Fréttablaðið - 14.12.2017, Side 54
Fótbolti Leikmenn Arsenal verða
eflaust ekkert alltof spenntir þegar
þeir ganga inn á Jämkraft Arena,
lítinn gervigrasvöll í Svíþjóð sem
tekur tæplega 8.500 manns í sæti,
15. febrúar næstkomandi. Og það
verður væntanlega skítkalt enda er
Östersund stundum kölluð „Vetrar-
borgin“. Þetta verður hins vegar
stærsta stundin í sögu mótherjans,
Östersund.
Uppgangur þessa sænska félags
á undanförnum árum hefur verið
lygilegur. Til að setja þetta í eitt-
hvert samhengi var Östersund
stofnað 31. október árið 1996,
30 dögum eftir að Arsene
Wenger tók við Arsenal.
Samt liggja leiðir þess-
ara tveggja liða saman í
32-liða úrslitum Evrópu-
deildarinnar.
Fyrir 21 ári sam-
einuðust þrjú félög undir
merkjum Östersund; Ope
IF, IFK Östersund og Öster-
sund/Torvalla FF. Næstu ár
bættust tvö önnur félög við;
Frösö IF og Fältjägarnas IF.
Frá botninum og upp á topp
Til að byrja með var Öster-
sund ekki áberandi á landa-
korti sænska boltans. Liðið var í
C-deild fyrstu 14 árin en féll niður
í D-deild 2010. Þá tók stjórnarfor-
maður Östersund, fyrrverandi her-
maðurinn Daniel Kindberg, góða
ákvörðun og réð 35 ára gamlan
Englending að nafni Graham
Potter. Sá hafði verið hálfgerður
farandverkamaður sem leikmaður,
lék með 11 liðum á 15 ára ferli, og
fetaði menntaveginn að honum
loknum. Hann náði sér í háskóla-
gráðu og þjálfaði svo háskólalið.
Potter virðist, eins og Englend-
ingur með sama eftirnafn, vera
göldróttur. Frá því hann tók við
Östersund er hann búinn að koma
liðinu upp um þrjár deildir, vinna
sænska bikarmeistaratitilinn og
koma því í 32-liða úrslit Evrópu-
deildarinnar. Í 2. umferð forkeppn-
innar sló Östersund tyrkneska
stórliðið Galatasary út og lenti svo
í 2. sæti síns riðils í riðlakeppninni.
Í þeim riðli voru einnig Athletic
Bilbao, Hertha Berlin og
Zorya Luhansk. Östersund
tapaði aðeins einum leik,
fyrir Athletic á útivelli.
Sá Íslendingur sem
þekkir Östersund og
ævintýri þess betur
en nokkur annar er
m a r k v ö r ð u r i n n
Haraldur Björns-
son. Hann lék
með liðinu á
árunum 2014-
16 og hjálpaði
því að kom-
ast upp í
s æ n s k u
ú r v a l s -
deildina.
Sá þetta
ekki fyrir
„Ég held að ég hefði
ekki getað séð þetta fyrir
þegar ég skrifaði undir
hjá þeim fyrir þremur
árum,“ sagði Haraldur í
samtali við íþróttadeild.
„Þessi bær var bara
þekktur fyrir skíða-
göngu og á veturna fer hitinn niður
í svona 30 gráður.“
Leikmannahópur Östersund
inniheldur ekki þekktustu leik-
mennina og þeir fá ekki hæstu laun-
in. Rúmlega helmingur þeirra er
Svíar en þar er einnig að finna leik-
menn frá Englandi, Íran, Gana, Írak,
Nígeríu, Kómoreyjum og Palestínu.
Samkvæmt félagaskiptasíðunni
Transfermarkt er allur leikmanna-
hópur Östersund metinn á tæpar 11
milljónir punda. Til samanburðar
er allur leikmannahópur Arsenal
metinn á rétt rúmar 457 milljónir
punda.
„Það er ótrúlegt hvað þjálfarinn
er búinn að gera við þennan mann-
skap. Þetta er sami hópur og þegar
ég var þarna. Ég held að það sé einn
úr byrjunarliðinu sem er nýr frá
þessu ári,“ sagði Haraldur.
Besti þjálfarinn
Markvörðurinn ber Potter vel sög-
una og segir hann besta þjálfara sem
hann hefur haft.
„Hann var búinn að þjálfa eitt-
hvert háskólalið á Englandi áður en
hann kom til Östersund. Þetta hefur
undið vel upp á sig. Hann er orðinn
svo eftirsóttur og hafnaði félagi í
ensku úrvalsdeildinni því honum
fannst það ekki vera það rétta fyrir
sig,“ sagði Haraldur. En hvað gerir
Potter að svona góðum þjálfara?
„Þessi metnaður til að bæta sig.
Hann er óþreytandi í að leikgreina
liðið, æfingarnar, andstæðinginn og
bæta sig frá degi til dags. Það voru
aldrei nein útihlaup, aldrei neinar
mælingar, heldur bara fótbolti og
ekkert annað.“
Haraldur segir að Potter fari líka
óhefðbundnar leiðir í að hrista leik-
mannahóp Östersund saman og
hugsi út fyrir kassann fræga.
Leiksýningar og tónleikar
„Þeir eru með menningarpró-
gramm. Þegar ég var þarna vorum
við með danssýningu. Síðustu 5-6
árin eru þeir búnir að setja upp
listasýningu og vera með tónleika
fyrir framan 1.500 manns. Þetta
er svo sérstakt,“ sagði Haraldur en
Östersund tekur samfélagshlutverk
sitt alvarlega. Félagið hefur m.a.
boðið hælisleitendum á leiki og að
horfa á æfingar og verið með vakt til
að hjálpa konum að komast heilu og
höldnu heim til sín á kvöldin.
ingvithor@365.is
Töframaðurinn Potter af Östersund
Undir stjórn Englendingsins Grahams Potter hefur Östersund náð eftirtektarverðum árangri á undanförnum árum. Liðið varð bikar-
meistari í vor og er komið í 32-liða úrslit Evrópudeildarinnar þar sem það mætir enska stórliðinu Arsenal í febrúar næstkomandi.
Uppgangur
Östersunds:
2011: 1. sæti í D-deild norður
2012: 1. sæti í C-deild norður
2013: 10. sæti í B-deild
2014: 5. sæti í B-deild
2015: 2. sæti í B-deild
2016: 8. sæti í A-deild
2017: 5. sæti í A-deild, bikar-
meistarar, í 32-liða úrslit Evrópu-
deildarinnar
Leikmenn Östersund fögnuðu ákaft eftir að þeir tryggðu sér sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar. Nokkrum mánuðum síðar tryggðu þeir sér sæti í 32-liða úrslitum keppninnar. NordicphotoS/gEtty
graham potter er eini
enski þjálfarinn sem er
eftir í Meistaradeild Evr-
ópu og Evrópudeildinni.
NordicphotoS/gEtty
Það voru aldrei nein
útihlaup, aldrei
neinar mælingar, heldur bara
fótbolti og ekkert annað.
Haraldur Björnsson
1 4 . d e s e m b e r 2 0 1 7 F i m m t U d A G U r42 s p o r t ∙ F r É t t A b l A ð i ð
1
4
-1
2
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
8
8
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
7
C
-7
7
5
4
1
E
7
C
-7
6
1
8
1
E
7
C
-7
4
D
C
1
E
7
C
-7
3
A
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
8
8
s
_
1
3
_
1
2
_
2
0
1
C
M
Y
K