Fréttablaðið - 14.12.2017, Blaðsíða 27
Eftir hrunið 2008 varð fljótlega ljóst að þv. ríkisstjórn vildi ekki að erlendir aðilar kæmu
að rannsókn málsins. Ég lagði það
til í ræðu minni á borgarafundi í
Háskólabíói 24. nóvember þá um
haustið að óvilhallir útlendingar
yrðu hafðir með í ráðum við rann-
sóknina og aftur í einkasamtali við
ráðherra. Ég varð þess áskynja að við
þetta var ekki komandi. Ég var ekki
einn um þessar áhyggjur. Jónas Krist-
jánsson ritstjóri skrifaði tæpu ári
síðar, 28. september 2009, undir yfir-
skriftinni Vel tengdur glæpalýður:
„Erlendir ráðamenn efast um, að
Ísland geri upp sakirnar við glæpa-
lýðinn, sem rústaði fjárhag og áliti
landsins. Gera ráð fyrir, að sannleiks-
nefndin fræga stundi kattarþvott.
Taka eftir, að enginn glæpamaður
hefur verið settur inn, ekki einu sinni
yfirmenn IceSave og Landsbankans.
Ísland er talið vera eins konar mafíu-
ríki, þar sem vel tengdur glæpalýður
sleppur billega frá ofursyndum
sínum. Samt er Sjálfstæðisflokkurinn
ekki lengur formlega við völd. En
hann ræður enn embættum og dóm-
stólum og lögreglu og skilanefndum
og sannleiksnefnd. Pólitíkin er
máttvana, jafnvel þótt hér sé vinstri
stjórn.“
Erlend skrif um Ísland
Bakgrunnur þessara áhyggna Jónasar
Kristjánssonar og margra annarra
var m.a. fréttaflutningur erlendra
fjölmiðla um Ísland, en landið hafði
fram að hruni ekki verið í alfaraleið
heimspressunnar. Hrunárið 2008
brá svo við að Financial Times í
London birti 250 greinar um Ísland,
Globe and Mail í Torontó birti 170
greinar, Guardian sem var áður
kennt við Manchester og er nú
heimsblað 130, Le Monde í París 110
og New York Times 75. Þessar tölur
eru sóttar í bók eftir kanadíska pró-
fessorinn Daníel Chartier frá 2011,
The End of Iceland's Innocence: The
Image of Iceland in the Foreign Media
during the Financial Crisis. Erlendir
fjölmiðlar (og innlendir!) fjölluðu
Samstæð sakamál IV
Þorvaldur
Gylfason
Í dag m.a. um grunsemdir um að íslenzkir
bankar hefðu stundað fjárböðun
fyrir rússnesku mafíuna og um til-
raun þv. ríkisstjórnar og Seðlabank-
ans til að komast hjá að þiggja aðstoð
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins með því
að taka heldur risalán hjá Pútín
Rússlandsforseta. Grunsemdirnar
um Rússatengslin eru enn á sveimi
m.a. vegna þess að Ísland kann að
koma við sögu í rannsókn banda-
ríska saksóknarans Roberts Mueller
á tengslum Trumps forseta og manna
hans við Rússa, þ. á m. dæmda menn
og mafíósa.
Þetta er samt ekki allt. Fyrir
liggur að miklu fé var mokað út
úr bönkunum í miðju hruni, bæði
mánudaginn 6. október 2008 eins og
leknu gögnin sem Stundin birti frá
skilanefnd Glitnis vitna um og lög-
bann var lagt á fyrir nokkru og jafn-
vel einnig þriðjudaginn 7. október
eins og Robert Wade, prófessor í
London School of Economics, og
Sigurbjörg Sigurgeirsdóttir, dósent
í Háskóla Íslands, hafa lýst í erlendu
tímariti (New Left Review, septem-
ber/október 2010, bls. 22). Þau skrifa
[mín þýðing, ÞG]:
„Meðan krónan var í frjálsu falli,
gjaldeyrisforðinn var á þrotum og
engar hömlur öftruðu útstreymi
fjármagns, var gengið fest í fáeinar
klukkustundir; þetta var e.t.v. stytzta
fastgengisskeið sem sögur fara af.
En það var nógu langt til þess að vel
tengdir innherjar gátu fært fé sitt
úr krónum yfir í gjaldeyri á miklu
hagstæðara gengi en þeim myndi
bjóðast síðar. Heimildir innan
bankanna herma að milljarðar hafi
flúið krónuna þessar klukkustundir.
… Síðan var krónan sett á flot – og
hún sökk eins og steinn.“
Virðing Alþingis
Ótti við hvítþvott af hálfu rann-
sóknarnefndar Alþingis reyndist
ekki réttur. Nefndin skilaði góðu
verki á heildina litið. Hitt er þó rétt
að RNA tók á hvorugu málinu sem
lýst er hér að framan, hvorki meintri
fjárböðun fyrir Rússa né meintum
mokstri fjár vel tengdra manna út úr
bönkunum og út úr landinu í miðju
hruni meðan venjulegt fólk sat eftir
með sárt ennið og sumir misstu
aleiguna.
Yfirvöldin hafa haft nægan tíma
til að rannsaka þessa atburðarás, en
þau hafa kosið að leiða hana hjá sér.
Tilfinnanlegust er e.t.v. vanræksla
Alþingis sem samþykkti í desember
2012 að láta fara fram rannsókn á
einkavæðingu bankanna en ekkert
bólar þó enn á slíkri rannsókn.
Svo vant sem Alþingi er að virð-
ingu sinni getur það varla talið sæma
að fagna 100 ára afmæli fullveldisins
1. desember 2018 með lúðraþyt og
söng eftir að hafa látið fyrningarfrest
meintra innherja- og umboðssvika
í hruninu líða hjá sjö vikum fyrr
vitandi vits – og stolið nýju stjórnar-
skránni í þokkabót.
Rifjast nú upp fyrir mér spurn-
ingin sem einn helzti listamaður
þjóðarinnar lagði fyrir mig við
kvöldverðarborð í heimahúsi: Datt
ykkur ekki í hug að bjóða þeim að
halda þýfinu í skiptum fyrir nýju
stjórnarskrána? Ekki mitt að bjóða,
svaraði ég.
Svo vant sem Alþingi er að
virðingu sinni getur það
varla talið sæma að fagna
100 ára afmæli fullveldisins
1. desember 2018 með
lúðraþyt og söng eftir að hafa
látið fyrningarfrest meintra
innherja- og umboðssvika
í hruninu líða hjá sjö
vikum fyrr vitandi vits – og
stolið nýju stjórnarskránni í
þokkabót.
GEFÐU
HÆNU
gjofsemgefur.is
9O7 2OO3
kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bolla kaffitár frá býli í bol
la
k
aff
itá
R
f
rá
bý
li
í b
ol
la
ka
ff
itá
r
f
rá
býli
í boll
a
hátíðí bæ
S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 27F i M M T u d a g u R 1 4 . d e S e M B e R 2 0 1 7
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-5
4
C
4
1
E
7
C
-5
3
8
8
1
E
7
C
-5
2
4
C
1
E
7
C
-5
1
1
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K