Fréttablaðið - 14.12.2017, Síða 52

Fréttablaðið - 14.12.2017, Síða 52
Sóknarmaðurinn Geoffrey Castillion fer frá Víkingi til FH. FH-ingar hafa verið stórtækir og hér bjóða þeir Kristin Steindórsson velkominn í Krikann. Fréttablaðið/Ernir Varnarmaðurinn Sölvi Geir Ottesen er kominn til Víkings frá Kína. Kristinn Freyr Sigurðsson er kominn aftur í Val eftir eins árs fjarveru. Fótbolti Pepsi-deildin byrjar ekki fyrr en eftir rúma fjóra mánuði en leikmannamál félaganna eru farin að skýrast. Það kostar sitt að ná til sín feit- ustu bitunum og það þarf því ekki að koma á óvart að risarnir í deild- inni hafi verið í aðalhlutverki það sem af er. Stóru strákarnir borða fyrst en svo keppa hinir um molana. Risinn meðal risanna hefur aðsetur í Kaplakriknum. FH-ingar hafa farið mikinn á markaðnum og það er augljóst að slakasti árangur félagsins í fimmtán ár hefur hreyft við mönnum og kallað á alvöru liðs- styrk. Ólafur Kristjánsson er tekinn við af Heimi Guðjónssyni og hann fær fullhlaðið vopnabúr í endur- komu sinni í Krikann. Fréttablaðið hefur tekið saman hvaða leikmenn eru komnir og farnir hjá liðunum og í framhaldinu höfum við gefið hverju liði einkunn fyrir framgöngu þeirra. FH-ingar fá hæstu einkunn en næstir þeim koma Íslandsmeistar- arar Vals sem ætla ekki að sofna á verðinum þó að titillinn sé í húsi. KR-ingar hafa einnig styrkt sig en líkt og Blikar þá búa þeir að því að hjá félaginu eru að koma upp sterkir árgangar ungra leikmanna. Víkingur fékk einn feitasta bitann í Sölva Geir Ottesen en missti líka öfluga menn til FH og Vals. Menn horfa hins vegar spurnar- augum til bæði Garðabæjar og Akureyrar en Stjarnan og KA hafa verið mjög öflug á markaðnum síðustu ár. Bæði lið áttu frábæra spretti síðasta sumar og vantar kannski ekki mikið upp á til að komast enn ofar. Það hefur hins vegar ekki verið mikið að frétta þaðan sem hlýtur að breytast á næstu vikum sem um leið myndi þýða hærri einkunn. Nýliðar Fylkis og Keflavíkur hafa verið mjög rólegir og það er óvissu- ástand í bæði Eyjum og Grindavík sem hafa misst feita bita. Þar ættu menn að hafa áhyggjur ef ekki bæt- ist í hópinn. sport@frettabladid.is Stóru borða alltaf fyrst Fréttablaðið skoðar í dag frammistöðu liðanna í Pepsi-deildinni á félagsskipta- markaðnum. Líkt og áður eru það risarnir í deildinni sem sitja við kjötkatlana. Víkingur R. Komnir Sölvi Geir Ottesen frá Guangzhou R&F Farnir Geoffrey Castillion í FH Ívar Örn Jónsson í Val Viktor Bjarki Arnarsson í HK Á sama tíma og Víkingar brosa sínu breiðasta yfir að hafa endurheimt einn sinn dáðasta son og leikmann sem ætti með réttu að vera einn sá besti í deildinni má ekki gleyma hvað er farið. Magnaður framherji og fastamaður í vörninni. Það þarf meira til. Stjarnan Komnir Guðjón Orri Sigurjóns- son frá Selfossi Þorsteinn Már ragn- arsson frá Víkingi Ó. Farnir Ágúst Leó Björnsson í ÍBV Ólafur Karl Finsen í Val Ekki mikið að gerast í Garðabæ miðað við fyrri ár. Þorsteinn Már hentar ágæt- lega í rokk og ról-fótbolta Stjörn- unnar en verður væntanlega mikið á bekknum. Guðjón Orri er illa meiddur. Létu Ólaf Karl fara þegar kannski var að kvikna á honum. Fjölnir Komnir almarr Ormarsson frá KA Sigurpáll Melberg Páls- son frá Fram Farnir Fredrik Michaelsen Ivica Dzolan, Linus Olsson og Mees Siers Útlendingahreinsunin er hafin eins og Ólafur Páll talaði um. Hann veit að hann þarf að endurheimta hjartað í liðinu og fékk því mikinn baráttujaxl frá KA sem spilaði vel í sumar. Nú er lykilatriðið að halda ungu strákunum sem eru sumir hverjir þeir mest spenn- andi í deildinni. ÍBV Komnir alfreð Már Hjaltalín frá Víkingi Ó. Ágúst leó björnsson frá Stjörnunni Dagur austmann Hilmarsson frá Stjörnunni Farnir Alvaro Montejo Calleja í Þór David Atkinson til Englands Hafsteinn Briem Jónas Þór Næs Mikkel Maigaard Jakobsen Pablo Punyed í KR Þarf ekki að láta Kristján Guðmunds- son vita að ÍBV hélt sæti sínu í deildinni og að það er Evrópa næsta sumar? Tveir ungir menn sem voru lánaðir í 2. deild síðasta sumar og Ólafs- víkingurinn sem sefur alltaf í Pepsi- deildinni. Fjórir byrjunarliðsmenn sem voru hluti af kjarna liðsins einnig farnir. Grindavík Komnir Jóhann Helgi Hannes- son frá Þór Orri Freyr Hjaltalín frá Þór Farnir Andri Rúnar Bjarnason í Helsingborg Einn mesti missir liðs í vetur og undan- farin ár í Pepsi-deildinni. Óli Stefán getur sannað að hann lærði fótboltafræðin í Hogwarts geri hann Jóhann Helga að öðrum eins markaskorara. Öfugur ferill Orra Freys gæti orðið skemmtileg saga en lítið meira en það. KA Komnir Sæþór Olgeirsson frá Völsungi Farnir Almarr Ormarsson í Fjölni Bjarki Þór Viðarsson í Þór Davíð Rúnar Bjarnason í Magna Það er ekki alltaf sem lið gerir betur, og þá töluvert betur, í leikmannalugga fyrir Inkasso-tímabil en í Pepsi. Flestir bjugg- ust við meiru af Akureyringum núna en þeir hafa verið ansi rólegir. Horfðu vita- skuld til Húsavíkur og horfa enn. Fylkir Komnir Stefán ari björnsson frá Gróttu ragnar bragi Sveinsson frá Víkingi Farnir Árbæingar virðast enn sem komið er veðja á strákana sína sem féllu en komust beint upp aftur. Fylkir hefur oft verið lúmskt öflugt á markaðnum en lítið gerist núna. Er nánast sama lið og féll fyrir ári nógu gott fyrir Pepsi 2018? Keflavík Komnir Farnir Jónas Guðni Sævarsson hættur Guðjóni Árni Antoníusson hættur Jóhann Birnir Guðmundsson hættur Guðlaugur Baldursson er með spenn- andi lið í höndunum; blöndu af ungum heimamönnum, nokkrum eldri og öflugum erlendum leikmönnum. Það dugði vel í Inkasso-deildinni en efsta deild er allt annað skrímsli. Heil kyn- slóð, hokin af reynslu, horfin á einu bretti. Nú þurfa menn að vakna. FH Komnir Geoffrey Castillion frá Víkingi Guðmundur Kristjánsson frá Start Hjörtur logi Valgarðsson frá Örebro Kristinn Steindórsson frá Sundsvall Farnir Emil Pálsson til Sandefjord Kassim Doumbia, Matija Dvornekovic Hafnarfjarðarliðið spilar beinskeyttari sóknarleik á markaðnum en inni á vellinum síðasta sumar. Þriðja sætið virðist hafa farið illa í menn í Krikanum og Ólafur Kristjánsson fær allt til alls til að endurheimta Íslandsmeistara- titilinn. Og rúmlega það! a+ Valur Komnir Kristinn Freyr Sigurðs- son frá GIF Sundsvall Ívar Örn Jónsson frá Víkingi R. Ólafur Karl Finsen frá Stjörnunni Farnir Nicolas Bogild Íslandsmeistararnir endurheimtu besta leikmann Íslandsmótsins 2016 og bættu við góðum leikmanni í sóknina sem er væntanlega ólmur í að kalla fram Íslandsmeistaraformið sitt. Fengu svo öflugan liðsstyrk til að auka breiddina á vinstri vængnum. a KR Komnir björgvin Stefáns- son frá Haukum Kristinn Jónsson frá Breiðabliki Pablo Punyed frá ÍBV Farnir Michael Præst Robert Sandnes Stefán Logi Magnússon Rúnar Kristinsson þarf að sýna að hann geti gert Inkasso-framherja að spilara í efstu deild og virkja Salva- dorann til að lífga aðeins upp á annars líflaust miðjuspil liðsins. Það er mikill liðsstyrkur í Kristni Jónssyni og er lítið farið sem skiptir máli. b+ Breiðablik Komnir Jonathan Hend- rickx frá Leixoes Farnir Dino Dolmagic Ernir Bjarnason í Leikni R. Kristinn Jónsson í KR Sólon Breki Leifsson í Vestra Bakvarðaskiptin eru góð en verst að þeir nota ekki sama fót til að sparka í boltann. Blikarnir hafa aðeins fengið einn en það er gæðaleikmaður sem FH saknaði mikið eftir að hann fór. Munu ekki sakna Kristins eins og hann spilaði í ár. b b b- C+ C- C- D D F 4 lið í Pepsi-deildinni mæta með nýjan þjálfara næsta sumar en það eru FH, KR, Breiðablik og Fjölnir. 1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r40 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð sPoRt 1 4 -1 2 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 8 8 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E 7 C -8 1 3 4 1 E 7 C -7 F F 8 1 E 7 C -7 E B C 1 E 7 C -7 D 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 1 3 _ 1 2 _ 2 0 1 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.