breiðabliki
Pablo Punyed frá ÍBV
Farnir
Michael Præst
Robert Sandnes
Stefán Logi Magnússon
Rúnar Kristinsson þarf að sýna að
hann geti gert Inkasso-framherja að
spilara í efstu deild og virkja Salva-
dorann til að lífga aðeins upp á annars
líflaust miðjuspil liðsins. Það er mikill
liðsstyrkur í Kristni Jónssyni og er lítið
farið sem skiptir máli.
b+
Breiðablik
Komnir
Jonathan Hend-
rickx frá Leixoes
Farnir
Dino Dolmagic
Ernir Bjarnason í Leikni R.
Kristinn Jónsson í KR
Sólon Breki Leifsson í Vestra
Bakvarðaskiptin eru góð en verst að
þeir nota ekki sama fót til að sparka í
boltann. Blikarnir hafa aðeins fengið
einn en það er gæðaleikmaður sem
FH saknaði mikið eftir að hann fór.
Munu ekki sakna Kristins eins og hann
spilaði í ár.
b
b
b- C+
C-
C-
D
D
F
4
lið í Pepsi-deildinni mæta
með nýjan þjálfara næsta
sumar en það eru FH, KR,
Breiðablik og Fjölnir.
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r40 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
sPoRt
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-8
1
3
4
1
E
7
C
-7
F
F
8
1
E
7
C
-7
E
B
C
1
E
7
C
-7
D
8
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K