Víkurfréttir - 15.12.2016, Síða 49
49fimmtudagur 15. desember 2016 VÍKURFRÉTTIR
Jólabíómyndin sem kemur þér í jólaskapið?
Elf og National Lampoon’s Christmas Vacation eru alltaf sígildar
en svo finnst mér The Holiday líka alveg dásamleg.
Sendir þú jólakort eða hefur Facebook tekið yfir?
Ég lagði á árum áður mikinn metnað í jólakortin, þau voru stór og
flott og alltaf með mynd. Svo kom það upp eitt árið að við fórum til
Flórída í jólafrí og jólakortin gleymdust. Ég var með samviskubit
yfir því en það kom í ljós að lífið gekk sinn vanagang og ekkert
alvarlegt tjón hlaust af svo eftir þetta hef ég kosið að halda áfram
að „gleyma“ kortunum.
Ertu vanaföst um jólin, er eitthvað sem
þú gerir alltaf yfir hátíðarnar?
Ég er kannski helst vanaföst í jólaskrauti og þannig. Borðstofu-
glugginn, það er jólaglugginn, sem ég skreyti alltaf sjálf og þarf
til þess að klifra í stiga upp í um fimm metra hæð til að ná í efsta
gluggann. Ég lét mig hafa það meira að segja þegar yngri daman
var á leiðinni og ég var komin tæpa átta mánuði á leið. Svo má
ekki klikka á skötunni, það verður að vera skata. Undanfarin ár
hafa Kristín mágkona mín og Sverrir, maðurinn hennar, haldið
svakaleg skötupartý.
Eftirminnilegasta jólagjöf sem þú hefur fengið?
Ég hef nú fengið margar æðislegar en ég man sérstaklega eftir
rauðbleikum kuldastígvélum með hvítu skinni inn í sem við
Gunnsa systir fengum alveg eins ein jólin. Þau voru með há
glansandi lakki og við svifum um á þeim þessi jólin.
Er eitthvað eftirminnilegt í huga þér frá yngri árum á jólum?
Jólaboð hjá ömmunum og þannig. Svo var það ein jólin þegar ég
var krakki að við systur herjuðum mjög fast á foreldrana að fara
í kirkju klukkan 18 á aðfangadag. Við höfðum stundum farið í
kvöldmessur áður. Þessi jólin var gefið grænt ljós á að fara klukkan
18 en ég var greinilega komin með matreiðsluáhugann þarna
sem loðir ennþá við mig. Ég fór sem sagt að búa til karamellu en
brenndi mig og fékk rosalega blöðru sem var eins og sundfit milli
litla fingurs og baugfingurs. Ég lét mig hafa það að fara í kirkjuna
og var með kaldan þvottapoka í hendinni. Það kom augnablik sem
mig langaði mest til að standa upp og öskra en náði sem betur fer
að halda aftur af mér. Það var ekkert ýtt á það aftur að fara í kirkju
á þessum tíma...
Hvað er í matinn á aðfangadag?
Í forrétt er annað hvort humar, humarsúpa eða rósakálssúpa, það
fer eftir aðföngum. Aðalrétturinn fer eftir því hverjir eru með
okkur á aðfangadag. Ef mamma og pabbi eru hjá okkur þá erum
við oftast með hamborgarhrygg og allt hefðbundið, annars eigum
við það til að skipta yfir í nautalund.
Eftirrétturinn er svo arfleifð frá ömmu Eileen sem var ensk, það
er „ananasdesert“ og er það sá hluti af matseðlinum sem er ekki
breytilegur.
Hvenær eru jólin komin fyrir þér?
Þegar húsið er orðið hreint, búið að skreyta jólagluggann og jóla-
tréð komið upp er þetta komið langleiðina. Svo gera útiþurrkuð
sængurföt á Þorláksmessukvöldi útslagið.
Hefur þú verið eða gætir þú hugsað þér
að vera í útlöndum um jólin?
Við höfum, eins og kom fram áðan, verið í Flórída og það meira
að segja tvenn jól. Áður en ég prófaði það átti ég það til að fitja upp
á nefið og segja: „Hvernig getur fólk hugsað sér að vera bara í út-
löndum um jólin og sleppa öllum hefðunum?“ Þetta viðhorf hefur
heldur betur batnað með árunum og það er alveg inni í myndinni
að fara einhvern tíma aftur. Við höfum reyndar, þessi skipti haldið
jólin hjá Herdísi mágkonu í Flórída og Marnie manni hennar, svo
við höfum bara dottið inn í jólahald með fjölskyldunni, bara á
öðrum stað og jafnvel byrjað jóladag á labbitúr á ströndinni.
Áttu þér uppáhalds jólaskraut?
Heimasmíðaða jólatréð er þar mjög ofarlega á lista en svo er ýmis-
legt fleira sem ég held upp á. Það má segja að við hjónin höfum
hannað tréð í sameiningu. Ég sagði hvernig það ætti að vera en
Siggi minn sá um tæknilega útfærslu sem hefur virkað svona ótrú-
lega vel.
Hvernig verð þú jóladegi?
Ég vil helst vera á náttbuxunum fram eftir degi, lesa og horfa á
góðar bíómyndir og lúra smá. Það var samt alltaf nóg að gera á
jóladag hjá okkur, á tímabili voru alltaf þrjú boð; hjá ömmu litlu í
hádeginu, svo hjá Kristínu mágkonu og svo er ein í fjölskyldunni
sem á afmæli á jóladag og við enduðum oft hjá henni um kvöldið.
En þetta hefur breyst töluvert seinni ár og nú er meira verið að
dóla framan af degi og svo fá voffarnir góða viðrun og mannfólkið
hristir af sér konfektvímuna.
Jólaspjall:
Hristir af sér konfektvímuna með göngutúr
Grindvíkingurinn Ragnheiður Eyjólfsdóttir skreytir gluggann í borðstofunni alltaf af mikilli natni fyrir jólin.
Glugginn er nokkurra metra hár og ein jólin þegar hún var komin átta mánuði á leið lét hún það ekki aftra sér frá því
að klifra upp stiga og skreyta gluggann.
Sendum viðskiptavinum okkar og Suðurnesjamönnum öllum bestu óskir um
gleðilega jólahátíð og farsæld á komandi ári!
Þökkum ykkur viðskiptin á árinu sem er að líða!
Víkurbraut 1 - Reykjanesbæ - rafidn@simnet.is - www.rafidn.is
Sími: 421 1768 // 899 8012 // 898 1009
Kæliþjónusta
Gísla Wium
ÍSLANDSBLEIKJA
GRINDAVÍK
„Ég vil helst vera á náttbuxunum fram eftir degi, lesa og horfa á góðar bíómyndir og lúra smá“